Fréttablaðið - 18.08.2011, Page 17

Fréttablaðið - 18.08.2011, Page 17
FIMMTUDAGUR 18. ágúst 2011 17 Kreppan í Grikklandi nú er ekki bankakreppa, heldur ríkisfjármálakreppa. Vandi Grikklands er að þessu leyti ger- ólíkur efnahagsvanda Íslands. Skoðum það eftir andartak, en fyrst þetta. Frá Afríku til Evrópu Þegar ég kom fyrst til Grikk- lands fyrir 30 árum, blasti við mér land, sem var í aðra rönd- ina eins og næsti bær við Afríku; ég var einmitt að koma þaðan. Aþena virtist þá gerólík öðrum Evrópuborgum okkar megin við járntjaldið, sem klauf Evrópu í tvennt. Þjóðartekjur á mann í Grikklandi voru þá fjórðungi lægri en hér heima, en meðalævi fólksins var jafnlöng á báðum stöðum og miklu lengri en í Afr- íku. Nýfætt barn í Grikklandi gat 1981 líkt og íslenzkur hvítvoð- ungur vænzt þess að ná 74 ára aldri. Sama ár, 1981, gekk Grikk- land í Evrópusambandið (ESB). Síðan þetta var hefur Grikk- land tekið stakkaskiptum. Ef ESB gat hjálpað Írum við að rífa sig upp úr ævilangri fátækt og kennt Bretum að borða góðan mat, þá hlaut sambandið einnig að geta komið Grikkjum til að taka sig saman í andlitinu þrátt fyrir ýmis erfið heimatilbúin vandamál svo sem herforingjastjórnina 1967- 1974. Þetta tókst, en þó ekki til fulls. Grikkland sker sig að sönnu ekki lengur úr hópi Evrópulanda. Landið ljómar þrátt fyrir þessa daga. Umferðin í Aþenu er nú léttari en áður þrátt fyrir stríða fólksflutninga úr sveit í borg. Neðanjarðarlest var tekin í notkun árið 2000 og hringvegur lagður umhverfis höfuðborgina, hvort tveggja með aðstoð frá ESB. Neðanjarðarlestir þekkjast víðast hvar í evrópskum höfuð- borgum, en hvergi í Afríku nema í Kaíró, höfuðborg Egyptalands. Grikkir standa nú eftir hrun svo að segja jafnfætis Íslendingum í efnahagslegu tilliti, mælt í kaup- mætti þjóðartekna á mann 2010 samkvæmt nýjum upplýsingum Alþjóðabankans. Þeir hafa því næstum náð að jafna forskot okkar á þennan kvarða frá 1981. Við stöndum þó feti framar að því leyti, að meðalævin hefur lengzt meira hér heima. Nýfætt barn á Íslandi getur nú vænzt þess að ná 82 ára aldri á móti 80 árum í Grikklandi. Það gefur okkur tveggja ára forskot. Bæði löndin hafa þá sjaldgæfu sérstöðu, að þau laða til sín fleiri erlenda ferðamenn á hverju ári en nemur fólksfjölda. Fjárhagsvandi Grikkja Grískir bankar lentu ekki í nein- um umtalsverðum vandræðum, þegar bankar víða um lönd léku á reiðiskjálfi 2007-2008 og sumir hrundu. Efnahagsvandi Grikk- lands nú stafar einkum af því, að ríkisstjórnin brást. Hún fegraði – nei, falsaði! – ríkisbókhaldið til að komast inn í evrusamstarf ESB, enda hafði innlenda myntin, drakman, ekki gefizt vel. Aðrar þjóðir ESB þóttust ekki taka eftir bókhaldsbrellunum til að tefja ekki framþróun sambands- ins. Þetta var skyssa. Agaleysið í ríkis fjármálum Grikklands vatt upp á sig, þar til erlendir lánar- drottnar misstu þolinmæðina. Samt er ekkert að Grikkjum. Þeir standa sig til dæmis býsna vel í útlöndum, þar sem stjórnmála- menningin heiman að þvælist ekki fyrir þeim. Sameiginlegri mynt eins og evrunni þarf að réttu lagi að fylgja sameiginleg stjórn ríkis- fjármála að hluta líkt og í Banda- ríkjunum, svo að einstök lönd í vanda eigi aðgang að fyrir- greiðslu frá öðrum aðildar- löndum, þegar á móti blæs, en þó þannig, að öll löndin hafi hag af að halda fjármálum sínum í sæmilegu horfi. Þetta hefur ESB vanrækt. Grikkland gekk á lagið. Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn (AGS) leggur til, að erlendir lánardrottnar gríska ríkisins taki á sig talsverðar afskriftir líkt og erlendir lánardrottnar íslenzku bankanna þurftu að gera. ESB leggur heldur til, að grískir skattgreiðendur standi full skil á skuldum ríkissjóðs við útlönd. Á að reisa skjaldborg? Um hverja? Erlenda banka eða inn- lenda skattgreiðendur? Vandinn hljómar kunnuglega. Málið er enn óútkljáð. Hver sat um hvern? Íslenzka bankakerfið hrundi 2008, aðallega vegna heima- tilbúinna mistaka og misferlis eins og Rannsóknarnefnd Alþingis lýsir rækilega í skýrslu sinni í níu bindum. Kenningin um Ísland sem saklaust fórnar- lamb erlends umsáturs á sér enga stoð í raunveruleikanum. Mér kemur í hug gömul saga af þýzku hóteli, sem brást við rýrnandi postulínsbirgðum eld- hússins með því að láta brenna neðan á alla diska, bolla og undirskálar hússins: „Gestolen von Hotel Königshof“. Kannski færi ekki illa á að hengja upp marmaraplötu á viðeigandi stað til dæmis í Hörpu og víðar með svipaðri áletrun: „Genommen von Deutsche Bank“. Íslenzku bankarnir áttu þó ekki annarra kosta völ en að hlaupa frá skuld- um sínum, enda var útilokað, að ríkissjóður hlypi undir bagga, svo risavaxnar voru skuldirnar. Grískir skattgreiðendur eiga nú þriggja kosta völ. Þeir geta hert ólarnar og staðið í skilum, samið um afskriftir við erlenda lánardrottna eða neitað að borga. Síðasti kosturinn gefst yfirleitt ekki vel, þar eð orðstír vanskila- þjóðar þarf langan tíma – ára- tugi – til að jafna sig. Grikkland, Grikkland Í DAG Þorvaldur Gylfason Prófessor Grískir skattgreiðendur eiga nú þriggja kosta völ. Þeir geta hert ólarnar og staðið í skilum, samið um afskriftir við erlenda lánardrottna eða neitað að borga. AF NETINU Hljómar eins og geggjun Efnahagsstefnan sem hér hefur verið rekin frá því eftir hrun er að lenda í ógöngum. Vaxtahækkun Seðlabankans er til marks um það. Að hækka vexti í hagkerfi þar sem umsvif eru í lágmarki hljómar eins og geggjun – alls staðar á Vestur- löndum eru vextir mjög lágir. En menn hafa ekki stjórn á verðbólg- unni, þrátt fyrir hægaganginn í hagkerfinu og gjaldeyrishöftin. Það tekst ekki að koma á hallalausum fjárlögum eins og gert hafði verið ráð fyrir í áætlun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Við blasir meiri niðurskurður og meiri skattahækkanir. Seðlabankinn vill kaupa krónur á yfirgengi, 210 krónum og býður ríkisskuldabréf, en viðtökurnar eru nánast engar. Bankinn vildi kaupa 72 milljónir evra á þessu gengi, en fékk 3 milljónir. Þetta sýnir að traustið er ekki mikið – er raunverulegt gengi krónunnar enn lægra en þetta? silfuregils.eyjan.is Egill Helgason Uppgefið leiguverð of lágt Uppgefið leiguverð á íslenskum íbúðamarkaði er afar oft miklu lægra en raunverulegt leiguverð. Ástæðan er annars vegar glórulaus skattastefna ríkisins og hins vegar glórulaus viðmiðun leigubóta sam- hliða afnámi vaxtabóta ef eigendur húsnæðis búa ekki í eigin íbúð. Það er afar algengt að þinglýstir leigusamningar hljóði upp á fjár- hæð sem dugi til þess að leigjandi fái greiddar fullar húsaleigubætur. Leigufjárhæðin sem er umfram þá fjárhæð er síðan greidd svört – eins og í gamla daga. blog.eyjan.is/hallurm Hallur Magnússon si m in n. is Stærsta 3G net landsins Meira Ísland Svartifoss 25 kr. dagurinn* Fyrir þá sem fara á netið einstaka sinnum til að skoða póst eða fréttir. Engin skuldbinding. 25 kr. dagurinn hvort sem þú ert í Frelsi eða áskrift. Þú velur dagpakka eða áskrift eftir því sem þér hentar. Netið í símanum er ódýrara en þú heldur Greidd eru mánaðargjöld og upphafsgjöld skv. verðskrá. Nánar á siminn.is 3G Netið 1 Fyrir þá sem nota netið, nýta sér smáforrit og sækja póst. 490 kr. mánaðargjald 300 MB 25 KR 3G Netið 2 Fyrir þá sem nota netið mikið, horfa á vídeó, nota smáforrit og hlusta á tónlist. 1.090 kr. mánaðargjald 1 GB 3G Netið 3 Fyrir þá sem nota netið mjög mikið, horfa mikið á vídeó, hlusta stanslaust á tónlist og tengjast smáforritum allan daginn. 1.690 kr. mánaðargjald 3 GB E N N E M M / S ÍA / N M 4 7 7 2 6 *M.v. 5 MB

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.