Fréttablaðið - 18.08.2011, Side 70
18. ágúst 2011 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
RÚRIK GÍSLASON var í í byrjunarliði danska liðsins OB sem vann góðan 1-0 sigur á Villarreal í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í gær. Rúrik lék fyrstu 81 mínútu leiksins en sigurmark OB kom stuttu síðar eftir að þeir
spænsku höfðu fengið fjölmörg tækifæri til að skora. Liðin mætast aftur í næstu viku, þá á Spáni.
FÓTBOLTI Rauðu spjöldin hafa svo
sannarlega farið á loft í leikj-
um FH-inga í Pepsi-deild karla í
sumar en þau eru orðin alls sjö í
fimmtán leikjum. FH-ingar hafa
fengið fjögur rauð sjálfir og mót-
herjar þeirra hafa þrisvar sinnum
verið sendir snemma í sturtu. Nú
er svo komið að það hefur vantað
leikmann í annað liðið í leikjum
FH í samtals 254 mínútur í sumar.
FH-ingar kunna líka það liða
best að spila manni fleiri og manni
færri ef marka má tölfræði liðsins
við slíkar aðstæður í sumar. FH-
ingar eru með markatöluna 5-2
þær 152 mínútur sem þeir hafa
spilað ellefu á móti tíu og eru líka í
plús þegar þeir hafa misst mann af
velli. Pétur Viðarsson hefur feng-
ið tvö rauð spjöld í síðustu fjór-
um leikjum FH en FH-liðið hefur
unnið þá báða, fyrst 3-2 sigur á
Val og svo 3-1 sigur á Víkingum.
Markatala FH-liðsins manni færri
í þessum tveimur leikjum er 3-0.
FH-ingar eru reyndar í 2. sæti yfir
bestu markatölu liða sem spila tíu
á móti ellefu en Stjörnumenn eru
þar efstir á blaði með markatöluna
3-1.
Nýliðar Þórs og Víkings reka
hins vegar lestina þegar kemur að
því að nýta sér liðsmuninn. Þórs-
arar hafa reyndar bara lent einu
sinni í slíkri aðstöðu og fengu þá
á sig þrjú mörk á móti Stjörnunni.
Víkingar hafa aftur á móti þrisv-
ar sinnum tapað leik í Pepsi-deild-
inni í sumar þar sem liðið hefur
verið manni fleiri í heilan hálfleik
eða lengur. Víkingar hafa tapað
síðustu tveimur leikjum sínum
undir þessum kringumstæðum
(á móti KR 2-3 og FH 1-3) og þeir
lágu einnig á móti Val í júní (1-2)
þrátt fyrir að vera ellefu á móti tíu
í meira en klukkutíma.
Víkingar hafa alls verið manni
fleiri í 174 mínútur í sumar en
markatala þeirra á þessum tíma
er 2-5 mótherjum þeirra í hag.
Hér fyrir neðan má sjá marka-
tölu liðanna í deildinni þegar þau
spila ellefu á móti tíu eða tíu á móti
ellefu. - óój
Sjö rauð spjöld hafa farið á loft í fimmtán leikjum FH-liðsins í Pepsi-deild karla í fótbolta í sumar:
Góðir bæði manni fleiri og manni færri
PÉTUR VIÐARSSON Hefur fengið tvö rauð spjöld á stuttum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Helsta vandamál knatt-
spyrnunnar í dag er leikara skapur.
Óheiðarlegir knattspyrnumenn
sem reyna að svindla á vellinum.
Vandamálið hefur vaxið mikið á
síðustu árum og nú er svo komið
að leikaraskapur er orðinn helsta
krabbamein fótboltans.
Nú síðast kom upp atvik í leik
Víkings og FH þar sem fram-
herji Víkings gerði sig sekan um
fádæma leikaraskap og það ekki
bara einu sinni heldur tvisvar á
aðeins nokkrum sekúndum.
Leikmaður FH gerði sig aftur
á móti sekan um afar heimsku-
lega hegðun. Um það verður ekki
deilt. FH-ingurinn fór fyrir vikið
í tveggja leikja bann en svindlar-
inn sleppur með skrekkinn. Það er
eitthvað verulega rangt við þessa
mynd.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
slíkt kemur upp í sumar. Meðal
annars varð einn leikmaður FH
uppvís að svindli í sumar, þar
sem hann blekkti dómarann vilj-
andi. Sami leikmaður hefur síðan
hraunað yfir dómara í sumar fyrir
að standa ekki sína plikt. Dómur-
um er vorkunn á meðan óheiðar-
legir leikmenn reyna að villa um
fyrir þeim og gera erfitt starf enn
erfiðara.
Engin refsing fyrir svindlara
Þó svo að ég hafi aðeins tínt til
þessi atvik eru svo sannarlega
fleiri leikmenn í efstu deild á
Íslandi með svarta samvisku.
Enginn þeirra hefur þurft að sæta
refsingu fyrir svindlið.
Ég er ekki einn um að vera kom-
inn með algjörlega upp í kok af
þessum óheilindum knattspyrnu-
manna. Ástandið er að mínu mati
orðið svo slæmt að átak þarf til
innan hreyfingarinnar svo hægt
sé að losa þessa fallegu íþrótt við
krabbameinið.
Þar þurfa bæði félögin og KSÍ
að koma að málum. KSÍ þarf að
endurskoða regluverk sitt svo
komi megi böndum yfir svindlar-
ana. Það gengur ekki að þeir sleppi
alltaf. KSÍ þarf að nýta sér mynd-
bandsupptökur og refsa svindlur-
unum grimmilega. Að öðrum kosti
hætta menn ekki.
KSÍ er í heljarinnar krossferð
gegn munntóbaksnotkun með þeim
formerkjum að leikmenn séu fyrir-
myndir og líklegt sé að ungviðið api
ósiðinn upp eftir þeim.
Ekkert er nema gott og
blessað um það átak að
segja. Betur má ef duga
skal og nú vil ég sjá
alvöru átak gegn svindli.
Á ekki að vera hluti af
leiknum
Við fjölmiðlamenn þurf-
um einnig að líta í eigin
barm og vera óhræddari
við að gagnrýna svindl-
arana og láta þá svara
til saka fyrir gjörðir
sínar. Leikaraskapurinn
er orðinn það stór hluti
af leiknum að fjölmiðla-
menn hafa jafnvel fallið
í þá gryfju að hrósa svindlurun-
um fyrir klókindi. Það er algjör-
lega ólíðandi en segir ansi margt
um hversu alvarlegt vandamálið
er. Menn eru farnir að
viðurkenna þessa hegð-
un sem hluta af leikn-
um í stað þess að berjast
gegn henni.
Á meðan KSÍ tekur
ekki á svindlurun-
um væri gaman að sjá
félögin setja sér sínar
eigin siðareglur og
bregðast við svindli
sinna leikmanna með
refsingum. Leikmanna
sem eru fyrirmyndir
yngri leikmanna félags-
ins.
Það er nógu slæmt að
ungviðið þurfi að horfa
upp á Ronaldo og félaga
velta sér upp úr grasinu og skæla
við minnstu snertingu eða jafnvel
enga. Hinar íslensku fyrirmyndir
þurfa ekki að fara sömu leið.
Það sem ungur nemur …
Ef leikmenn halda áfram að
svindla er ansi líklegt að ung-
viðið api upp eftir þeim ósiðinn og
þá mun svindlið verða eðlilegur
hluti af leik ungra knattspyrnu-
manna. Þá fyrst er íslensk knatt-
spyrna komin í stórkostleg vand-
ræði. Átaks er þörf og einnig er
þörf á hugarfarsbreytingu hjá
öllum þeim sem að knattspyrn-
unni koma.
UPPRÆTA ÞARF KRABBAMEINIÐ
Óheiðarlegir knattspyrnumenn sem svindla á vellinum eru að verða stærsta vandamál íþróttarinnar.
Leikaraskapur er orðinn eðlilegur hluti af leiknum og það sem meira er – svindlurunum er aldrei refsað.
ALGENG SJÓN Knattspyrnumaður Joey Barton, leikmaður Newcastle, liggur „sárþjáður” í grasinu eftir að andstæðingur kom við
andlit hans. Það er algengt að sjá leikmenn gera meira úr meiðslum sínum en tilefni er til. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Það gengur
ekki að
svindlar-
arnir sleppi
alltaf. KSÍ
þarf að nýta
sér mynd-
bandsupp-
tökur og refsa
svindlurunum
grimmilega.
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
UTAN VALLAR
Ellefu á móti tíu í sumar
FH +3 (5-2, 152 mín.)
Breiðablik +3 (3-0, 95)
KR +2 (3-1, 99)
Grindavík +2 (2-0, 58)
Keflavík +1 (1-0, 3)
Fram +1 (1-0, 12)
Fylkir 0 (0-0, 2)
Valur -3 (0-3, 78)
Þór Ak. -3 (0-3, 43)
Víkingur -3 (2-5, 174)
ÍBV ekkert rautt
Stjarnan ekkert rautt
Tíu á móti ellefu í sumar
Stjarnan +2 (3-1, 75 mín.)
FH +1 (3-2, 102)
KR +1 (2-1, 57)
Valur +1 (2-1, 64)
Þór 0 (2-2, 45)
Víkingur 0 (0-0, 1)
ÍBV -1 (1-2, 103)
Keflavík -1 (0-1, 84)
Fylkir -1 (0-1, 26)
Grindavík -2 (0-2, 69)
Breiðablik -3 (1-4, 94)
Fram ekkert rauttRakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Pepsi-deild kvenna
Grindavík - Þróttur 3-2
1-0 Dernelle L. Mascall (34.), 2-0 Mascall (45.),
3-0 Shaneka Gordon (71.), 3-1 Guðlaug Rut
Þórsdóttir (81.), 3-2 Alexandra Toth (90.).
Upplýsingar frá Fótbolti.net
Meistaradeild Evrópu
FORKEPPNI, FYRRI LEIKIR
Odense BK - Villarreal 1-0
1-0 Hans Henrik Andreasen (84.)
Bayern München - FC Zürich 2-0
1-0 Bastian Schweinsteiger (8.), 2-0 Arjen
Robben (72.).
Wisla Krakow - Apoel Nicosia 1-0
Maccabi Haifa - Genk 2-1
Dinamo Zagreb - Malmö FF 4-1
Sænska úrvalsdeildin
Linköping - Örebro 0-2
Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðars-
dóttir léku báðar allan leikinn fyrir Örebro.
Hammarby - Kristianstad 1-0
Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðins-
dóttir og Sif Atladóttir léku allan leikinn fyrir
Kristianstad. Erla Steina Arnardóttir kom inn á
sem varamaður á 72. mínútu.
FC Malmö - Jitex 5-0
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði þrennu fyrir
Malmö. Hún lék allan leikinn, rétt eins og Þóra B.
Helgadóttir, markvörður.
Umeå - Piteå 2-2
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Sara Björk Gunnars-
dóttir skoraði þrennu þegar lið
hennar, Malmö, vann 5-0 sigur
á Jitex í sænsku úrvalsdeildinni
í gær. Þetta er í annað skiptið á
tímabilinu sem Sara Björk skor-
ar þrjú mörk í einum og sama
leiknum.
„Ég fann mig vel í kvöld en
við höfum átt nokkuð erfitt upp-
dráttar eftir að deildin fór aftur
af stað eftir HM-frí,“ sagði Sara
Björk við Fréttablaðið í gær. „Við
vorum búnar að tapa og gera
jafntefli í leikjunum á undan en
við erum vonandi komnar á gott
ról, eins og við vorum á fyrir
sumarfríið.“
Malmö komst á topp deildar-
innar í gær þar sem Umeå gerði
á sama tíma jafntefli. Liðin eru
jöfn að stigum en Malmö er með
betra markahlutfall. Malmö er
ríkjandi meistari og segir Sara
Björk að stefnan sé vitanlega sett
á að verja hann.
Hún er á sínu fyrsta tímabili
í Svíþjóð og líður vel ytra. „Ég
hef það mjög gott. Ég var búin að
hugsa lengi um að koma mér út
og spila í stærri deild. Ég sé alls
ekki eftir þeirri ákvörðun.“ - esá
Sara Björk Gunnarsdóttir:
Skoraði þrennu
í annað skiptið
TVÆR ÞRENNUR Sara Björk er á sínu
fyrsta tímabili í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN