Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 2
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR2
ÞJÓÐKIRKJAN Að minnsta kosti sex
konur til viðbótar segja að Ólafur
Skúlason heitinn, fyrrum biskup,
hafi brotið gegn sér kynferðis-
lega. Einhverjar af konunum hafa
látið fagráð þjóðkirkjunnar vita
af málinu. Konurnar höfðu sam-
band við Sigrúnu Pálínu Ingvars-
dóttir áður en þjóðkirkjan greiddi
út sanngirnisbætur til hennar og
tveggja annarra kvenna í júlí síð-
astliðnum vegna mistaka í með-
ferð mála þeirra eftir að þær sök-
uðu biskupinn um kynferðisbrot.
Sigrún Pálína segist hafa vitað
af sumum konunum í mörg ár.
„Ég hef vitað í langan tíma að
konurnar eru mun fleiri en við
þrjár, það er bara spurning um
hvenær þær eru tilbúnar að segja
frá,“ segir Sigrún Pálína. „Ég hef
stundum verið milliliður á milli
kvennanna og fagráðs þjóðkirkj-
unnar, ef þær treysta sér ekki til
þess að leita beint til þeirra.“
Sigrún Pálína hefur hvatt allar
konurnar til að leita til fagráðsins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa að minnsta kosti
tvær þeirra haft samband við
ráðið skriflega, en ekki lagt málin
formlega fram.
Gunnar Rúnar Matthías-
son, formaður fagráðsins, segir
ráðið ekki geta tjáð sig um ein-
stök mál sem komi inn á borð til
þess. Unnin verði skýrsla í byrjun
næsta árs þar sem öll málin verði
tekin saman og birt opinberlega.
Sigrún Pálína segir sögur
kvennanna af biskupnum allar
mjög svipaðar.
„Þetta er fyrst og fremst þessi
trúnaðarbrestur. Hann byggir
upp samband og þykist vera sá
sem muni veita þeim aðstoð. Svo
endar hann með því að kyssa og
káfa,“ segir hún. „Hann valdi
sér konur sem voru á viðkvæmu
stigi í lífi sínu. Þær sem þurftu á
aðstoð að halda og þurftu að geta
treyst einhverjum. Og hann gerði
það undir því yfirskini að vera
guðsmaður.“
Engin kvennanna sex lét kirkju-
yfirvöld vita af hegðun biskupsins
á sínum tíma. sunna@frettabladid.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
6
7
4
... og rjómi
Ég hef vitað í langan
tíma að konurnar eru
mun fleiri en við þrjár, það
er bara spurning um hvenær
þær eru tilbúnar að segja frá.
SIGRÚN PÁLÍNA INGVARSDÓTTIR
Sex konur til viðbótar
ásaka Ólaf Skúlason
Að minnsta kosti sex konur til viðbótar hafa sakað Ólaf Skúlason fyrrum
biskup um kynferðisbrot gegn sér. Komu fram áður en kirkjan greiddi út bætur
vegna mála þriggja kvenna. Nokkrar hafa skrifað til fagráðs þjóðkirkjunnar.
HEFUR AÐSTOÐAÐ KONURNAR Sigrún Pálína Ingvarsdóttir hefur hvatt allar konurnar
til að leita til fagráðs Þjóðkirkjunnar. Hún segir sögur kvennanna af biskupnum mjög
svipaðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Sextán ára græn-
lenskur piltur var handtekinn í
Leifsstöð á föstudaginn var með
um 200 grömm af hassi í fórum
sínum. Pilturinn var að koma frá
Kaupmannahöfn og var á leið til
Grænlands. Tollgæslan fann efnið
þegar hann var á leið úr landi.
Málinu er lokið af hálfu lög-
regluyfirvalda hérlendis. Piltur-
inn var látinn laus úr haldi og
hélt áleiðis til Grænlands. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Suðurnesjum verður málið
sent lögreglunni í Kaupmanna-
höfn til meðferðar. - sh
Með 200 grömm af hassi:
16 ára smyglari
til Grænlands
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir kynnti hvítbók um náttúru-
vernd í ríkisstjórn í morgun. Þar
er að finna heildarúttekt á lagaum-
hverfi náttúruverndar hér á landi.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
hvítbók er unnin, en með henni á
að leggja grunn að nýrri löggjöf
um náttúruvernd. Meðal þess sem
nefndin leggur til í hvítbókinni er
að gildissvið náttúruverndarlaga
er varðar vernd lífríkis hafsins
verði skýrt og styrkt og að lög um
landgræðslu og skógrækt verði
felld í náttúruverndarlög. - kóp
Hvítbók um náttúruvernd:
Náttúrulöggjöf
í endurskoðun
LÍBÍA, AP Nokkrir háttsettir stuðningsmenn Múamm-
ars Gaddafí flúðu í gær frá Líbíu yfir til nágranna-
landsins Níger. Þeir fóru þangað í hópum í nokkrum
bílalestum, sem ekið var hratt yfir eyðimörkina í
Líbíu til landamæranna.
Meðal þeirra sem flúðu var Mansour Dao, sem
var yfirmaður öryggismála hjá Gaddafí. Þetta stað-
festi tollvörður á landamærunum í Níger.
Um tólf aðrir háttsettir embættismenn Gaddafí-
stjórnarinnar eru sagðir hafa verið meðal þeirra
sem yfirgáfu landið.
Flóttinn getur skipt sköpum í baráttu uppreisnar-
manna gegn stuðningsmönnum Gaddafís, sem enn
hafa á valdi sínu þrjár borgir í landinu, Bani Walid,
Sirte og Sabha.
Ekkert er enn vitað um Gaddafí sjálfan en fullvíst
þótti að hann hefði ekki verið með í bílalestunum
sem fóru til Níger í gær.
Leiðtogar uppreisnarhreyfingarinnar, sem hefur
náð mestum hluta landsins á sitt vald, þar á meðal
höfuðborginni Trípolí, hafa átt í samningaviðræðum
við ættbálkahöfðingja í Bani Walid.
Takmarkaður árangur hafði þó orðið af þeim við-
ræðum í gær, enda mikil tortryggni á báða bóga.
Uppreisnarmenn segja íbúana í Bani Walid
skiptast í tvær fylkingar, og vilji sumir gefast upp
en aðrir halda áfram baráttu gegn uppreisnarmönn-
um, þótt vonlítil virðist vera. - gb
Samningaviðræður við stuðningsmenn Gaddafís um uppgjöf ganga hægt:
Háttsettir félagar Gaddafís flýja
SAMNINGAVIÐRÆÐUR NÁLÆGT BANI WALID Abdalla Kenshil,
aðalsamningafulltrúi uppreisnarmanna, ásamt ættbálkaleið-
togum frá Bani Walid í mosku skammt fyrir utan borgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á
höfuð borgarsvæðinu barst í gær
tilkynning um mann sem reyndi
að lokka litla stúlku upp í bíl til
sín. Atvikið átti sér stað í Skipa-
sundi, nálægt Langholtsskóla.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
í gær hafa fjölmargar svipaðar
tilkynningar borist undanfarið.
Síðast var tilkynnt um tilvik í
Kópavogi á mánudag.
Stjórn Heimilis og skóla sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem
áréttað var að foreldrar ræddu
við börnin sín á hreinskilinn hátt
um hættur sem þessar, en þó án
þess að hræða börnin. - þeb
Enn reynt að tæla barn:
Reyndi að fá
stúlku upp í bíl
STJÓRNSÝSLA Öllu starfsfólki Heilsu-
stofnunar Náttúrulækningafélags
Íslands í Hveragerði, alls um 105
manns, verður sagt upp störfum
um næstu mánaðarmót náist ekki
samningar við ríkið.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri heilsustofnunarinnar, segist
þó vonast til að ekki þurfi að hætta
starfsemi stofnunarinnar. Þjónustu-
samningur við ríkið rennur út um
komandi áramót og segir Ólafur að
óvissa ríki á meðan ekki er samið
um framhaldið.
„Þetta er nokkurs konar varúðar-
ráðstöfun. Við treystum því að við
munum fá nýjan samning við ríkið,
en maður veit ekki hvernig málin
munu þróast.“
Ólafur segir að starfsemi Heilsu-
stofnunarinnar hafi gengið vel, og
hann sjái ekki annað í spilunum en
að heilsustofnunin muni lifa í 50 ár
til viðbótar hið minnsta.
Hann kallaði hins vegar eftir
skýrri framtíðarsýn í heilbrigðis-
geiranum.
Anna Sigrún Baldursdóttir,
aðstoðarkona Guðbjarts Hannes-
sonar velferðarráðherra, segir að
unnið sé af fullum krafti að málinu
innan ráðuneytisins og stefnt sé að
því að ljúka því í mánuðinum.
„Við erum að ganga frá kröfulýs-
ingu. Málið er í fullkomlega eðli-
legum farvegi og sambærilegum
við aðrar stofnanir með þjónustu-
samninga við ríkið.“ - þj
Þjónustusamningur við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði rennur út um áramót:
Segja upp fólki semjist ekki við ríkið
HEILSUHÆLIÐ Þjónustusamningur við
ríkið rennur út um áramót. Kristján, kemur þetta mönn-
um danskt fyrir sjónir?
„Já, frekar danskt en spánskt.“
Kristján Geir Gunnarsson er
framkvæmda stjóri hjá Nóa Siríus, sem
markaðssetur sælgætið góðkunna Ópal í
Danmörku undir vörumerkinu Obal.
REYKJAVÍK Borgarstjórnarflokkur
Sjálfstæðisflokksins sakaði
meirihlutann á borgarstjórnar-
fundi í gær um
„algert áhuga-
leysi“ á málum
tengdum
sjávar útvegi.
Sjálfstæðis-
menn lögðu
fram tillögu
þess efnis
að gerð yrði
úttekt á áhrif-
um breytinga
á fiskveiðistjórnunarkerfinu á
atvinnulíf í Reykjavík. Sams
konar tillaga var lögð fram í lok
júní en er enn óafgreidd.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti sjálfstæðismanna, átaldi
meirihlutann fyrir aðgerðar-
leysi og ýjaði að því að meiri-
hlutinn væri að verja áherslur
ríkisstjórnarinnar á kostnað
hagsmuna borgarbúa. Hún benti
jafnframt á að 20 prósent afla-
verðmætis kæmu til hafnar í
Reykjavík. „Sjávarútvegurinn er
ein af stoðum reykvísks atvinnu-
lífs,“ sagði Hanna Birna. - þj
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Saka meirihluta
um áhugaleysi
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
ÞRÓUNARHJÁLP Börn í Tsjad og
Sómalíu eru í mestri hættu á að
látast vegn veikinda á meðan
börn í Sviss og Finnlandi eru í
minnstri hættu.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt
Barnaheilla, en markmiðið með
henni er að vekja athygli á mikl-
um skorti á heilbrigðsstarfsfólki
í heiminum, sérstaklega þróunar-
löndum þar sem nauðsyn á bólu-
setningum, lyfjagjöf og aðstoð
við fæðingar geta riðið bagga-
muninn. - þj
Viðamikil úttekt Barnaheilla:
Börn í Tsjad og
Sómalíu í hættu
ÞURFA HEILBRIGÐISAÐSTOÐ Þessi börn í
Sómalíu þurfa nauðsynlega á aðstoð að
halda. NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS