Fréttablaðið - 27.08.2011, Page 39
Siggi Hlö
Ég elska þennan þátt
Topp tíu á Bylgjunni
Bestu lögin að eilífu
Reykjavík síðdegis
Bragi, Kristófer og Þorgeir
Bylgjan með yfi rburði5 4-5 7
Það er rosaleg vínlykt af
þessu lagi, það verður
alltaf allt vitlaust á dans-
gólfum þegar þetta
kemur…, samið af einum
af fjórum bestu laga-
höfundum landsins,
syngiði með.
Þráinn Steinsson tæknistjóri
um Sódóma, með Sálinni
Síðasta lagið
sem við spil-
uðum í gær
skipti okkur
jafn miklu
máli og
fyrsta lagið
sem við spil-
uðum fyrir 25
árum.
Bylgjan er
25 ára. Það
er ótrúlega
langur tími.
Það er líka
stuttur tími í
hugum margra
hlustenda.
Takk fyrir að hlusta!
Útvarpsstöð getur ekki lifað án
hlustenda. Það má kannski segja
að útvarpsstöð endurnýi sig á
hverjum einasta degi, þegar
kveikt er á útvarpstækinu og
hlustendur mæta til leiks.
Bylgjan var fyrsta frjálsa út-
varpsstöðin á Íslandi, frjáls í
þeirri merkingu að stöðin var
ekki í eigu hins opinbera. Stofn-
un hennar var bylting í fjöl-
miðlun og þvílík viðbrögð.
Bylgjan varð á augabragði vin-
sælasta útvarpsstöð landsins,
með dægur tónlist, dægurefni
og fréttir. Jafn sjálfsagt mál
eins og að senda líka út tónlist á
nóttunni þótti svo mikil nýjung
að fólk átti erfitt með að sofna
snemma á kvöldin fyrst um sinn.
Rás 2 hafði að sönnu sent út
popptónlist áður en Bylgjan kom
til sögunnar. Plötubúðirnar á Ís-
landi voru líka boðberar popp-
tónlistar í landinu, Faco, Fálk-
inn, Skífan, Steinar og sjálfsagt
fleiri. En með stofnun Bylgjunn-
ar kom ákveðið frelsi í hugsun.
Skyndilega var allt hægt og
popptónlist og dægurmenning
var tekin hátíðlega sem dagskrá
í fjölmiðlum.
Síðan bættust fleiri útvarps-
stöðvar við og þannig á það að
vera. Þegar hugsað er til þessara
fyrstu ára í frjálsri fjöl miðlun
á Íslandi er það einmitt kjarni
málsins. Breytingar koma hreyf-
ingu á þjóðfélagið og sem betur
fer er útvarpsstöðin Bylgjan allt-
af að breytast. Ný tónlist kemur
inn, nýtt fólk!
Þess vegna störfum við ennþá
af fullum krafti eftir 25 ár. Og
höfum hugsað okkur að halda
áfram að senda út meðan land
byggist! Síðasta lagið sem við
spiluðum í gær skipti okkur jafn
miklu máli og fyrsta lagið sem
við spiluðum fyrir 25 árum.
Það eina sem breytist lítið
sem ekkert eru hlustendur.
Þeirra krafa er alltaf sú sama;
skemmtileg tónlist, spjall og
fréttir, björt og brosandi út-
varpsstöð.
Bylgjan,
Léttbylgjan og
Gullbylgjan
55%
FM 95.7, Xið
14%
Flass
1%
Rás 1
5%
Rás 2
25%
Útvarpshlustun (hlutdeild)
1. til 14. ágúst sl.
12 - 49 ára, samkv. könnun Capacent.
Allir eru að hlusta!
Afmælistónleikar Bylgjunnar á Ingólfstorgi 20. ágúst 2011. Stuð stuð stuð! MYND/JÓHANN K. JÓHANNSSON