Fréttablaðið - 27.08.2011, Síða 88
27. ágúst 2011 LAUGARDAGUR52
SJÁLFSTYRKING FRAMKOMA OG LÍKAMSBURÐUR
INNSÝN Í FYRIRSÆTUSTÖRF FÖRÐUN UMHIRÐA HÚÐAR OG HÁRS
MYNDATAKA TÍSKUSÝNINGARGANGA FYRIRSÆTA KEMUR Í HEIMSÓKN
FÍKNIEFNAFRÆÐSLA LEIKRÆN TJÁNING Í UMSJÓN LEYNILEIKHÚSSINS
VERÐ
17.9
00
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 20. OG 22. SEPTEMBER
Umsjónarkennari námskeiðsins
er Tinna Aðalbjörnsdóttir, auk
fjölmargra gestakennara.
Kennt verður einu sinni í viku,
einn og hálfan tíma í senn.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, snyrtibuddu og mascara
frá Maybelline, viðurkenningarskjal og 10 sv/hv myndir.
Námskeiðinu lýkur með stórri tískusýningu.
Stúlkurnar eru farðaðar fyrir myndatöku og tískusýningu.
Skráning er hafin í síma 533-4646
eða eskimo@eskimo.is
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian gekk í það heilaga fyrir
viku. Fréttamiðlar hið vestra halda því fram að körfuboltamaður-
inn Kris Humphries hafi þar með kvænst inn í konungsfjölskyldu
Hollywood-hæða.
Sitt sýnist hverjum um hvort við hæfi sé að líkja Kardashian-fjölskyldunni við
konungsfjölskyldu og er forvitnilegt að líta yfir farinn veg og bera Kim og Kris
saman við ofurpör fyrri tíma.
Konungar og drottningar
HOLLYWOOD-HÆÐA
NÁIN Laurence Olivier og Vivien Leigh
kynntust við tökur á kvikmyndinni Fire
Over England. Parið giftist árið 1940
og entist hjónabandið í tuttugu ár.
Olivier og Leigh voru þó nánir vinir allt
til dauðadags hans. NORDICPHOTOS/GETTY
PRINSESSA Leikkonan Grace Kelly er
eina leikkonan sem með sanni hefur
gifst inn í konungsfjölskyldu. Hún
giftist Rainier fursta og varð þar með
alvöru prinsessa.
EILÍF ÁST Leikararnir Paul Newman
og Joanne Woodward þykja
einsdæmi í Hollywood en þau
voru gift í hálfa öld, allt til dauða
Newmans. Parinu var mjög
umhugað um einkalíf sitt og hélt
sig fjarri sviðsljósinu alla tíð.
MYNDARLEG Leikarinn Johnny
Depp og ofurfyrirsætan Kate Moss
áttu í eldheitu fjögurra ára sam-
bandi. Þau þóttu bæði einstaklega
flott og fögur og fengu því mikla
fjölmiðlaathygli.
VINSÆLL Hjónaband Brad Pitt og
Jennifer Aniston vakti mikla athygli
og voru þau gjarnan nefnd óskapar
Bandaríkjanna. Hjónabandið endaði
þó með skilnaði árið 2005 og stuttu
síðar tók hann saman við Angelinu
Jolie. Pitt og Jolie fengu gælunafnið
Brangelina og hafa slúðurblöðin ein-
staklega mikinn áhuga á fjölskyldulífi
þeirra.
BLIND ÁST Humphrey Bogart og Lauren Bacall kynntust við tökur á myndinni To Have and Have
Not árið 1944. Bogart var þá 45 ára gamall og kvæntur leikkonunni Mayo Methot á meðan Bacall
var aðeins 19 ára gömul. Bogart skildi við eiginkonuna og giftist Bacall stuttu síðar. Hjónabandið
entist í tíu ár, allt til dauða Bogarts.
NÝGIFT Skiptar skoðanir eru á
því hvort kalla má Kardashian-
fjölskylduna konungsfjölskyldu
Hollywood. Kim Kardashian giftist
körfuboltamanninum Kris Hump-
hries í síðustu viku.
Tónlist ★★★
I Need a Vacation
Ruddinn
Manchester og Hafnarfjörður
I Need a Vacation er þriðja plata Hafnfirðingsins Bertels Ólafssonar, sem
kallar sig Ruddann. Hann vinnur tónlistina að mestu leyti einn í heimahljóð-
verinu sínu en fær aðstoð á nýju plötunni. Fyrsta ber að nefna Heiðu Eiríks,
söngkonu í Hellvar, sem syngur í
níu af ellefu lögum plötunnar, en
auk hennar leika nokkrir hljóð-
færaleikarar í einstaka lögum og
Soulviper syngur eitt lag.
Eins og á fyrri plötunum er
tónlistin á I Need a Vacation mjög
lituð af tónlist níunda áratugarins.
Sérstaklega eru áhrif hljóm-
sveitarinnar New Order augljós.
Bassalínurnar hans Peters Hook
ganga aftur í flestum lögunum og
yfirbragðið minnir oft sterklega á
þessa frábæru Manchester-sveit.
Í laginu It‘s You er hljómurinn
nauðalíkur New Order-laginu Temptation. Gott lag hjá Ruddanum en
líkindin með Temptation eru mikil.
Þrátt fyrir New Order-keiminn, sem er missterkur eftir lögum, er þetta
skemmtileg plata. Ruddinn hefur greinilega legið yfir smáatriðum í
útsetningunum. Sum þessara laga eru stórfín, önnur síðri. Söngur Heiðu
gerir mikið fyrir útkomuna og Ruddinn, sem syngur í sjö laganna, skilar sínu
vel líka.
Á heildina litið ágætis plata. Næst ætti Ruddinn samt að reyna að draga
svolítið úr New Order-áhrifunum.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Skemmtileg plata undir sterkum New Order-áhrifum.
Natalie Portman er sögð eiga í við-
ræðum um að leika í sinni fyrstu
kvikmynd síðan hún eignaðist son
sinn, Aleph, í júní. Hin þrítuga
leikkona er að íhuga að leika aðal-
hlutverkið í dramanu Adaline.
Myndin fjallar um konu sem
kemst að því að hún getur lifað
að eilífu eftir að hafa lent í slysi.
Þegar hún hittir mann og verður
ástfangin þarf hún að ákveða hvort
hún vilji verða dauðleg á nýjan
leik. Portman vann Óskarinn fyrr
á árinu fyrir frammistöðu sína
í Black Swan. Við tökur á mynd-
inni kynntist hún unnusta sínum,
Benjamin Millepied.
Portman snýr aftur
NÝTT HLUTVERK Natalie Portman er
í viðræðum um að leika í myndinni
Adaline.