Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 30
Talið er að hanakambur eigi rætur sínar að rekja til Norður-Ameríku.
Á ensku er hann kenndur við Móhíkana-indíánaflokkinn þó að vitað sé
að hann hafi verið í tísku hjá Wyadot-indíánum mikið fyrr. Með tilkomu
pönkmenningarinnar upp úr 1970 var hanakamburinn endurvakinn.
„Hönnun mín fór inn á heima-
síðu Debenhams á föstudegi fyrr
í sumar og þeir hringdu í mig á
þriðjudegi og vildu fá vörurnar
beint inn í búðirnar því þær seld-
ust strax svo vel,“ segir Marta
Jonsson hönnuður. Hún er fyrsti
íslenski hönnuðurinn sem selur
vörur sínar í Debenhams erlend-
is en Debenhams rekur yfir tvö
hundruð verslanir í um 25 lönd-
um. Vor- og sumarlína Mörtu árið
2012 verður fyrsta línan sem verð-
ur til sölu í verslunum Debenhams
og kemur líklega í verslanir í lok
þessa árs.
Marta stofnaði tískumerki sitt,
Marta Jonsson, árið 2009. Hún
hannar skó, töskur og belti í stíl.
Hún hafði þó hannað skó undir
merkjum Logo69 frá árinu 1996.
Lína Mörtu, Marta Jonsson, hefur
slegið í gegn í London þar sem
höfuðstöðvar fyrirtækisins eru.
Rekur hún þrjár verslanir þar í
borg, meðal annars á Kings Road,
í Westfield, stærstu verslunarmið-
stöð í Evrópu og Guldford.
Marta selur vörur sínar auk þess
á netinu, bæði á heimasiðu sinni og
á hinni vinsælu skó- og fylgihluta-
verslun VivaLaDiva.com. „Þegar
við byrjuðum á þeirri síðu höfðu
aðstandendur síðunn-
ar ekki séð svona nýtt
tískumerki ganga jafn vel. Við
vorum strax komin í topp fimm
í sölu hjá þeim,“ upplýsir Marta
ánægð en á síðunni VivaLaDiva
selur hún vörur sínar innan um
marga þekkta hönnuði og má þar
nefna, Armani, Dr. Martens, Dolce
& Gabbana og Rayban. Á síðunni
eru vörur frá yfir 180 tískuhönn-
uðum.
Marta er enginn nýgræðingur
í hönnunarheiminum því frá 1996
hefur hún hannað, framleitt og
selt skó sína til stórra verslana,
meðal annars til Office og Kirk
Aigner. „Ég er ennþá að gera það.
Ég hanna og framleiði ofan í þær
keðjur,“ segir Marta og heldur glað-
lega áfram: „Svo er Marta Jonsson,
nýja litla búgreinin, bara að verða
svo stór. Þetta er rosalega fljótt
að breytast. Við viljum halda
áfram að stækka og leggja undir
okkur heiminn. Þýðir nokkuð
annað?“ martaf@frettabladid.is
Gengur vel innan um
þekkta tískuhönnuði
Íslensk hönnun verður í fyrsta sinn til sölu í Debenhams erlendis seinna á þessu ári en til eru um tvö
hundruð Debenhams-búðir í 25 löndum. Hönnun Mörtu Jonsson er vinsæl og setti met á síðu VivaLaDiva.
„Marta Jonsson, nýja
litla búgreinin, er
bara að verða
svo stór,“ segir
Marta.
Vörur Mörtu Jonsson slógu í gegn á
hinni vinsælu skó- og fylgihlutasíðu
VivaLaDiva þegar þær komu þangað
fyrst og hefur gengið vel síðan.
Marta Jonsson býr úti í London og merki hennar gengur vel þar í borg.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er
verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn
í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi
kr. 93.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint flug frá Akureyri
21.-25. október
eint flug frá Keflavík • Beint flug frá Akureyri
* mat,
í l f j il f fl lli.
2. ,-
Innifalið: Flug, skattar og hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22
KYNNINGARFYRIRLESTUR UM KRIYA YOGA
Rajarshi Peter van Breukelen heldur fyrirlestur
19. ágúst kl. 19 í Yogastöðinni Heilsubót , Síðumúla 15.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og endurgjaldslaus.
INNVÍGSLA OG NÁMSKEIÐ
20. - 21. ágúst verður innvígsla í Kriya Yoga og
hugleiðslutæknin kennd. Námskeiðið fer fram í Yoga-
stöðinni Heilsubót, Síðumúla 15. Þetta er tækifæri sem
áhugafólk um Yoga og andleg fræði vill ekki missa af.
Nánari upplýsingar: 691 8565 (Guðmundur), 897 9937 (Bjarni)
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Talan 234.243 er
saumuð inn í hver
jakkaföt í haust-vetrar-
línu 2011 til 2012 hjá
norska fatamerkinu
Moods of Norway.
Vísar talan til fjölda
dráttarvéla í Noregi.
Vörumerkið er líka
dráttarvél og slagorð
þess er „Glaðleg föt
fyrir ánægt fólk“. Hafa
norsku hönnuðirnir þrír
sagt að í slagorðinu
felist markmið þeirra.
heimild: www.
wikipedia.org
Nýjar
haustvörur