Fréttablaðið - 18.08.2011, Blaðsíða 44
18. ÁGÚST 2011 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● menningarnótt
Íbúar á Haðarstíg bjóða
gestum og gangandi
upp á kaffi og með því á
Menningarnótt. Þetta er í
þriðja sinn sem blásið er til
menningarnæturveislu á
Haðarstíg en með uppátækinu
vilja íbúar sporna við
bílaumferð um götuna.
„Við tókum fyrst þátt fyrir tveim-
ur árum en vorum ekki hluti af
dagskrá Menningarnætur þá.
Okkur datt í hug að leggja tún-
þökur eftir götunni og vekja þann-
ig athygli á ósk okkar um að fá
ökuhraðann um götuna lækkaðan,“
segir Halla Sólveig Þorgeirs-
dóttir, íbúi á Haðarstíg. Tiltækið
tókst með eindæmum vel og fjöldi
gesta heimsótti götuna. Hámarks-
hraðinn var í framhaldinu lækkað-
ur niður í 15 km og Haðarstígur
varð fyrsta íbúagatan í Reykjavík
til að verða vistgata.
Í fyrra tóku Haðarstígsbúar
aftur þátt og þá sem skipu lagður
dagskrárliður Menningar nætur.
Íbúar gáfu heimabakstur og kaffi
og héldu kompusölu í götunni
ásamt því að frumsýna heimildar-
mynd í Litla garði. Í ár verður
dagskráin ekki síðri.
„Hér munu ungir og upprenn-
andi söngvarar syngja ástardú-
etta. Kaffibarskórinn Bartónar
kemur fram og við drífum upp
sölubása,“ segir Halla Sólveig
en einnig hefur Davíð Örn Hall-
dórsson myndlistarmaður málað
vegg í Litla garði sem verður af-
hjúpaður.
Halla Sólveig segir góða sam-
stöðu meðal íbúa. „Auðvitað er
alltaf ákveðinn kjarni sem er
virkastur en undirtektirnar voru
góðar þegar við viðruðum þátt-
töku í Menningarnótt í þriðja
sinn. Í ár viljum við ganga skref-
inu lengra og ýta á að einungis
verði leyfð bílaumferð íbúa um
götuna,“ útskýrir Halla Sólveig,
en slíkt fyrirkomulag þekkist
víða erlendis, meðal annars í Dan-
mörku. „Fólk ekur enn of greitt
hér í gegn en gatan er mjög mjó.
Við viljum tempra bílaumferðina
fyrir börnin.“
Dagskráin á Haðarstíg hefst
klukkan 14 á laugardag og stend-
ur til 16. Allir eru velkomnir. - rat
Húllumhæ á Haðarstíg
Íbúarnir lögðu túnþökur á götuna á
Menningarnótt fyrir tveimur árum og
vildu með því þrýsta á ósk sína um lægri
ökuhraða um götuna
Íbúar Haðarstígs berjast nú fyrir því að leyfa einungis bílaumferð íbúa um götuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Börnin hitta dropastrákinn Petit
Pierre, eða Pésa litla, sem féll af
himnum ofan til Reykjavíkur.
Hann er feiminn því hann talar
bara frönsku og skilur ekki tungu-
málið í kringum sig. Við börnin
reynum því að fá hann til að sýna
sig með því að syngja franskar
barnavísur og þá þorir hann að
heilsa upp á krakkana og kenna
þeim að heilsa á frönsku. Vonandi
geta börnin síðan kennt honum að
bjóða góðan dag á íslensku,“ segir
fransk-íslenski brúðuleikarinn
Emmanuelle Sólveig Simha, sem
verður með brúðuleikhúsið Segðu
mér sögu, eða S‘il te plait raconte
moi une histoire, fyrir börn frá
18 mánaða aldri í barnaherbergi
Alliance Francaise á Tryggva-
götu 8.
„Ég er fædd og uppalin í Frakk-
landi af frönskum föður mínum og
íslenskri móður. Á sumrin var ég
send í sumardvöl til Íslands, en
fyrir þremur árum kynntist ég ís-
lenskum manni og fluttist hingað
vegna ástarinnar,“ segir Sólveig,
sem einnig er frönskukennari.
„Með sýningunni vil ég kenna
íslenskum börnum frönsku og
sýna þeim að maður eigi ekki að
vera hræddur þótt maður geti ekki
bjargað sér á öðru tungumáli. Það
eru nefnilega alltaf leiðir til að
tengjast öðrum, eins og í gegnum
lög og vísur.“
Hver sýning tekur um 20
mínútur. Sýnt verður klukkan 13
og 13.30, og oftar ef aðsókn er
mikil.
Barnavísur Petit Pierre
Emmanuelle Sólveig Simha með Pésa litla, sem er sköpunarverk Katrínar Þorvalds-
dóttur. Segðu mér sögu er sú fyrsta í sýningaröð Sólveigar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur