Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 34
18. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● menningarnótt
Töfrar eiga sér stað í Hörpu
rétt áður en flugeldar skreyta
himinhvolf á Menningarnótt.
„Í orðsins fyllstu merkingu munu
gestir Menningarnætur sjá Hörpu
í nýju ljósi þegar glerhjúpur henn-
ar hlýtur loks sína uppljómuðu
litadýrð, og víst að sama andar-
tak verður eftirminnilegt um
langa hríð,“ segir Steinunn Birna
Ragnars dóttir, tónlistarstjóri
Hörpu, um hápunkt þess þegar
Harpa verður formlega vígð á
Menningarnótt og ljós í glerhjúp
Ólafs Elíassonar verða tendruð, en
þá fá gestir að sjá fullskapað lista-
verkið í fyrsta sinn.
„Hjúpurinn er hugsaður sem
samspil borgarljósa og ljósaskil-
yrða landsins, sem eru einstök.
Hann hefur oft notið sín fagurlega
í kvöldsólinni í sumar þegar gyllt
litbrigði hafa dansað í gluggunum
og hjúpurinn með óendanlegan
breytileika,“ segir Steinunn Birna,
en það er suður veggur Hörpu, sá
sem snýr að borginni, sem verð-
ur tendraður undir leynilegu, sér-
völdu tónlistaratriði listamannsins
Ólafs Elíassonar.
„Töfrarnir gerast strax eftir
að kvöldtónleikum Rásar 2 lýkur
á stóra sviðinu við Arnarhól upp
úr hálfellefu og því mikilvægt að
hafa ekki augun af Hörpu svo fólk
missi ekki af andartakinu þegar
við blasir ólýsanlegt og lýrískt
sjónarspil. Slökkt verður á götu-
ljósum á meðan og svo líða nokkr-
ar mínútur þar til flugeldar lýsa
upp himininn, því viðstaddir þurfa
smástund til að jafna sig á þess-
um stórbrotnu, sjónrænu hátíða-
höldum,“ útskýrir Steinunn Birna.
Veðurspá fyrir Menningarnótt
er góð, enda lagði starfsfólk Hörpu
inn gott orð hjá máttarvöldunum
til þessa einstaka viðburðar.
„Það er sennilega einstakt í
sögu svona bygginga að húsið
sjálft sé glerlistaverk. Í því felst
sérstaða Hörpu og listrænt gildi,
ásamt einu af hennar miklu sókn-
arfærum. Að vígslu lokinni tekur
við veruleikinn að stýra húsinu
farsællega til framtíðar og allt
bendir til þess að það eigi eftir að
ganga að óskum, því aðsókn og eft-
irspurn sýna þörfina á langþráðu
menningar- og mannlífshúsi,“
segir Steinunn Birna sem bíður
spennt eftir komandi ljósadýrð í
gluggum Hörpu.
„Eftirvæntinguna tengir maður
bara við bernskuna og jólin, sem
er besta eftirvænting sem til er.
Því trúi ég að þjóðin muni upp-
lifa hálfgildings jólastemningu
á Menningarnótt í ár,“ segir hún
hlæjandi.
Í anda Menningarnætur er
allt ókeypis í Hörpu á laugar-
dag. Inni og á útisviði verður fjöl-
breytt tónleikaveisla og kínversk
loftfimleika sýning allan daginn.
Nánari dagskrá má finna á www.
harpa.is. - þlg
Jólastund við Hörpu
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistar-
stjóri Hörpu, hlakkar til að taka á móti
gestum í opna og fjölbreytta viðburði
hússins á Menningarnótt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Harpa mun skína í sinni fegurstu mynd á Menningarnótt þegar ljós kvikna loks í glerhjúp hennar. MYND/NIC LEHOUX
● SJÓFERÐIR OG FRÍTT Í STRÆTÓ Miðborgin verður meira og
minna lokuð fyrir bílaumferð á Menningarnótt. Fjölmörg bílastæði eru í
jaðri hátíðarsvæðisins og fjölmörg bílastæðahús opin. Sektað verður fyrir
stöðubrot eins og gert hefur verið á fjölmennum viðburðum í sumar.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa því ákveðið að bjóða frítt í
strætó á Menningarnótt. Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningar-
nótt í fyrra, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuð-
borgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi.
Sérferðir munu einnig bjóða upp á siglingar frá Sundahöfn og að
Hörpu þetta kvöld fyrir þá sem vilja sleppa við umferðarteppu á Sæ-
braut. Ferðirnar eru farnar frá klukkan 19 til miðnættis. Farið er á heila
tímanum frá Sundahöfn og hálfa tímanum
frá Hörpu. Fólk verður flutt á
bátnum Rósinni sem tekur 72
farþega í einu og er sannkallað
lúxusskip. Síðustu tvær
ferðir kvöldsins, klukkan
23.30 og 24, eru farnar frá
Hörpu til að flytja gesti úr
miðbænum eftir flugeldasýn-
inguna. Ferðin kostar 1.000
krónur fyrir fullorðna, 500 fyrir
börn en ókeypis fyrir börn
undir 7 ára aldri.
Sérferðir bjóða upp á siglingu milli Sundahafnar og Hörpunnar.
Sinfóníuhljómsveit Íslands tekur nú
í fyrsta sinn þátt í Menningarnótt
og býður fólki á tvenna tónleika á
vígsludegi Hörpu, klukkan 14 og 17.
Frítt er inn og allir eru velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir en 1.600
manns komast inn í Eldborgar-
salinn í einu. Margrét Ragnars-
dóttir, markaðs- og kynningarstjóri
Sinfóníunnar, lýsir efnisskránni.
„Fyrri tónleikarnir, klukkan
14 eru fyrir börn og fjölskyldur
þeirra. Þeir fjalla um ævintýrið
um Maxímús Músíkús sem villist
óvart á æfingu hjá sinfóníuhljóm-
sveit í glænýju tónlistarhúsi. Þarna
hljómar tónlist úr ýmsum áttum,
Hátíðargjall eftir Aaron Copl-
and, Bolero eftir Maurice Ravel
og Á Sprengisandi eftir Sigvalda
Kaldalóns. Valur Freyr Einarsson
er sögumaður og hljómsveitarstjóri
er Bernharður Wilkinsson.“
Tónleikarnir klukkan 17 kallast
Klassík fyrir alla. „Það eru flott-
ir tónleikar með blandaðri dag-
skrá, aðgengileg klassísk verk,“
segir Margrét og nefnir flautu-
konsert eftir Mozart og þrjú lífleg
hljómsveitarverk eftir Tsjajkovs-
kíj, Prokofiev og Glinka. Einleik-
ari er Stefán Ragnar Höskuldsson
en hann hefur verið flautu leikari
við hljómsveit Metropolitan-
óperunnar í New York frá árinu
2004. Hljómsveitarstjóri er Bern-
harður Wilkinsson.
Margrét segir miðasöluna opn-
aða tveimur tímum fyrir tónleikana
og telur afgreiðslu miða eiga að
geta gengið hratt fyrir sig. - gun
Sinfónían með í fyrsta sinn
Sinfóníuhljómsveitin býður upp á tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu.
TOURS
SPECIAL
2:1
gegn framvísun
auglýsingar.
HVALA-
SKOÐUN
Alla dag
a
kl. 18:00
3 ferðirdaglega
Nánar á serferdir.is
Þú getur grillað um
borð eða tekið
veiðina með heim
Fullt verð 9000,
nú aðeins 4500.
S EIJÓSTANGV ÐI
Bókanir á info@serferdir.is
eða í síma 892 0099.
www.facebook.com/specialtoursiceland
Ógleymanlegt ævintýri á einum
glæsilegasta farþegabát landsins!
Fullt verð 7500, nú aðeins 3750