Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 12

Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 12
12 27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir N Skráning og fyrirspurnir í símum 53401100, 8220043 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is N á n a r i u p p l ý s i n g a r : w w w . k m s . i s Vellíðan án lyfja með verkfærum sálfræðinnar SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Fram undan eru miklar umræður um rammaáætl-un um verndun og nýtingu orkulindanna sem unnið hefur verið að í meir en áratug. Þetta er merk tilraun. Tilgangur- inn er að tryggja jafnvægi milli ólíkra sjónarmiða á þessu sviði. Mun það takast? Réttmæt athugasemd Jóns Gunnarssonar alþingismanns um Norðlingaölduveitu nú í vikunni beinir athyglinni að tvíþættu póli- tísku álitaefni sem menn standa andspænis. Annað er spurning- in um virðingu fyrir pólitískum sáttaniðurstöðum. Hitt er hvort líklegt megi telja að jafnvægi náist þegar undirtökin í landsstjórninni eru í höndum þeirra sem hafa þrengsta sýn á nýtingu. Fyrir nokkr- um árum kvað Jón Kristjáns- son, þá sett- ur umhverfis- ráðherra, upp ú rsk u rð u m Norðlingaöldu- veitu sem hélt Þjórsárverum með öllu utan við veituna. Skiljanlegt var að menn áttu þá erfitt með að una þessari ákvörðun út frá nýtingar- hagsmunum því að meiri mála- miðlunarkostir voru vissulega færir. En róttæk verndun var niðurstaðan. Hún lýsir í reynd afar merkri pólitískri ákvörðun. Nú er þessum mjög svo tak- markaða en um leið hagkvæma nýtingarkosti á Norðlingaöldu ýtt út af borðinu. Sátt fær ekki að standa. Í áætluninni eru nýtingar- hagsmunir virkjana í neðri hluta Þjórsá taldir ríkari en verndunar- sjónarmiðin. Eigi að síður bendir flest til að VG muni eftir öðrum leiðum bregða fæti fyrir virkjanir á því svæði. Hættan er sú að þeir sem þrengsta sýn hafa á orkunýtingu líti á rammaáætlunina sem áfanga en ekki niðurstöðu. Það getur leitt til sömu afstöðu frá hinni hliðinni. En sé það svo að öfgasjónarmiðin uni aldrei niðurstöðum sem fela í sér málamiðlanir er til lítils unnið. Sátt fær ekki að standa Hin hliðin á þessum póli-tíska vanda er svarið við spurningunni: Hvers vegna ráða öfgarnar svo miklu sem raun ber vitni að undan- förnu? Endurspeglar Alþingi ekki þær meðalhófshugmyndir sem virðast ráðandi úti í samfélaginu? Með hæfilegri einföldun má segja að vandinn felist í þeirri lykilstöðu sem VG er komið í með því að ríkis- stjórn verður ekki mynduð án þess. Í byrjun kjörtímabilsins ákvað Samfylkingin að fórna þeim frjáls- lyndu sjónarmiðum sem hún var stofnuð um til þess að geta hafið samstarf við VG. Það byggðist á málamiðlun um ESB-aðildarum- sókn sem ekki var líklegt að þeir tveir flokkar gætu lokið. Nú hafa báðir stjórnarandstöðuflokkarn- ir sett fram þá úrslitakosti fyrir stjórnarsamvinnu, hvort heldur er fyrir eða eftir kosningar, að aðild- arviðræðunum verði tafarlaust slitið. Þetta þýðir að þeir geta bara unnið með VG. Allir flokkarnir þrír sem með einhverjum hætti eiga lönd að miðju stjórnmálanna hafa þannig talið rétt að fórna möguleikum á breiðu samstarfi á þeim málefna- vettvangi. Þar liggja þó tækifærin til þess að ná sátt um hófsamleg sjónarmið varðandi nýtingu orku- lindanna og hraðari hagvöxt en ella er kostur á. Þetta er í hnotskurn sú málefnakreppa sem stjórnmálin eru föst í. Þegar málamiðlun hefur verið útilokuð á einu sviði leiðir það oft til þess að hún er ekki fær á öðrum sviðum. Veruleg hætta er því á að meirihlutasjónarmið um hóf- sama nýtingarstefnu verði fyrir borð borin. Á miðju stjórnmál- anna og til hægri sýnist vera ríkur stuðningur við hófsama orkunýt- ingu. Þau sjónarmið gætu þó sem hægast frosið úti vegna pólitísku málefnakreppunnar. Hvers vegna ráða öfgarnar? Andstaða VG gegn orku-nýtingu gengur mun lengra en unnt er að rökstyðja með tilvísun í náttúruvernd. Meginrök flokksins byggjast á staðhæfingum um að engin þörf sé á þeim hagvexti sem aðrir sækjast eftir með hóflegri nýtingu. Í raun snúast deilurnar um þá staðhæfingu. Íhaldssemi varðandi röskun á náttúru landsins er góð og gild. Íhaldssemi er einnig réttmæt þegar kemur að hagvexti. Kjarni málsins er hins vegar sá að hvergi er gengið nærri þessum sjónar- miðum varðandi þau úrlausnarefni sem við blasa til að reisa þjóðar- búskapinn við eftir hrun. Það skýrist best með því að jafn- vel forystumenn VG nefna ekki lengur að útflutningstekjur vegna þeirrar verðmætasköpunar sem leitt hefur af Kárahnjúkavirkjun séu til óþurftar. Hefði VG tekist að stöðva þá framkvæmd væru alvar- legir þverbrestir þegar komnir í velferðarkerfið. Vandinn er hins vegar sá að brestirnir eru að byrja að mynd- ast vegna þess að hófsöm nýtingar- stefna er þrátt fyrir þessa reynslu nú forboðin. Fyrir þá sök er hag- vöxtur ekki nægur til að standa undir velferðarkerfinu til fram- búðar. Nú liggur valdið hjá VG; líka ábyrgðin á velferðinni. Án hagvaxtar brestur hún. Þetta er pólitískt baksvið þeirr- ar umræðu sem nú hefst um rammaáætlunina. Hún verður ekki slitin frá þeim veruleika. Hagvöxtur og velferð F orsætisráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þess efnis að Ísland hefði „útskrifast“ úr efnahagsáætl- un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fyrst allra ríkja í yfir- standandi alþjóðafjármálakreppu. Hvort Ísland hefði útskrifast í sama skilningi og nemandi úr skóla eða sjúklingur af spítala fylgdi ekki sögunni. Hún virðist ansi fjarri, minningin um það þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fór þess á leit við sjóðinn að hann hlypi undir bagga með rík- inu eftir að bankakerfi landsins hrundi eins og spilaborg haustið 2008. Þá mætti umsóknin um neyðarlán til AGS tortryggni, kannski eðlilega í ljósi sögu hans í þróunarlöndum. „Alls staðar þar sem Alþjóðagjald- eyrissjóðinn hefur borið niður hefur hann sett skilyrði um félags- legar breytingar og markaðslausnir,“ sagði til dæmis Ögmundur Jónasson haustið 2008. „Það má eitthvað hafa breyst ef hann hefði uppi aðra stefnu hér.“ Þremur árum síðar eru helstu von- brigði margra að hrunið hafi einmitt ekki fætt af sér róttækar félagslegar breytingar. Forvitnilegt er að flestir sem komu að málum þegar umsóknin að AGS var rædd hafa kúvenst í afstöðu sinni og gerðist það nokkurn veginn um sama leyti og ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hrökklaðist frá völdum og VG fyllti skarð fyrr- nefnda flokksins. Bjarni Benediktsson fagnaði samstarfinu, svo vildi hann slíta því; Steingrímur J. taldi samkomulagið færa AGS allt of mikil völd en sem fjármálaráðherra hefur hann verið einn ötulasti verjandi sjóðsins; Framsóknarflokkurinn studdi upphaf- lega samstarfið en hefur fundið því flest til foráttu eftir að nýr formaður tók við. Nú þegar samstarfinu er lokið er viðbúið að áframhaldandi karp taki við; ríkisstjórnin mun reyna að fegra stöðuna en stjórnarandstaðan mála skrattann á vegginn. Þótt ekki skuli gera lítið úr þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum þremur árum er þetta engu að síður að mörgu leyti glataður tími. Hvort það er vegna samstarfsins við AGS eða þrátt fyrir það skal ósagt látið, hugsanlega hefur verið einblínt á fjár- lagahallann á kostnað þess að grisja fyrirtækjamarkaðinn. Staðreyndin er nefnilega sú að hér varð í rauninni ekki „algjört hrun“, eins og stundum er sagt, því allt of mörg illa rekin og/eða allt of skuldsett fyrirtæki voru ekki einfaldlega látin gossa og fara í gjaldþrot. Markaðslögmálunum var ekki leyft að virka. Ein fáránlegasta birtingarmynd þess er fasteignamarkaður- inn; þrátt fyrir að hann sé hruninn er verðlag litlu lægra en á þensluárunum og reyndar hærra fyrir þá sem leigja. Formlegur viðskilnaður við AGS markar ákveðin kaflaskipti í eftirleik hrunsins. Við erum búin að bjarga okkur fyrir horn en þurfum nú að fara að byggja okkur aftur upp. Verkefni stjórn- málamanna er að koma sér saman um skýra og raunhæfa stefnu um hvernig hér sé hægt að búa fólki mannsæmandi líf. Hér reyn- ir eðli málsins samkvæmt meira á þá sem hafa völdin, stjórnar- flokkana. Ef þeir ráða ekki við það verkefni er hugsanlega rétt að slíta fleiru en samstarfinu við AGS. Samstarfi Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lokið: Hvað svo? SKOÐUN Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.