Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 38
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR26
Ástkær móðir mín, félagi og vinur,
Susann Mariette
Schumacher
fyrrverandi flugfreyja, andaðist í faðmi fjölskyldunnar
mánudaginn 29. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni,
Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 15.00.
Þökkum fyrir sýndan kærleik, ást og vinarhug.
Þorvaldur Skúlason Schumacher
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og dóttir,
Anna Þóra Pálsdóttir
Grænukinn 27, Hafnarfirði,
sem andaðist á heimili sínu 31. ágúst, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 9. september kl. 15.00.
Gróa Jóhannsdóttir Arnaldur Sigurðsson
Guðný Jóhannsdóttir Jón Einarsson
Fríða Jóhannsdóttir Magnús Waage
Sigurður Borgar og Jóhann Snær Arnaldssynir
Ingunn Þóra og Eva Rún Einarsdætur
Arnar og Alex Jónssynir
Annika og Freyr Waage
Tinna Mjöll og Katrín Lilja
Gróa Guðmundsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Björn Hafsteinn
Jóhannsson
rekstrartæknifræðingur,
Stóragerði 42, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðviku-
daginn 31. ágúst 2011. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík fimmtudaginn 8. september kl. 11.00. Blóm
og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast Björns er bent á MND-félagið
og líknardeildina í Kópavogi.
Þrúður Guðrún Sigurðardóttir
Svana Helen Björnsdóttir Sæmundur E. Þorsteinsson
Brynja Dís Björnsdóttir Örvar Aðalsteinsson
Hildur Inga Björnsdóttir Jóhann Kristjánsson
Þórdís Björnsdóttir
Björn Orri, Sigurður Finnbogi og Þorsteinn Sæmundssynir
Birkir, Drífa og Kári Örvarsbörn
Æsa Jóhannsdóttir og Alda Ægisdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigríður Beinteinsdóttir
á Elliheimilinu Grund í Reykjavík,
áður til heimilis að Langholtsvegi 143,
sem lést fimmtudaginn 1. september, verður jarðsungin
frá Langholtskirkju föstudaginn 9. september kl. 11.00.
Aðstandendur þakka starfsfólki á deild V2 á Grund
fyrir kærleiksríka umönnun.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Grundar.
Synir, tengdadætur, börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Beinteinn Ásgeirsson
Einar Gunnar Ásgeirsson Sigrún Hjaltested
Ólafur Már Ásgeirsson Camilla Hallgrímsson
Valgeir Ásgeirsson Þórunn J. Sigurðardóttir
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma okkar,
Elín Birna Árnadóttir
Hafravöllum 17, Hafnarfirði,
lést að kvöldi 1. september á Líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 13. september kl. 13.00.
Ómar Valgeirsson
Valgeir Árni Ómarsson
Aníta Ómarsdóttir Örnólfur Elfar
Bjarki Dagur Anítuson
Ómar Örn Elfar
Kristel Birna Elfar
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðbjörg Ólafsdóttir
frá Ísafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu EIR sunnudaginn
4. september. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju
mánudaginn 12. september kl. 15.00.
Gísli Guðbrandsson
Ólafur Vignir Sigurðsson Inga Fanney
Jónasdóttir
Guðmundur Hafsteinn Sigurðsson Ásdís Tryggvadóttir
Anna Filippía Sigurðardóttir
Stefán Bjarni Gíslason Ulrika Fransson
María Sigríður Gísladóttir
Guðbjörg Ólafía Gísladóttir Gylfi Skarphéðinsson
Gleraugnasalan 65 fagnar fimmtíu
ára afmæli í ár en hún er elsta starf-
andi gleraugnaverslun landsins. Ein-
ungis tveir eigendur hafa haldið um
stjórnartaumana frá upphafi og hefur
sjónfræðingurinn Rüdiger Þór Seiden-
faden, núverandi eigandi, starfað hjá
fyrirtækinu í þrjátíu ár.
Hann er Þjóðverji eins og stofnand-
inn Walter Lentz sem hóf starfsemina
á Laugavegi 12. Hann flutti á Lauga-
veg 65 árið 1973 og þar hefur verslunin
verið síðan.
Rüdiger segir að gömul gildi hafi
ávallt verið höfð að leiðarljósi. „Sem
dæmi um það má nefna að Walter fékk
alls kyns kauptilboð á sínum tíma en
bauð mér að taka við enda þekkti ég vel
til og hafði þjónað sömu viðskiptavin-
um í áraraðir,“ segir Rüdiger sem tók
við versluninni árið 2000. Hann hefur
haldið gömlu gildunum á lofti og fer
varlega í rekstri.
„Þegar allt var á uppleið í þjóðfélag-
inu fékk ég alls kyns gylliboð um að
opna útibú í Kringlunni, Smáralind og
víðar. Við erum hins vegar ánægð á
Laugavegi og fólk veit af okkur hér.“
Gleraugnasalan er sannkallað
fjölskyldufyrirtæki en meðeigandi
Rüdigers er eiginkona hans Inga Jóns-
dóttir. „Við kynntumst hér á sínum tíma
og dætur okkar Silvía og Sandra, sem
hafa starfað við afgreiðslu og bókhald,
hafa verið hér með annan fótinn frá
blautu barnsbeini. Meira að segja sjón-
fræðingurinn okkar Darri Ásbjörnsson
er frændi konunnar en það vissum við
ekki fyrr en eftir að hann var ráðinn.
Þá hefur okkur haldist vel á starfs-
fólki og hefur afgreiðslukonan Helene
Pampichler Pálsdóttir starfað hér frá
árinu 1980. Viðskiptavinir spyrja hana
hvort hún sé hluti af innréttingunum,“
segir Rüdiger og hlær.
Gleraugnasalan býður upp á mikið
úrval umgjarða í öllum verðflokkum
og segist Rüdiger leggja upp úr því að
bjóða heiðarlegt verð. „Við leggjum líka
upp úr fjölskylduvænu starfs umhverfi.
Liður í því er að halda hvíldardaginn
heilagan og gefa fólki færi á að gera
eitthvað með fjölskyldunni. Þannig
getum við líka haldið verðinu niðri því
það kostar að hafa opið um helgar.“
Gleraugnasalan býður auk gleraugna
upp á sjónmælingar, linsumátanir, sól-
gleraugu, íþróttagleraugu og ýmislegt
fleira en á boðstólum eru auk þess sér-
stök veiðigleraugu sem Rüdiger segir
eftirsótt. „Walter var mikill laxveiði-
maður og hann lét hanna fyrir sig veiði-
gleraugu úr polariseruðum glerjum
sem gera veiðimönnum kleift að sjá í
gegnum vatnsyfirborðið,“ lýsir Rüdiger
en hann fær viðskiptavini erlendis
frá sem vilja nálgast gleraugun. Þau
eru ekki framleidd lengur en fást hjá
honum. Þá nefnir Rüdiger að Gler-
augnasalan hafi frá upphafi verið með
umboð fyrir hinar þekktu Silhouette-
umgjarðir á Íslandi og fékk Walter á
sínum tíma viðurkenningu fyrir mest
seldu Silhouette-gleraugu í heimi
miðað við höfðatölu. „Gleraugnasalan
var fyrsta gleraugnaverslunin sem var
með sjónvarpsauglýsingar og það virð-
ist hafa virkað.“ vera@frettabladid.is
ELSTA STARFANDI GLERAUGNAVERSLUN LANDSINS: 50 ÁRA
BYGGIR Á GÖMLUM GILDUM
RÓTGRÓIÐ FYRIRTÆKI Á LAUGAVEGI Hjónin og eigendurnir Rüdiger og Inga vilja hvergi annars staðar vera. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mósaíkmynd eftir Gerði Helgadóttur var
afhjúpuð þennan dag árið 1973. Verkið
er á vegg Tollstöðvarhússins í Reykjavík.
Ástæða þess að ákveðið var að leita
eftir listaverki á húsið var að þar sem
hafnarskemman náði í gegnum húsið út
að Tryggvagötu myndaðist þar 250 m²
gluggalaus veggflötur út að götu. Bygg-
ingarnefnd og arkitekt voru sammála um
að slíkur flötur myndi hafa slæm áhrif á
heildargötumyndina. Haft var samband
við Gerði þegar fjárveiting fékkst í verkið
og hún vann hugmyndina út frá því að
verkið þyrfti að spegla lífið við höfnina.
Það tók Gerði um tvö ár að vinna verkið
sem var unnið og sett upp á árunum
1972 og 1973. Hún vann verkið á verk-
stæði Oidtmann-bræðra í Þýskalandi
sem sáu síðan um uppsetningu á Toll-
húsið. Listakonan hefur hlotið einróma
lof fyrir verkið, sem er 140 m² og er sam-
sett úr meira en milljón steinum.
ÞETTA GERÐIST: 7. SEPTEMBER 1973
Mósaíkmynd Gerðar afhjúpuð
BUDDY HOLLY tónlistarmaður (1936-1959) fæddist þennan dag.
„Dauði hefur oft verið álitinn framaspor fyrir ferilinn.“