Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 60
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Bretinn Simon Reynolds er einn af þekktustu og virtustu tónlistar-
gagnrýnendum síðustu ára. Hann skrifar reglulega í blöð og tímarit
eins og dagblaðið Guardian og tónlistarblaðið Wire, en hann hefur líka
sent frá sér nokkrar frábærar bækur. Energy Flash rekur til dæmis
sögu danstónlistarinnar í Bretlandi á níunda og tíunda áratugnum og
Rip It Up & Start Again fjallar um nokkrar
af helstu stjörnum síðpönksins. Báðar algjör
snilld. Nýjasta bók Simons heitir Retromania
– Pop Culture‘s Addiction to Its Own Past og
fjallar eins og nafnið gefur til kynna um for-
tíðarfíknina í tónlistarheiminum.
Í bókinni fjallar Simon Reynolds um það
hvernig fortíðin virðist hafa sífellt viða-
meira hlutverk hjá þeim sem hafa áhuga á
popptónlist. Hann fjallar meðal annars um
youtube-væðinguna (allir að reyna að finna
eitthvað gamalt sem þeir muna eftir eða hafa
heyrt um), sprenginguna í endurútgáfum og
síaukinn áhuga á gömlum vínylplötum. Hann
talar um endurvinnslu á gamalli tónlist,
heimildarmyndir um tónlist og söfn og stofn-
anir sem eru tileinkaðar rokktónlist. Og svo
talar hann um allar þessar hljómsveitir sem
sífellt er verið að endurvekja og sem fara í
tónleikaferðir til þess að spila gamalt efni.
Simon fjallar líka um það hvað áherslan á það að gera eitthvað nýtt
og frumlegt hefur verið að minnka mikið undanfarin ár. Hann nefnir
sem dæmi að tónlistarfólk eins og David Bowie, Peter Gabriel og Kate
Bush hafi alltaf verið að reyna að skapa eitthvað sem hafði ekki heyrst
áður, en sveitir eins og Oasis, Interpol og The White Stripes hafi látið
sér nægja að endurvinna gamla tónlist.
Retromania er flott bók sem hægt er að mæla með. Hún er full af
skemmtilegum hugleiðingum um tónlistarbransann og þróun hans
undanfarin ár.
Fortíðaræðið
FORTÍÐARFÍKN Í bókinni
Retromania fjallar Simon
Reynolds um fortíðarfíknina í
tónlistarheiminum.
> PLATA VIKUNNAR
Snorri Helgason - Winter Sun
★★★★
„Lagasmiðurinn Snorri Helgason og
upptökustjórinn Sindri Már Sigfússon
skapa saman frábæra plötu.“
- TJ
> Í SPILARANUM
Mates of States - Mountaintops
Sálgæslan - Dauði og djöfull
Elvar Þór Steinarsson - Í mörgum myndum
Beirut - The Rip Tide
Stephen Malkmus and The Jicks - Mirror Traffic
MATES OF STATE STEPHEN MALKMUS AND THE
JICKS
Breska hljómsveitin The Vaccines, með
bassaleikarann Árna Hjörvar Árnason
innanborðs, hefur neyðst til að aflýsa
þrennum tónleikum. Ástæðan er þrá-
lát vandamál með rödd söngvarans
Justin Young.
Tónleikarnir sem hljómsveitin
hefur aflýst áttu að vera í Hol-
landi, Austurríki og á Norður-
Írlandi í vikunni. Sveitin hefur
þó ákveðið að halda til streitu
áformum um stóra tónleika í
London hinn 23. ágúst og kemur
auk þess fram á Reading/Leeds-
tónleikahátíðinni. Hljómsveitin
er nýkomin frá Bandaríkjunum
þar sem hún kom fram í þætti
Jimmy Kimmel. Young færði aðdáendum
þessar fregnir á heimasíðu sveitarinnar
og tók skýrt fram að þessi ákvörðun
hefði reynst þungbær. Læknar hafa
skipað söngvaranum að hvíla rödd-
ina og búist er við því að hann þurfi
að gangast undir aðgerð á radd-
böndum sínum.
Íslenskir aðdáendur sveitarinn-
ar ættu því að krossleggja fingur
í von um að hann verði búinn að
ná sér fyrir tónleika The Vaccines
á Airwaves-hátíðinni í október.
Árni og félagar aflýsa
RÖDDIN Í RUGLI Árni Hjörvar og félagar
aflýsa tónleikum vegna vandræða með
rödd söngvara The Vaccines.
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 11. - 17. ágúst 2011
LAGALISTINN
Vikuna 11. - 17. ágúst 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Bubbi Morthens............................................Háskaleikur
2 Of Monsters And Men .................................. Little Talks
3 Coldplay .........................Every Teardrop Is A Waterfall
4 Páll Óskar ..................................................... La Dolce Vita
5 Adele ................................................ Set Fire To The Rain
6 Berndsen & Bubbi ...........................................Úlfur Úlfur
7 Steindi JR / Bent / Matti Matt .........Gull af mönnum
8 Rihanna ............................................................Man Down
9 Hjálmar .............................................. Í gegnum móðuna
10 Björgvin & Hjartagosarnir ...........................Leiðin heim
Sæti Flytjandi Plata
1 Helgi Björns. & reiðm. vinda ....Ég vil fara uppí sveit
2 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
3 Steindinn okkar.......................... Án djóks ... samt djók
4 Bubbi ..............................................................Ég trúi á þig
5 Jón Jónsson .................................................Wait For Fate
6 Rökkurró ..................................................... Í annan heim
7 Valdimar ............................................................Undraland
8 Björk .....................................................................Gling gló
9 Björgvin & Hjartagosarnir ...........................Leiðin heim
10 Adele .................................................................................. 21
Ein af áhugaverðari plötum
ársins 2011 er sjötta plata
bandarísku hljómsveitar-
innar Skeletons, People.
Trausti Júlíusson kynnti sér
þessa sérstöku sveit sem er
hugarfóstur Matts Mehlan.
Bandaríska hljómsveitin Skele-
tons er ekki ein af þekktari sveit-
um heims. Það fer ekki mikið fyrir
henni á plötusölulistum. Tónlist
hennar á samt hiklaust erindi við
þá tónlistaráhugamenn sem eru að
leita að einhverju nýju og spenn-
andi. Sveitin blandar saman áhrif-
um úr mjög ólíkum áttum. Tón-
listartímaritið XLR8R lýsir henni
sem „einni af fáum hljómsveitum í
dag sem með réttu er hægt að kalla
frumlegar“.
Frá Ohio til New York
Skeletons (stundum skrifað Skele-
ton$) var stofnuð af Matt Mehlan
árið 2002 þegar hann var enn tón-
listarnemandi í Oberlin í Ohio.
Sveitin sendi frá sér tvær plötur
árið 2004, I‘m at the Top of the
World og Life and Afterbirth. Ári
seinna gerði sveitin samning við
Ghostly International sem gaf út
næstu tvær plötur, Git (2005) og
Lucas (2007). Tomlab gaf svo út
Money árið 2008 og nú þremur
árum seinna er Skeletons komin á
samning hjá belgíska gæðamerk-
inu Crammed Discs sem gaf út
sjöttu plötuna, People, í vor.
Skeletons hefur verið starfandi í
New York-borg síðan 2005 og hefur
verið hluti af hinni rómuðu Brook-
lyn/New York-senu síðustu ár.
Frumleg blanda
Tónlist Skeletons er stundum köll-
uð blanda af „sérlundaðri þjóðlaga-
tónlist og proggrokki“. Sú lýsing á
samt ekkert sérstaklega vel við,
en þetta er mjög frumleg blanda.
Áhrifa gætir frá folk-tónlist, en
líka frá afró-bíti, krautrokki, spu-
nadjassi og framsæknu rokki. Samt
eru lagasmíðarnar tiltölulega hefð-
bundnar. Textarnir eru frábærir.
Auk Matts Mehlan eru í sveit-
inni gítarleikarinn Jason McMahon
og slagverksleikarinn Jonathan
Leland. Þeir þrír eru kjarninn,
en á tónleikum er Skeletons fimm
manna eining. Þá bætast hljóm-
borðsleikarinn Mike Gallope og
bassaleikarinn Bow Ribbons við.
Matt hefur reyndar starfrækt
mörg afbrigði af sveitinni við sér-
stök tækifæri. Skeletons and the
Kings of all Cities, Skeletons and
the Girl Faced Boys og Skeletons
Big Band eru nokkur dæmi um
hliðarverkefni tengd Skeletons.
Draugur Jimmy Damour
Það var Rusty Santos sem hljóð-
blandaði People, en hann hafur
meðal annars unnið með Owen Pal-
lett, Animal Collective og Panda
Bear. Það eru átta lög á People, þar
á meðal hið frábæra Grandma, en
gítarleikurinn í því þykir minna
á hljómsveitina Battles. Eins og
áður segir eru textarnir flottir.
Lagið Walmart and the Ghost of
Jimmy Damour fjallar um Jimmy
Damour, starfsmann sem tróðst
undir þegar æstir viðskiptavinir
ruddust inn í Walmart-verslun í
New York þegar útsala var að hefj-
ast þar árið 2008. L‘il Rich fjallar
um ungan dreng sem lét lífið í upp-
gjöri glæpagengja örskammt frá
íbúð Matts Mehlan í New York.
Og svo er það lagið Barack Obama
Blues …
Tónlist Skeletons er sérstakt
afbrigði sem líkist ekki beint tón-
list neinnar annarrar sveitar. Samt
hefur henni verið líkt bæði við
Battles, Dirty Projectors og meira
að segja Radiohead. Ekki slæmur
félagsskapur það!
Óvenjuleg og heillandi sveit
FRUMLEG OG FRAMSÆKIN Bandaríska hljómsveitin Skeletons er að gera góða hluti með plötunni People.