Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 82
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR46
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
verður heiðursgestur á
landsmóti hagyrðinga í
Stykkishólmi um næstu
helgi. Hann skrifaði
doktorsritgerð sína um
þróun stuðlasetningar frá
fornu til okkar daga og
segir grunnreglur brag-
fræðinnar þær nákvæmlega
sömu og fyrir 1.200 árum.
Stuðlunin lifi sjálfstæðu
lífi og lagi sig að breyttum
framburði eftir hentugleika.
Bragaþing, hið árlega lands-
mót hagyrðinga, verður haldið í
Stykkis hólmi 3. september. Heið-
ursgestur verður Ragnar Ingi
Aðalsteinsson, ljóðskáld, rithöfund-
ur og aðjúnkt við Háskóla Íslands.
Í fyrra varði Ragnar Ingi doktors-
ritgerð sína, Tólf alda tryggð, þar
sem rýnt var í þróun stuðlasetn-
ingar frá elsta þekktum norrænum
kveðskap fram til nútímans.
Rannsóknin á rætur að rekja
allt aftur til barnæsku Ragnars
Inga, austur í Hrafnkelsdal, þegar
hann hjó eftir villum í stuðlasetn-
ingu ýmissa þjóðskálda.
„Þegar ég fór að stúdera stuðla-
setninguna sá ég þverstæðu
tengda bókstafnum s. Mér hafði
verið kennt að ef ég notaði s sem
ljóðstaf yrði ég að taka tillit til
hvaða bókstafur fylgdi á eftir.
Þannig stuðlar sk aðeins við sk,
sp við sp og svo framvegis. Mót-
sögnin kom upp þegar ég tók
eftir kvæðum þjóðskálda á borð
við Steingrím Thorsteinsson,
sem stuðluðu sl og sn við s+sér-
hljóð. Þá fáum við ljóðlínur eins
og: „Sól og vor ég syng um, snerti
gleðistreng.“ Þetta er algjörlega
ófært. Þessi stuðlasetning tíðkað-
ist líka til forna en þetta passaði
hins vegar alls ekki samkvæmt
minni bragvitund, hreinlega skar
í eyrun, og fylgdi mér fram á
fullorðinsár. Þegar ég byrjaði í
íslenskunámi í háskóla ákvað ég
að fara í saumana á þessu máli.“
Ragnar Ingi skrifaði upphaflega
meistaraprófsritgerð um stuðla-
setninguna og segist þá hafa byrj-
að að átta sig á um hvað málið
snerist og hélt því rannsókninni
áfram í doktorsritgerðinni.
Þjóðskáldin stældu úrelta hefð
Í ritgerðinni tekur hann langsnið
af kveðskap allt frá því fyrir land-
nám og endar á Þórarni Eldjárn.
Alls rannsakaði hann 45 skáld og
skráði 13.626 braglínupör í tölvu.
Með svo stórt úrtak var hægt að
kanna ýmsa eiginleika bragarins
og þá kom í ljós að mótsögnin sem
hafði vafist fyrir Ragnari átti sér
eðlilegar skýringar.
„Við nánari athugun kemur í
ljós að fram til ársins 1400 var
stuðlasetningin sl eða sn við
s+sérhljóða rétt vegna framburð-
arins. Á fimmtándu öld kemur inn
sníkjuhljóð; ef maður segir sn,
eins og í snáði, kemur d hljóð á
milli s og n, og eins með sl. Þegar
þetta sníkjuhljóð bætist við hætta
menn að geta stuðlað sl og sn við
s+sérhljóð.
Þannig hélst það án undan-
tekninga í 300 ár. Á 18. og 19. öld
komu hins vegar fram á sjónar-
sviðið skáld sem höfðu lesið forn-
kveðskapinn og stældu stuðlasetn-
inguna eins og hún tíðkaðist þá,
jafnvel þótt hún ætti ekki lengur
við samkvæmt framburði og væri
að því leyti algjörlega ófær.“
Sömu grunnreglur í 1.200 ár
Athygli vekur að jafnvel þótt ýmis
öndvegisskáld hafi byrjað að not-
ast við úrelta stuðlasetningu hafi
hún ekki fest sig í sessi.
„Það er í sjálfu sér stórmerki-
legt og sýnir að hagyrðingarn-
ir heyra að þeir geta ekki notað
þessa stuðlasetningu og nota hana
þess vegna ekki. Brageyrað hafði
einfaldlega betur.“
Ragnar Ingi segir það merki-
legasta við rannsókn sína að hún
hafi ótvírætt leitt í ljós að brag-
reglurnar hafi nákvæmlega
ekkert breyst í 1.200 ár.
„Þær breytingar sem hafa orðið
eru í sambandi við stuðlasetn-
inguna og lúta að nýjum fram-
burði. Stuðlunin lifir sjálfstæðu
lífi og lagar sig að breyttum
aðstæðum í samræmi við hefð-
ina. Þetta er stórmerkilegt! Ef
maður skoðar kveðskap Þórar-
ins Eldjárns eða hagyrðinga á
mótum eru þeir að gera í grunn-
inn nákvæmlega það sama og
skáldin fyrir 1.200 árum.“
Bundinn kveðskapur iðar af lífi
Spurður um framtíðarhorfur
bundins kveðskapar segist Ragn-
ar Ingi ekki sjá á honum nein
dauðamerki.
„Þvert á móti er hann í sókn ef
eitthvað er. Við eigum lifandis
býsn af hefðbundnum kveðskap
sem okkur finnst skemmtileg-
ur og deyr ekki meðan við tölum
þetta tungumál. Við eigum iðna
hagyrðinga sem hittast á mótum
og halda úti líflegum póstlista,
þar sem aldrei er hvikað frá
reglum og hefðinni fylgt út í
æsar.“
Hann leggur líka áherslu á að
að henni sé hlúð og hún kynnt
fyrir nýjum kynslóðum.
„Ég hef nýlokið við að skrifa
bragfræði fyrir grunnskóla og
vinn nú að kennsluleiðbeiningum
fyrir kennara, auk þess sem ég
hef boðist til að leiðbeina kenn-
urum um hvernig eigi að kenna
þetta efni. Ég held að það sé nauð-
synlegt fyrir unglinga að kynn-
ast þessari hefð og þróa með sér
bragvitund.“ bergsteinn@frettabladid.is
46
menning@frettabladid.is
BRAGEYRAÐ HEFUR BETUR
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON Ragnar vildi vita hvers vegna sum þjóðskáldanna notuðu stuðlasetningu sem stóðst ekki einfaldar bragreglur. Til að komast að því rannsakaði
hann þróun stuðlasetningar undanfarnar tólf aldir. FRÉTTABLAÐIÐ/BERGSTEINN
DÓ ALLS STAÐAR ÚT NEMA HÉR
Stuðlasetning tíðkaðist um alla Evrópu á þeim tíma sem menn námu
land á Íslandi en dó út á næstu öldum. Nú til dags er hin forngermanska
stuðlasetning eingöngu notuð á Íslandi. Ragnar Ingi segir ákveðna eigin-
leika íslenskunnar og einangrun landsins líklega helstu ástæður þess að
stuðlasetningin hefur lifað óbreytt allar þessar aldir.
„Í íslensku er áherslan nánast undantekningalaust á fyrsta atkvæði
hvers orðs. Upphaflega var þetta þannig í öðrum norrænum málum líka.
Stuðlunin var í raun og veru rím, sem færðist fremst á orðin í staðinn fyrir
að vera aftast í línunum. Síðan breytast áherslur tungumálanna og færast
inn í orðin, jafnvel á annað eða þriðja atkvæði. Þar með brestur þetta virki
stuðlasetningarinnar sem ruglar dæmið ekkert lítið. Ljóðstafurinn verður
að hafa sína þyngd og ef áherslan er ekki lengur á ljóðstafnum þá er hún
horfin. Með breyttum áherslum hvarf stuðlasetningin smám saman alls
staðar í Evrópu nema hér.
OPNUN Í NORRÆNA HÚSINU
Sýningin Aquagrams eftir Nadine Cabarrot verður opnuð í anddyri Norræna hússins á sunnudag. Nadine er fædd í Frakklandi árið 1953.
Hún er leikari með flokknum Albatross í Frakklandi auk þess að vera virkur ljósmyndari. Á sýningunni verða bæði ljósmyndir og myndverk
frá ferðalögum Nadine um heiminn. Nadine segir gestum frá verkum sínum klukkan 15.00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Á 18. og 19. öld komu hins vegar fram á sjónarsviðið
skáld sem höfðu lesið fornkveðskapinn og stældu
stuðlasetninguna eins og hún tíðkaðist þá, jafnvel þótt hún
ætti ekki lengur við samkvæmt framburði …
Norræna húsið Sturlugata 5 101 Reykjavík S. 5517030 www.norraenahusid.is
NADINE CABARROT
sýnir í anddyri Norræna hússins.
Sunnudaginn 28. ágúst kl. 15:00 mun
Nadine segja gestum frá verkum sínum.
Allir velkomnir, léttar veitingar.
Nadine er fædd í suðvestur Frakklandi
árið 1953. Eftir útskrift úr listaháskóla
ferðast hún alla leið til Indlands til að læra
sanskrit og yoga. Í gegnum François
Philipponnat kynnist hún nútímaljóðlist og
gerist leikkona. Hún er einnig ljósmyndari
og hefur unun af því að ferðast.
Myndirnar sem hún sýnir í Norræna húsinu
kallar hún AQUAGRAMS, skrifað í vatn og
eru myndirnar einskonar leiðangur í
myndum um fimm ólík lönd, fimm ólíka
drauma.
AQUAGRAMMES
©Nadine Cabarrot