Fréttablaðið - 27.08.2011, Side 41
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2011 3bylgjan 25 ára ● fréttablaðið ●
„Þessi sögufræga ljósmynd
er tekin rétt fyrir fyrstu
útsendinguna,” segir Pétur
Steinn Guðmundsson. Hann
var í fyrsta starfsliði Bylgjunnar
og fékk það hlutverk að
kenna þáverandi borgarstjóra
Reykjavíkur, Davíð Oddssyni, á
útsendingarborðið.
„Útsendingin átti að byrja klukk-
an sjö að morgni 28. ágúst. Menn
voru mættir mjög snemma til
vinnu þennan dag, man ég. Það
þótti viðeigandi að fá vinsælasta
stjórnmálamann landsins á þeim
tíma, borgarstjórann í Reykjavík,
til að opna útvarpsstöðina með
ávarpi.“
Á þessari mynd ert þú að kenna
honum á takkana?
„Já, það kom í ljós þegar
Davíð kom að hann var alveg
óvanur því að stjórna tökkunum
á útsendingar borðinu sjálfur. Það
var allt öðruvísi þegar hann var
með sína útvarpsþætti hjá Ríkis-
útvarpinu í gamla daga. Þá sáu
tæknimenn um öll slík mál. Það að
menn stýrðu sínum þáttum sjálfir,
sæju um öll tæknimál líka, var
ein af þeim nýjungum sem komu
með Bylgjunni. Þess vegna var ég
fenginn til að sýna honum hvernig
hann setti sleðann sem stjórnaði
hljóðnemanum upp, þegar ávarp-
ið átti að hefjast. Svo átti hann
að ýta á annan takka þegar hann
var búinn og setja þannig í gang
stef eða lag. Þetta fór allt saman
mjög vel fram og ég man að ég
stóð fyrir aftan hann meðan hann
flutti ávarpið, svona til öryggis.“
Manstu hvað hann sagði í
ávarpinu?
„Nei, því miður, ég man ekkert
af því! Þetta var að minnsta kosti
mjög söguleg stund, stór stund í
mínum huga. Það sést líka vel á
myndinni hversu spennu þrungið
loftið var. Þarna var endanlega
verið að rjúfa einokun Ríkis-
útvarpsins á útvarpsrekstri í land-
inu. Þess vegna er þessi mynd líka
merkileg því þáverandi formaður
útvarpsréttarnefndar er þarna í
dyrunum, ef vel er að gáð, Kjartan
Gunnarsson. Við hliðina á honum
er Hjörtur Hjartarson, stjórnar-
maður í Íslenska útvarpsfélaginu
sem rak Bylgjuna. Svo eru þeir
í sparifötum og með bindi Einar
Sigurðsson útvarpsstjóri og Jón
Ólafsson, stjórnarformaður Ís-
lenska útvarps félagsins.
Það vekur líka athygli á þess-
ari mynd að þú og Davíð Oddsson
eruð með nákvæmlega sömu hár-
greiðslu!
„Það er gaman að nefna það, já.
Ég hef oft verið kallaður Davíð í
gegnum tíðina, þegar menn horfa
aftan á mig úr fjarlægð og fara
hreinlega mannavillt.“
Svo ertu ekki í jakkafötum eins
og flestir hinna, heldur í snjó-
hvítum langerma bómullarbol
með Bylgjumerkinu.
„Já, við starfsmennirnir á plan-
inu vorum allir í merktum bolum
þennan dag. Það var gert með
ráðnum hug, því að það kom fullt
af ljósmyndurum að taka myndir
þennan dag svo þetta var fín aug-
lýsing fyrir stöðina.“
Þetta var auðvitað ákveðið upp-
haf fyrir þig líka þarna í stúdíó A
við Snorrabraut 54. Þú varst auð-
vitað margreyndur plötu snúður
og hafðir starfað við þáttagerð
fyrir Ríkisútvarpið, en þarna var
draumur að verða að veruleika?
„Já, ég fékk snemma þessa út-
varpsbakteríu ef svo má segja
og það er erfitt að losna við hana
úr blóðinu. Ég byrjaði sem plötu-
snúður í Glæsibæ 1. desember
1979 og svo þróaðist þetta áfram
yfir í útvarpið. Ég er sjálfur hætt-
ur að vinna við útvarp, fór úr því
að vera lagafræðingur og er lög-
fræðingur í dag!
Þarna byrjaði Bylgjan
Klukkan er 06.59 og Pétur Steinn kennir borgarstjóranum á útsendingarborðið.
Það er gaman að nefna
það að ég hef oft
verið kallaður Davíð í
gegnum tíðina.
Afmælistónleikar
Bylgjunnar
Frá afmælistónleikum
Bylgjunnar á Ingólfstorgi 20.
ágúst 2011. Þar komu fram
allir helstu tónlistarmenn
þjóðarinnar og samfellt stuð
allan daginn, líkt og á FM 989 í
25 ár.
Kæri Bylgjuhlustandi!
Það er óhætt að fullyrða að með stofnun Bylgjunnar, fyrstu frjálsu,
einkareknu og óháðu útvarpsstöðvarinnar á Íslandi, hafi átt sér stað
viss bylting – bylting dægurmenningar, bylting afþreyingar og ekki
síst bylting frjálsrar umræðu. Upp frá því breyttist íslenskt fjölmiðla-
landslag til fram-
búðar og til hins
betra. Þá fyrst tók
að hljóma í útvarpi
tónlistin sem fólkið í
landinu vildi heyra –
og það allan daginn,
allan sólarhringinn,
allt árið um kring ef
það kærði sig um.
Þá fyrst gerðist það
líka að fólkið í land-
inu öðlaðist rödd og
gafst tækifæri til að
láta ljós sitt skína milliliðalaust og án ritskoðunar. Og einnig má færa
fyrir því sterk rök að þá fyrst hafi hafið upp raust sína útvarpsfólk
sem talaði beint til almennings, um málefni sem vörðuðu almenning
og það á mannamáli. Og svo er enn í dag, 25 árum síðar. Enn er það að-
alsmerki Bylgjunnar að vera fyrst og síðast í þjónustu hlustenda. Út-
varpsstöð á besta aldri sem ætíð hefur kappkostað að spila þá tónlist
sem hlustendur hennar vilja helst heyra, í bland við vandað skemmti-
efni, fréttir og þjóðmálaumræðu sem borin er á borð á mannamáli.
Sigurganga Bylgjunnar hefur verið óslitin frá stofnun hennar. Og
seigla hennar, styrkur og stöðugleiki hefur í raun verið ævintýri lík-
astur miðað við alla þær sviptingar og samkeppni sem hún hefur glímt
við í gegnum tíðina. Bæði frá öðrum einkastöðvum, sem komið hafa
og farið, sem og hinum ríkisreknu skattgreiddu útvarpsstöðvum, sem
gera út á auglýsingamarkaðinn á óheilbrigðum forsendum. Lykillinn
nú sem ávallt er að bjóða uppá þá þjónustu, þá útvarpsdagskrá, sem ís-
lenskir hlustendur hafa sjálfir mótað og valið að hlusta á. Það er og
hefur alltaf verið Bylgjan.
Ég vil nota þetta tækifæri – þessi einstöku tímamót í sögu ein-
stakrar útvarpsstöðvar – og óska starfsmönnum hennar og ekki síst
okkar dyggu hlustendum til hamingju með afmælið. Hún lengi lifi!
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla
Allt fyrir hlustendur
MYNDIR/JÓHANN K. JÓHANNSSON
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. MYND/BIG