Fréttablaðið - 27.08.2011, Qupperneq 64
27. ÁGÚST 2011 LAUGARDAGUR6 ● fréttablaðið ● bylgjan 25 ára
ÓSKALAG
Allra heilla Bylgja! Stofnun Bylgjunnar markaði langþráð vatna-
skil í íslenskri fjölmiðlaflóru. Boðaði nýja og betri tíma, frelsi
og fjölbreytni.
Bylgjan og systurrásir hennar í 365 fjölskyldunni hafa verið
íslenskri tónlist dýrmætar stoðir, og skapendum íslenskra hljóm-
platna traust vígi og tekjulind í senn.
Samstarf okkar í stjórnum STEF, FTT og Samtóns við starfs-
menn og stjórnendur Bylgjunnar og tengdra miðla hefur allt
verið á einn veg: Til stakrar fyrirmyndar. Gagnkvæm
velvild og vinsemd hefur einkennt þann aldarfjórðung
sem að baki er. Megi svo áfram verða.
Það er ekkert leyndarmál að 365 er stærsti einstaki
gjaldandi STEF-gjalda, þ.e. höfundargjalda á Íslandi
og hefur verið um alllangt skeið. Sú staðreynd skýrist
af því að fyrirtækið skartar vel á annan tug hljóð- og
sjónvarpsrása og þar eru Bylgjan og Stöð 2 útbreidd-
ustu rásirnar og báðar fullveðja; Bylgjan 25 ára , Stöð
2 nokkrum mánuðum yngri.
Sá sem þetta ritar hefur ekki einungis látið sig
STEF-gjöld fyrirtækisins varða heldur ekki síður
STEF-gerð en öll kynningarstef bæði Bylgjunn-
ar og Stöðvar 2 voru í árdaga framin af undir-
rituðum, oft á miklum handahlaupum. Stefin virtust
hins vegar eldast vel og endast árum saman og er
jafnvel ennþá hampað á tyllidögum: Bylgjustefin
voru ort að frumkvæði Páls Þorsteinssonar, þá-
verandi dagskrárstjóra, bráðmúsíkalsks manns sem gerði háar
gæða kröfur, enda alinn upp af helsta allsherjargoða sí gildrar
sönglistar á Íslandi, Þorsteini Hannessyni, óperusöngvara og
tónlistarstjóra RÚV til margra ára.
Þau mörkuðu upphafið að því ánægjulega samstarfi sem
að framan er lýst og enn er við lýði. Nú síðast í aðdraganda
25 ára afmælishalds þar sem Bylgjan og miðborgin eiga sam-
leið á Menningarnótt í veglegri hátíðardagskrá á Ingólfs-
torgi.
Bretum verður tíðrætt um blómaskeið kvenna
og er þá jafnan vísað til aldurs svipaðs þeim
sem Bylgjan fagnar nú. Þeir tala um konur „…in
their prime“. Slík blómaskeið í tilfelli útvarps-
stöðva mætti að líkindum husa sér verulega út-
víkkuð í tíma og rúmi .
Ljóst má þó vera að vel viðeigandi vígorð
Bylgjunnar á þessum tímamótum gæti verið:
BYLGJAN – ÁVALLT Í BLÓMA :)
Megi Bylgjan og allt hennar góða fólk njóta
afmælisins í ystu æsar og útvarpsstöðin ást-
sæla halda áfram að blómstra og dafna með
þjóðinni.
Um leið og ég færi Bylgjunni og starfs-
fólki hennar hjartanlegar hamingjuóskir vil
ég þakka vel fyrir mig og mína, frá fyrstu tíð.
Lifðu heil Bylgjan mín – um aldur og ævi!
Allra heilla Bylgja!
„Ég byrjaði að vinna á Bylgjunni í
mars árið 1995 eftir að hafa unnið
á FM957 í fimm ár. Bylgjan var þá
og er vinsælasta útvarpsstöðin og
það var alltaf markmiðið hjá mér
að komast í vinnu hér.“
Hvernig stóð á því að þú valdir
þér þetta starf?
,,Þetta var nú draumur hjá mér
allt frá því að ég var 12 eða 13 ára.
Þá var ég byrjaður að hlusta mikið
á tónlist og svo fór ég að hlusta á
Kanaútvarpið. Þar var American
Top 40 með Casey Kasem í hverri
viku og útvarpsmenn eins og
Charlie Tuna. Þá kviknaði þessi
áhugi á útvarpi. Ég var líka dug-
legur að kaupa plötur með öllum
vinsælustu lögunum og æfa mig
að þykjast kynna þau í stofunni
heima. Þegar Bylgjan fór í loft-
ið 1986 opnaðist alveg nýr gluggi
fyrir svona áhugafólk eins og mig
því þarna var komin fyrsta frjálsa
útvarpsstöðin.“
Hvernig myndir þú lýsa dag-
skrárstefnu Bylgjunnar, hvað er
það sem þú sem dagskrárstjóri
leggur mesta áherslu á?
„Við erum tónlistarútvarp en
með puttann á púlsinum í dægur-
málum og fréttum. Við leggjum
mjög mikið upp úr því að hafa
hjá okkur besta starfsfólkið sem
hefur bæði reynslu og passar inn í
Bylgjuliðið. Styrkur okkar er liðs-
heildin og stöðugleiki í dagskrár-
gerð og tónlistarvali.
Bylgjan er sú útvarpsstöð sem
hefur gert flest íslensk lög vinsæl.
Við munum halda því áfram. Við
spilum fyrst og fremst tónlist sem
þorra landsmanna finnst skemmti-
legt að heyra. Svo reynum við að
hafa nýju tónlistina 35% af því
sem við spilum. Þar í bland eru svo
topplög síðustu áratuga sem allir
þekkja. Það er okkur mikilvægt
að vera á tánum þegar kemur að
nýrri tónlist svo að okkar hlust-
endur séu meðvitaðir um það sem
er að gerast í dægurtónlistinni um
heim allan.
Það má segja að ég sé að spila
dags daglega allt frá Elvis að
Beyoncé og allt frá Brimkló að Jó-
hönnu Guðrúnu.“
Það er frábær árangur hjá
Bylgjunni og starfsfólki hennar að
hafa haldið úti samfelldri tónlist-
ardagskrá í aldarfjórðung, hverju
finnst þér Bylgjan bæta við Ísland
í dag?
„Bylgjan er algjörlega órjúf-
anlegur hluti af tilveru margra
þar sem hún fylgir landsmönn-
um í leik og starfi alla daga ársins
og allan sólarhringinn. Það eru í
raun fjórar kynslóðir sem hlusta
á okkur. Þetta er fólk á aldrinum
50 til 60 ára í dag, sem byrjaði að
hlusta á Bylgjuna þegar hún fór
fyrst í loftið. Svo er það hópur-
inn á milli 40 til 50 ára sem beið
með öndina í hálsinum eftir fyrstu
frjálsu útvarpsstöðinni. Því næst
er það fólk á aldrinum 30 til 40
ára sem ólst upp við að Bylgjan er
alltaf til staðar, hvað sem á dynur.
Að síðustu eru það hlustendur frá
20 til 30 ára sem ólust upp við að
mamma og pabbi hlustuðu á Bylgj-
una og eru í dag orðnir Bylgju-
hlustendur sjálfir.“
Og svo að lokum, óskalag, þetta
er skylduspurning fyrir dagskrár-
stjóra Bylgjunnar. Þú tekur upp
símann, hringir inn á Bylgjuna og
biður um óskalag, hvaða lag herra
minn?
,,Ég get nú alveg viðurkennt að
þetta er nokkuð snúin spurning
því ég á mjög mörg uppáhalds-
lög. En ef ég vil komast í gott skap
þá myndi ég klárlega biðja um
Sódóma með Sálinni :)“
Ég myndi biðja um lag með Sálinni
●„MY OWN WAY“ óska-
lagið sem Rúnar Róbertsson
bað um.
„Bylgjan spilar tónlist fyrir
fullorðið fólk á öllum aldri,” segir
Rúnar Rúnarsson, tónlistarstjóri
Bylgjunnar. ,,Ég tók við starfinu í
desember 2009. Mér finnst það
skemmtilegasta við þetta starf
að grúska í tónlistinni, sjá hvað
virkar og hvað ekki. Við spilum
tónlist fyrir fólk á aldrinum
25-54 ára og tónlistin endur-
speglar þann markhóp.“
- Ef þú, sjálfur tónlistar-
stjórinn, hringdir inn á Bylgjuna,
hvaða lag myndir þú biðja um?
„Það er frábær spurning!
Ég held að ég hafi einu sinni
á ævinni hringt inn óskalag á
útvarpsstöð. Það var á níunda
áratugnum og Snorri Sturluson
var á þeim tíma dags í loftinu
sem ég er núna á á Bylgunni, frá
13.00-16.00. Ég bað hann um
lagið „My Own Way” (smáskífuút-
gáfuna) með Duran Duran. Sú
útgáfa var nefnilega ekki til hvar
sem er í þá daga. En í dag myndi
ég sennilega biðja um „Bad“
með U2. Það finnst mér það allra
besta frá írsku rokkurunum.“
Jakob Frímann Magnússon
tónlistarmaður & organisti Stuðmanna,
formaður FTT, varaformaður STEF
& framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar
Það er frábær ár-
angur hjá Bylgjunni
og starfsfólki henn-
ar að hafa haldið úti sam-
felldri tónlistardagskrá í aldar-
fjórðung.
● KLÁRUÐ BATTERÍ OG
BYLGJULESTIN „Ég er það gömul
að ég var á lífi þegar Bylgjan fæddist.
Sumarið 1985 fór ég einmitt hringinn í
kringum landið með foreldrum mínum
og sat í skottinu á Volvo Station bílnum
í tvær vikur. Suðið í rúðuþurrkunni var
það næsta sem komst útvarpi þegar
batteríin í vasadiskóinu kláruðust á
fyrsta degi. Þá var engin Bylgjulest. En
það breyttist nú allt í ágúst á því góða
ári. Og það sem ég öfundaði börnin
sem áttu foreldra sem límdu Bylgju-lím-
miða í bakrúður bíla sinna. Hæ Bylgjan!
Og til hamingju með afmælið.“
Lára Björg Björnsdóttir bloggari
AFMÆLISKVEÐJUR
● PARTÝVAKTIN! „Ég er sjálf að-
eins einu ári eldri en Bylgjan! Þegar ég
hugsa um Bylgjuna þá er það fyrsta sem
mér dettur í hug Ásgeir Páll og Partývakt-
in. Þessi sjúklega hressi náungi sem kom
manni alltaf í góðan fíling. Þó svo að maður
væri ekki á leiðinni út að skemmta sér var
bara alltaf svo gaman að hlusta á hann. Það
sem ég hef alltaf gengið að vísu hjá Bylgj-
unni er þessi skemmtilegu 80‘s og 90‘s lög,
hljómsveitir eins og The B52‘s og Prefab
Sprout. Hljómsveitirnar sem eru það hall-
ærislegar að þær eru töff og svo auðvitað
allar hinar líka. Til hamingju Bylgjan, með
árin 25 – hún lengi lifi húrra, húrra, húrra!“
Lísa Einarsdóttir, Keflavík
„Ég spila dags daglega allt frá Elvis að Beyoncé og allt frá Brimkló að Jóhönnu Guðrúnu.”