Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 28

Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 28
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR28 Þ etta var hreint út sagt frábært og ótrú- lega skemmtilegt að fá að kynnast land- inu á þennan hátt. Við höfum lært um þessa hluti í skóla, en það er líka heilmikill skóli að sjá þessi hús í návígi,“ segir Steinunn Eik Egilsdóttir, BA í arki- tektúr frá Listaháskóla Íslands (LHÍ). Steinunn er einn þátttak- enda í rannsóknarverkefninu Eyði- býli á Íslandi, en tilgangur þess er að koma á fót gagnagrunni með yfirgripsmiklum upplýsingum um eyðibýli og yfirgefin hús á landinu. Mikilvægar heimildir Að sögn Steinunnar á verkefnið sér nokkurn aðdraganda, því á annað ár hafði hópur áhugasamra velt því fyrir sér á hvaða hátt væri hentug- ast að blása lífi í gömul og yfirgef- in hús á landsbyggðinni. Aðstand- endur fyrirtækjanna R3-Ráðgjöf og Glámu-Kím arkitekta ásamt Ómari Bjarka Smárasyni jarðfræðingi mynduðu undirbúningshóp haustið 2010. Hópurinn sótti um styrki og fékk nokkra. Þá sóttu, að frumkvæði undir- búningshópsins, fimm háskólanem- ar um styrki frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að sinna rannsókn- arvinnunni. Sá styrkur fékkst og því eyddu þau Steinunn Eik, Arn- þór Tryggvason og Yngvi Karl Sigurjónsson, sem öll voru úrskrift- arnemar í arkitektúr við LHÍ, Birk- ir Ingibjartsson, BS í verkfræði og nemi á öðru ári í arkitektúr við LHÍ og Árni Gíslason, BA í stjórnmála- fræði og meistaranemi á fyrra ári í MPA við Háskóla Íslands, tveim- ur mánuðum í sumar við rann- sóknir í þremur sýslum landsins, Austur-Skaftafellssýslu, Vestur- Skaftafellssýslu og Rangárvalla- sýslu. Þessa dagana vinna þau að úrvinnslu rannsóknarinnar. „Þetta eru upplýsingar sem hingað til hafa ekki verið til,“ segir Steinunn Eik. „Þetta eru hús sem mörg hver gætu farið að glatast. Í dag þykir okkur gömlu torfhúsin og húsakynnin sem hafa verið grafin upp afar merkileg. Eftir fimmtíu eða hundrað ár verða það þessi hús sem við rannsökuðum sem verða hluti af menningarsögu okkar, og því mikilvægt að varðveita heimildir um þau.“ Fundu falda gullmola Hópurinn ferðaðist um ofannefndar sýslur, allt frá Lóni í Hornafirði að Ásahreppi í grennd Hellu, og skráði á því svæði alls 103 eyðibýli eða yfirgefin hús. Gögnin voru svo færð inn í sérstakt skráningarform sem hannað var í samstarfi við Þjóð- minjasafnið og Húsafriðunarnefnd. „Við skráðum niður eins mikið af sögu húsana og við komumst í,“ útskýrir Steinunn. „Við könnuðum ástand þeirra, byggingarstíl, stað- hætti, áhugaverðar staðreyndir og tókum kerfisbundið ljósmyndir af öllum hliðum þeirra, svo fátt eitt sé nefnt. Gögnin eru því skrifleg og myndræn. Höfuðáhersluna leggj- um við á varðveislugildið og nýt- ingarmöguleika, hvort mögulegt sé að gera húsin upp og þar fram eftir götunum. Undirliggjandi er einnig sú spurning hvort hugsan- legt sé að nýta þessar upplýsingar í tengslum við ferðaþjónustu. Þann- ig væri til að mynda hægt að gera ákveðin hús upp að mismiklu leyti, nota sem gistihús fyrir ferðamenn og skapa þannig nýja upplifun í íslenskri ferðaþjónustu.“ Reglan var sú að hópurinn keyrði upp að hverjum einasta sveitabæ á rannsóknarsvæðinu til að kanna hvort yfirgefin hús leyndust bak við sveitabæi. Sú var oft og tíðum raunin, að sögn Steinunnar. „Þannig fundum við marga falda gullmola. Þetta var mikil nákvæmnisvinna en óskaplega skemmtilegt. Við höfum verið í samstarfi við sveitarfélög, sem hafa skaffað okkur húsnæði, til dæmis gistingu í félagsheimil- um, og þegið margan kaffisopann og með því hjá íbúum á svæðinu. Allir tóku mjög vel á móti okkur og höfðu ekkert á móti því að segja okkur frá umhverfi sínu á ítarlegan hátt,“ segir Steinunn Eik. Vonar að starfið haldi áfram Eyðibýlin og yfirgefnu húsin voru eins misjöfn og þau voru mörg, að sögn Steinunnar. „Sum þeirra voru pinkulítil, kannski í mjög slæmu ásigkomulagi og erfitt að þefa uppi heimildarmenn um þau, og í næstu andrá vorum við að skoða hótel í Fljótshlíð frá árinu 1898 með ótrú- lega byggingarsögu. Oft eru það þó hrörlegustu húsin sem vekja hjá okkur mestan áhuga. Það eru marg- ar leiðir til að varðveita hús og veita þeim nýtt líf, og hugmyndirnar sem kviknuðu hjá okkur í rannsókninni voru óteljandi.“ Steinunn segir í raun enn óljóst hvort og þá hvernig niðurstöð- ur rannsóknarinnar verði gerðar aðgengilegar almenningi. „Vonir okkar standa til þess að skýrslan verði gefin út á einhvern hátt, en þó fyrst og fremst til þess að hún verði notuð til að tryggja fleiri styrki til að halda verkefninu gang- andi. Nú höfum við rannsakað um 1/10 af undirlendi Íslands og því mikið eftir. Ég vona að hægt verði að rannsaka allt landið á þennan hátt og sjálf hef ég mikinn áhuga á að taka þátt í því starfi,“ segir Steinunn Eik. Allir tóku mjög vel á móti okkur og höfðu ekkert á móti því að segja okkur frá umhverfi sínu á ítarlegan hátt Hluti af menningarsögu okkar MÚLAKOT Í Fljótshlíð, sem var áður heimili og hótel. MYND/ÁRNI GÍSLASON HNAPPAVELLIR Í Öræfum. MYND/BIRKIR INGIBJARTSSON BALDURSHAGI Nærri Höfn í Hornafirði. MYND/ARNÞÓR TRYGGVASON ÞÓRISDALUR Í Hornafirði. MYND/ÁRNI GÍSLASON Steinunn Eik Egilsdóttir, BA í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands, er ein þeirra sem í sumar rannsökuðu eyðibýli og yfirgefin hús á Suður- og Suðausturlandi. Kjartan Guðmundsson ræddi við hana um varðveislugildi húsanna og möguleika til nýtingar. MARGAR HUGMYNDIR „Það eru margar leiðir til að varðveita hús og veita þeim nýtt líf,“ segir Steinunn Eik Egilsdóttir um rannsóknina á eyðibílum og yfir- gefnum húsum sem fram fór í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.