Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 50
2. september 2011 FÖSTUDAGUR30
5
ÁRA
2006-2011
F gnum 5 á
ra afmælinu me
20-60% AFSLÆTTI
aðe s um helg na
af ÖLLUM bókum
Nýr
titill
Nýr
titill
Nýr
titill
Nýr
titill
Nýr
titill
Nýr
titill
Vertu tímanlega
í jólainnkaupunum
NÝTT
BJART MEÐ KÖFLUM Söngleikurinn
gerist á sjöunda áratugnum og setur
tónlist þess tíma sterkan svip á verkið.
Sýningar á söngleiknum Bjart
með köflum eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson hefjast aftur í Þjóðleik-
húsinu nú um helgina.
Bjart með köflum gerist á
sjöunda áratugnum og segir frá
hatrömmum átökum milli sveita-
bæja, þar sem ástin ólgar, heiftin
kraumar og rokklögin hljóma af
blússandi krafti. Tónlist frá tíma-
bilinu setur sterkan svip á verkið
sem er sýnt á Stóra sviðinu í
kvöld og á morgun.
Með aðalhlutverk fara Hilmir
Jensson, Heiða Ólafsdóttir og
Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son og tónlistarstjóri er Jón
Ólafsson.
Bjart með
köflum aftur
á fjalirnar
Heiðursgestur á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík 2011
verður danska kvikmyndagerðar-
konan Lone Scherfig. Hún hlýt-
ur heiðursverðlaun RIFF fyrir
framúrskarandi listræna sýn.
Verðlaunin verða veitt í nafni frú
Vigdísar Finnbogadóttur og verð-
ur afhending þeirra árlegur við-
burður á hátíðinni héðan í frá.
Scherfig er í hópi fremstu
kvikmyndagerðarmanna Norður-
landa og hefur hlotið margvís-
leg verðlaun fyrir kvikmyndir
sínar. Hún sló í gegn á alþjóð-
legum vettvangi með mynd sinni
Ítalska fyrir byrjendur árið 2000,
sem verður einmitt sýnd á RIFF-
hátíðinni í ár.
Lone Scherfig
heiðursgestur
HEIÐURSGESTUR Danska kvikmynda-
gerðarkonan Lone Scherfig verður
heiðursgestur á RIFF-hátíðinni.
NORDICPHOTOS/AFP
Listakonan Eva Ísleifsdóttir opnar sýn-
inguna Gildiskenningar / Value Theory
á morgun í Gallerí Klósetti.
Myndmál í verkum Evu er fengið
frá táknum forns samfélags í bland við
táknmyndir 21. aldarinnar. Veltir hún
fyrir sér hinni eilífu löngun mannsins
til þess að ráða, ná stjórn á hlutunum
ásamt því að kanna flókið tilfinninga-
svið hans. Setur hún fram spurning-
una: Hvað gerist á milli athafnanna að
stjórna og að hvetja?
Eva lauk meistaraprófi í skúlptúr frá
The Edinburgh College of Art vorið
2010.
Eftir útskrift hefur Eva verið iðin
við vinnslu verkefna og sýninga bæði
hér á landi sem og erlendis. Má þar
Gildiskenningar í Gallerí Klósetti
nefna samsýningarnar The Return
of the Losers í Kalmar Art Museum
í Svíþjóð árið 2011 og Að elta fólk og
drekka mjólk í Hafnarborg í ágúst
2010. Hún var meðal listamanna í
verkefninu Land&Sea, sem sýnt var
hérlendis og í Danmörku. Jafnframt
stofnaði hún vinnustofuna Why Bíldu-
dalur? á Bíldudal ásamt Jóni Þórðar-
syni.
Allir eru velkomnir á sýninguna
sem verður opnuð á morgun klukkan
17.
EVA Á KLÓSETTINU Eva Ísleifsdóttir sækir efni-
við í tákn forns samfélags sem og táknmyndir
21. aldar.