Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 10

Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 10
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR10 ,AFSLÁ TTUR í dag fimm tudag bjóðu m við 15% afslá tt af ö llum vörum í vers lun M aður Lifand i Hæð asmá ra 6, Kópa vogi. Í vers lun o kkar f ærðu hágæ ða líf ræna r og n áttúru legar mat-, snyrt i- og hrein lætisv örur, bætie fni, n áttúru legar lausn ir og fræðs luefn i. www .mad urlifa ndi.is vegna breyt inga Peningastefnunefnd Seðlabank- ans kynnti í gær ákvörðun um 0,25 prósenta hækkun á stýrivöxtum og frekari hækkanir eru líklegar á næstu mánuðum. Seðlabankastjóri segir litla hættu á því að vaxta- hækkunin stöðvi efnahagsbatann. Víða er óánægja með hækkunina sem virðist hafa komið markaðnum í opna skjöldu. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Stýrivextir eru 4,5 pró- sent eftir hækkunina. Í yfirlýsingu nefndar- innar segir að hækkunin markist af því að verðbólguhorfur til næstu tveggja ára hafi versnað frá síðustu vaxtaákvörðun. Í tilkynningunni segir: „Þróun undan- farinna mánaða hefur aukið hættu á að hærri verðbólguvæntingar og veikt gengi krónunnar festi of mikla verðbólgu í sessi, sérstaklega þegar efnahagsbatinn færist í aukana.“ Seðlabankinn telur því nauðsyn- legt að sporna við aukinni verðbólgu og hugsanlegum þrýstingi á gengi krónunnar með þessari hækkun. Þá kunni aðstæðurnar að kalla á frekari hækkun vaxta, segir í til- kynningunni. Líklegt má telja að hækkuninni verði fylgt eftir á næstu mánuðum sem gæti dregið úr umsvifum í hagkerfinu. Ákvörðun peninga- stefnunefndarinnar virðist hafa komið mark- aðsaðilum á óvart þar sem ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa hækkaði umtals- vert þegar ákvörðunin lá fyrir. Þá var henni illa tekið af aðilum vinnumarkaðarins og talsmönnum atvinnulífsins sem telja hana til þess fallna að draga úr efnahagsbatanum. Seðlabankinn kynnti einnig uppfærða þjóð- hagsspá í gær. Spáin bendir til aukins krafts í íslensku efnahagslífi en af þeirri ástæðu er lítil hætta talin á að hófleg vaxtahækkun stöðvi efnahagsbatann, að því er fram kemur í yfirlýsingunni. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði ákvörðunina ekki eiga að koma að öllu leyti á óvart á blaðamannafundi í gær. Hún væri í samræmi við fyrri yfirlýsingar peninga- stefnunefndarinnar, sagði Már. Þá sagði hann raunvexti hafa farið lækkandi á síðustu mán- uðum, þeir yrðu áfram neikvæðir þrátt fyrir þessa hóflegu hækkun. Verðbólga hefur hækkað hratt síðustu mánuði og er nú 5 prósent. Samkvæmt nýju þjóðhagsspánni mun hún halda áfram að hækka á næstu mánuðum og fara hæst í 6,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2012. Þá er því spáð að verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5 prósent, náist aftur á seinni hluta árs 2013. Hærri verðbólgu má rekja til nokkurra þátta. Má þar nefna að launahækkanir vegna nýgerðra kjarasamninga voru mun meiri en búist var við og raunar langtum meiri en samrýmist verðbólgumarkmiðinu. Þá hefur gengi krónunnar verið lægra en búist var við, markaðsverð húsnæðis hækkað talsvert að undanförnu auk þess sem alþjóðlegar verð- hækkanir hafa verið nokkrar. Í þjóðhagsspá Seðlabankans er spáð 2,8 prósenta hagvexti á þessu ári, 1,6 pró- senta hagvexti á því næsta og loks 3,7 pró- senta hagvexti árið 2013. Hagvaxtarhorfur fyrir þetta ár og árið 2013 hafa því batnað en spáð er minni hagvexti en áður á næsta ári. Aukin einkaneysla og kröftugri atvinnu- vegafjárfesting eru helstu aflvakar bættra horfa á þessu ári. Fjárfesting í heild sinni er þó minni en spáð hafði verið. Þá gæti áfram- haldandi titringur á erlendum fjármála- mörkuðum haft neikvæð áhrif á íslenskan þjóðarbúskap. Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi í ár verði 7,1 prósent samanborið við 7,7 prósent í spá sinni frá því í apríl. Skýrist munurinn af því að búist er við meiri hagvexti á árinu en áður. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysi haldist í og um 6 prósent á næsta ári fram á mitt ár 2013 en taki svo að lækka á ný þegar hagvöxtur tekur við sér 2013. Vextir hækkaðir til að slá á verðbólgu Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans hefur vakið hörð viðbrögð frá aðilum vinnumarkaðarins og talsmönnum atvinnulífsins. Hörð viðbrögð við vaxtahækkuninni hagvexti er spáð á þessu ári en 1,6% á því næsta. Árið 2013 er gert ráð fyrir 3,7% hagvexti. ÞJÓÐHAGSSPÁ SEÐLABANKANS 2,8% Seðlabankinn tilkynnir hækkun stýrivaxta Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SEÐLABANKI ÍSLANDS Már Guðmunds son seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðal- hagfræðingur bankans, kynntu vaxtaákvörðun peningastefnu- nefndarinnar og nýja þjóðhagsspá bankans í gær. ■ Samtök atvinnulífsins kröfðust þess í tilkynningu að vaxtahækkunin yrði dregin til baka við næstu vaxtaákvörðun. Hækkunin gengi þvert á viðleitni til þess að auka fjárfestingar og hagvöxt í landinu og gerði það erfiðara að ná niður atvinnuleysi og bæta lífskjör almennings. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði hækkunina enn fremur vera óhuggulega, í samtali við Vísi. ■ Alþýðusambandið sagði ákvörðun peninga- stefnunefndarinnar óskiljanlega í tilkynningu á vefsíðu sinni. Hækkun vaxta við núverandi aðstæður yki vanda Íslendinga frekar en hitt þar sem vandamálið væri mikill slaki í hagkerfinu. Þá sagðist Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, vera orðlaus í samtali við Vísi. ■ Viðskiptaráð sagði ákvörðunina einnig vera óskiljanlega vegna aðstæðna í hagkerfinu á vefsíðu sinni. „Það getur ekki verið trúverðugleika seðla- banka nokkurs lands til framdráttar ef aðgerðir hans veikja og seinka efnahagsbata úr kreppu- ástandi. Vegna þess er óskiljanlegt að Seðlabankinn hafi talið nauðsynlegt að hækka stýrivexti,“ sagði Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. ■ Samtök iðnaðarins tóku í sama streng og sagði Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI, ákvörðun- ina vera óskiljanlega. „Vissulega er verðbólgan nokkurt áhyggjuefni en stærsta vandamálið okkar er hversu veikt hagkerfið er. Þessi vaxtahækkun vinnur beinlínis gegn viðsnúningi í hagkerfinu,“ sagði Bjarni Már.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.