Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 31
FIMMTUDAGUR 18. ágúst 2011 3
Fyrir brúðkaupið
Fleiri myndir á
Facebook, vertu vinur
Ótrúlegt
úrval
af fallegum
kjólum
St. 36-48
Flóra Karitas er með náttúrulega augnförðun og dökkar og ófullkomnar varir.
Upphaflega sá hún um förðun
fyrir Weird Girls Project, sem er
listrænn hópur kvenna úr öllum
áttum, en hefur verið þátttakandi
í síðustu þremur verkum. Nýjasta
myndverk þessa hóps, sem stýrt
er af Kitty Von Sometime, verð-
ur notað sem tónlistarmyndband
fyrir hljómsveitina Imogen Heap.
Í vetur ætlar Flóra að taka að
sér sjálfstæð verkefni í auknum
mæli meðfram því að ljúka námi
á fata- og textílhönnunarbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Haustförðunin er að sögn Flóru
mjög náttúruleg en djörf. „Núna
þykir eftirsóknarvert að líta út
fyrir að vera án farða en samt
með fullkomna húð. Mikil vinna
er að baki slíkri förðun og þarf
maður að velja þær augnskygg-
ingar sem henta húðlit,“ segir
hún og bætir við „Töffaraleg
förðun er að koma í tísku og eiga
augnskuggarnir að vera í gráum
litum eða náttúrulegum brúnum
tónum og út í gyllt. Augabrún-
irnar eiga að vera karlmann-
legar, eða stórar og flott mótað-
ar. Síðan verður mikið um dökka
varaliti í köldum tónum. Varirn-
ar eiga að vera ófullkomnar, líkt
og að þú hafir drukkið rauðvín og
þær litast af því.“ Förðun Flóru
sýnir þessar dökku ófullkomnu
varir en til að ná þeim fram skal
sleppa varalitablýanti, setja örlít-
ið af varalit á varirnar og loks
nudda svo áferðin verði ekki þétt.
Flóra er með mikla tískuvit-
und og ávallt vel til höfð. „Eins
og stíllinn minn er að mótast
núna er ég alltaf örlítið krúttleg
en töffaraleg um leið. Mér finnst
alltaf gaman að vera með ein-
hverja sæta hluti eins og hjarta-
töskuna mína. Þá er ég oft með
stór hálsmen og klæðist yfirleitt
einhverju svörtu til að vera svo-
lítið töff á móti.“
hallfridur@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Síðan verður mikið um dökka varaliti í köldum tónum.
Varirnar eiga að vera ófullkomnar, líkt og að þú hafir
drukkið rauðvín og þær litast af því.
Höfuðhár vex að með-
altali 0,44 millimetra
á dag, eða rúmlega
13 millimetra
á mánuði.
Vaxtarhrað-
inn getur þó
verið breyti-
legur á milli
einstaklinga.
Fjöldi höfuð-
hára er oftast á bilinu
100.000 til 150.000.
Heimild: visinda-
vefur.is
Um fjörutíu tískuvikur
eru haldnar í heim-
inum á ári hverju. Þær
stærstu eru í New
York, London, Míl-
anó og París og alltaf
haldnar í upptaldri röð.
Þessar fjórar eru jafn-
framt virtastar. Á hverri
tískuviku eru
um hundrað
viðburðir. Þar
á meðal eru
tískusýn-
ingar, góð-
gerða-
sam-
komur,
gala-
kvöldverðir
og fylgihluta-
sýningar.
Heimild:
allwomens talk.com