Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 68
44 18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR
Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Iceland
Airwaves tilkynntu í gær um fimmtíu listamenn
sem bæst hafa við dagskrá hátíðarinnar í ár.
Meðal þeirra íslenskra listamanna og hljómsveita
sem nú bætast í hópinn má nefna Hjaltalín, Lay
Low, Saktmóðig, Stafrænan Hákon, Ham, Reykja-
vík!, Prinspóló, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinn-
ar, Árstíðir, Láru og Jóhann Jóhannsson.
Af erlendum listamönnum sem boðað hafa komu
sína má nefna finnsku hljómsveitina 22-Pistepirkko,
skosku rokkarana í The Twilight Sad, hljómsveitirn-
ar Rich Aucoin og Esmerine frá Kanada og Veronice
Falls frá Bretlandi.
Lista yfir allar hljómsveitirnar og listamennina
má finna á heimasíðu hátíðarinnar, iceland-
airwaves.is. Lokadagskrá Airwaves verður kynnt
um miðjan september en hátíðin fer fram 12.-16.
október.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að aðeins
séu nokkur hundruð miðar eftir á hátíðina í ár. Yfir
60 prósent miða sem selst hafa eru til erlendra gesta
og verða þeir fleiri en nokkru sinni en fyrr. Sala á
miðum er fjórföld í ár miðað við sama tíma í fyrra.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar, sagði í samtali við Fréttablaðið að Listasafnið í
Reykjavík, Hafnarhúsið, yrði eftir sem áður meðal
tónleikastaða á Airwaves. Áður hafði því verið lýst
yfir að með tilkomu Hörpu væri ekki þörf á Hafnar-
húsinu. Grímur segir að Björk Guðmundsdóttir
leggi undir sig tónleikasalinn Silfurberg í Hörpu í
heilan mánuð og því sé aftur þörf á stórum tónleika-
stað. Minni salirnir í Hörpu nýtist þó vel, til dæmis
fyrir lágstemmda tónleika, og auki fjölbreytni
hátíðar innar. - hdm
50 bönd til viðbótar á Airwaves
THE TWILIGHT SAD Skoska rokksveitin The Twilight Sad er
meðal þeirra hljómsveita sem boðað hafa komu sína á
Iceland Airwaves-hátíðina í október. Tilkynnt var um 50
listamenn og hljómsveitir í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
Kvikmyndin Let England Shake
verður sýnd í flokki tónlistar mynda
á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
Reykjavík sem hefst 22. september
næstkomandi. Let England Shake
er samansett úr tólf stuttmyndum
sem hver og ein á við samsvarandi
lag á samnefndri plötu PJ Harvey
sem kom út fyrr á árinu.
Efni plötunnar snýst í aðal-
atriðum um bölið sem stríðsrekst-
ur er fyrir þjóðir heims, og sækir
hún innblásturinn ekki síst til
hörmunga fyrri heimsstyrjaldar-
innar.
Það þótti því ríma vel við umfjöll-
unarefnið að fá fréttaljósmyndar-
ann Seamus Murphy til að leikstýra
stuttmyndunum tólf. Harvey sá
sýningu Murphy með myndum frá
Afganistan og öðrum stríðshrjáð-
um ríkjum í Mið-Austurlöndum
meðan á upptökum plötunnar
stóð og ákvað hún þegar í stað að
fá hann til liðs við sig. Murphy er
margverðlaunaður fréttaljósmynd-
ari en Let England Shake er fyrsta
verkefnið af þessu tagi sem hann
tekur að sér.
Aðrar myndir í flokki tónlistar-
mynda á RIFF 2011 eru LENNO-
NYC eftir Michael Epstein, Scenes
From The Suburbs eftir Spike Jonze
sem byggir á plötu Arcade Fire, The
Suburbs; In the Garden of Sounds
eftir Nicola Bellucci, Beats, Rhymes
& Life sem segir frá hljómsveitinni
A Tribe Called Quest, The Miners‘
Hymns sem skartar tónlist Jóhanns
Jóhannssonar, Mr Carey‘s Concert
eftir Bob Connolly og Sing Your
Song sem fjallar um söngvarann
og mannréttindafrömuðinn Harry
Belafonte.
Let England Shake sýnd á RIFF
PJ HARVEY Kvikmyndin Let England
Shake, sem samanstendur af tólf stutt-
myndum við lög samnefndrar plötu PJ
Harvey, verður sýnd á RIFF sem hefst í
næsta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
FIMMTUDAGUR: ANIMAL KINGDOM 20:00, 22:10 KILLING BONO 20:00,
22:10 MONSTERS 18:00 HOWL 20:00, 22:00 DRAUMALANDIÐ (DREAM-
LAND) 18:00 MÁVAHLÁTUR (SEAGULL’S LAUGHTER) 20:00 Á KÖLDUM
KLAKA (COLD FEVER) 22:00
ÍSLENSKUR TEXTI / ENGLISH SUBTITLES
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDA-
MIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS / www.bioparadis.is / midi.is
COWBOYS & ALIENS 5, 8 og 10.20(POWER)
STRUMPARNIR - 3D 4 og 6 - ISL TAL
STRUMPARNIR - 2D 4 og 6 - ISL TAL
CAPTAIN AMERICA - 3D 10.30
BRIDESMAIDS 7.30 og 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
T.V. - kvikmyndir.is
T.V. - kvikmyndir.is
POWER
SÝNING
KL. 10.2
0
T.V. - kvikmyndir.isH.V.A. - FBL
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA IRON MAN
M.M.J - kvikmyndir.is
SÝND Í
2D OG 3D
ÍSLENSKT TAL
www.laugarasbio.is
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
SÝND Í 2D OG 3D
MEÐ ÍSLENSKU TALI
OG ENSKU TALI Í 2D
RÓMANTÍSK STÓRMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
STRUMPARNIR FARA Á KOSTUM!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
“ÓMISSANDI EPÍSK
RÓMANTÍK!”
- HARPER’S BAZAAR
5%
NE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
ONE DAY LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 5.25 - 10.20 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 8 - 10.20 12
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 8 - 10.20 12 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 6 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 8 - 10.15 14
CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 12
RISE OF THE PLANET OF THE APES KL. 6 - 10.15 12
ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 5.40 L
THE SMURFS 2D ENS. TAL KL. 5.40 - 8 - 10.20 L
CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 - 10.35 12
RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 5.40 - 8 - 10 20 12
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
ÁLFABAKKA
V I P
V I P
12
12
14
14
12
L
L
7
7
L
EGILSHÖLL
12
12
12
12
12
12
10
12
12
12
L
L
AKUREYRI
GREEN LANTERN- kl. 5:40 - 10:30 3D
LARRY CROWNE Íslandsfrumsýnd kl. 8 2D
CARS 2 BÍLAR 2 ÍSL. TAL kl. 5:40 2D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D
HARRY POTTER kl. 10:10 2D
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D
LARRY CROWNE LUXUS VIP kl. 8 - 10.20 2D
COWBOYS & ALIENS kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D
GREEN LANTERN kl. 5:40 - 8 - 10.20 2D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D
HORRIBLE BOSSES LUXUS VIP kl. 5.30 2D
BÍLAR 2 M/ ísl. Tali kl. 5.30 3D
BÍLAR 2 M/ ísl. Tali kl. 5.30 2D
HARRY POTTER kl. 8 - 10.40 2D
L
L
KRINGLUNNI
12
LARRY CROWNE kl. 6 - 8 - 10:10 2D
SMURFS M/ ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50 3D
SMURFS M/ ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50 2D
GREEN LANTERN kl. 10.30 3D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D
HARRY POTTER kl. 8 3D
BÍLAR 2 M/ ísl. Tali kl. 3:30 3D
STÓRKOSTLEGAR
TÆKNIBRELLUR
14
12
12
L
L
L
L
LARRY CROWNE
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND
JULIA ROBERTSTOM HANKS
SELFOSS
COWBOYS & ALIENS kl. 8 - 10.30
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8
GREEN LANTERN kl. 10.30
THE SMURFS m/ísl tali kl. 2:30 - 5 3D
COWBOYS & ALIENS kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THE SMURFS m/ísl tali kl. 2:30 - 5 2D
RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:30 2D
BÍLAR 2 m/ísl tali kl. 2:30 3D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D
CAPTAIN AMERICA kl. 10:20 3D
BÍLAR 2 m/ísl tali kl. 2:30 2D
GREEN LANTERN kl. 5:20 - 10:45 3D
HARRY POTTER kl. 8 3D
Box of Magazine
14
14
7
KEFLAVÍK
LARRY CROWNE kl. 8 2D
COWBOY’S & ALIENS kl. 10:20 2D
HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D
BAD TEACHER kl. 10:10 2D 12
Tvö leikverk verða frum-
sýnd á fjölum Gamla bíós
í haust. Fræg íbúð á efstu
hæð hússins verður til leigu
undir listasýningar og mót-
tökur.
„Við röltum oft framhjá þessu
virðulega húsi og veltum fyrir
okkur hvað yrði um það. Við sótt-
um um að fá það leigt og erum
hæstánægð með að opna það að
nýju,“ segir Signý Eiríksdóttir
verkefnastjóri Leikhúsmógulsins.
Signý ætlar, ásamt bróður sínum
Óskari Eiríkssyni, framkvæmda-
stjóra Leikhúsmógúlsins, að blása
nýju lífi í gamla húsnæði Íslensku
óperunnar við Ingólfsstræti eða
Gamla bíó.
„Íslensku óperunni var mikið í
mun að það yrði áfram menningar-
tengd starfsemi í húsinu. Við erum
smám saman að komast í gang og
ráða fólk,“ segir Signý og bætir við
að húsið sjálft hafi útgeislun sem
er engri lík. „Það er eitthvað alveg
sérstakt við það að vera í Gamla
bíói, saga hússins og hvernig það
hefur verið varðveitt gefur því
glæsibrag sem einfaldlega er ekki
til annars staðar á landinu.“
Leikhúsmógúllinn er fyrirtæki
sem einbeitir sér að framleiðslu
og uppsetningu leiksýninga út um
allan heim. Fyrirtækið var stofnað
árið 2000 á Íslandi en er nú með
útibú í Þýskalandi, Sviss og Banda-
ríkjunum.
„Rekstur Gamla bíós er mikil-
vægur en aðeins hluti af starf-
semi okkar. Húsið verður fyrst og
fremst notað sem leikhús en það
verða aðrir viðburðir í húsinu í
vetur svo sem tónleikar, danssýn-
ingar og ýmiss konar listviðburð-
ir,“ segir Óskar.
Tvö leikverk verða frumsýnd í
Gamla bíó í haust, „Sexy Laundry“
í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdótt-
ur og glænýr íslenskur gaman-
söngleikur byggður á hljómplötu
Hrekkjusvínanna „Lög unga fólks-
ins“ frá 1977.
Á efstu hæð Gamla bíós er íbúð
en þar er að finna einar stærstu
svalir Reykjavíkur með útsýni
yfir alla borgina. „Íbúðin á efstu
hæð verður notuð í tengslum við
leiksýningar og æfingar fyrst
um sinn en hugmyndin er að það
verði hægt að leigja hana undir
móttökur, listasýningar og fleira
seinna í vetur. Ætlunin er líka að
opna húsið meira fyrir almenningi
og jafnvel koma fyrir borðum og
stólum í anddyrinu þar sem fólk
getur komið við, fengið kaffi og
spjallað.“ alfrun@frettabladid.is
Blása nýju lífi í Gamla bíó
LEIKHÚSMÓGULLINN Systkinin Signý og Óskar Eiríksbörn hlakka til að opna Gamla
bíó á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI