Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 23
Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 Græna prentsmiðjan! Þjónusta Veitingahús Ferðaþjónusta HeildsölurÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögVerslun Greiðslulausnir sniðnar að þinni atvinnugrein. Ég er alltaf að þróa mínar vörur. Það eigum við sameiginlegt. Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir í Jurtaapótekinu Hver einasti viðskiptavinur okkar er einstakur og þarfirnar geta verið ólíkar. Með þetta að leiðarljósi höfum við þróað lausnir – sniðnar að þinni atvinnugrein. Hafðu samband og í sameiningu finnum við greiðslulausn sem hentar þínum rekstri. Fyrirtækjalausnir Valitor sími 525 2080 www.valitor.is fyrirt@valitor.is Yoyo Vinsælar sjálfs- afgreiðslubúðir 2 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 7. september 2011 – 13. tölublað – 7. árgangur FRAKKAR Í AÐHALDI F rancois Baron, fjármála - ráðherra Frakklands, segir enga hættu á nýrri kreppu í landinu. Hann kynnti í gær fjárlög næsta árs sem fela í sér strangt aðhald í ríkisfjármálum og hafa ekki síst það markmið að styðja við evruna. Meðal annars hyggjast Frakkar verja ellefu milljörðum evra, eða nærri 1.800 milljörðum króna, í efnahagsaðstoð við Grikkland. SPÁNVERJAR BERA SIG VEL Elena Salgado, fjármálaráðherra Spánar, segir ekkert hæft í því að í síðasta mánuði hafi legið nærri að Spánn þyrfti að leita á náðir Evrópusambandsins og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins um fjárhags- aðstoð, eins og Grikkir, Portúgalir og Írar hafa þurft að gera. STARBUCKS HERJAR Á KÍNA Bandaríska kaffihúsakeðjan Star- bucks hyggur á frekari landvinn- inga í Kína. Áform eru um að þre- falda fjölda kaffihúsa keðjunn- ar í Kína á næstu fjórum árum, þannig að þau verði um 1.500. Nú eru þau 470. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Stjórnendur Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ), dótturfélags Seðlabankans, telja ólíklegt að fá kröfu sína upp á tæpa fimmtíu milljarða króna á hendur Saga Fjárfestingarbanka (áður Saga Capital) og VBS Fjárfestingarbanka greidda að fullu til baka. Bank- inn fékk veð fyrir láni til Sögu í fangið fyrir hálfum mánuði en situr í hópi almennra kröfuhafa í þrotabú VBS. Þeir sem Fréttablaðið ræddi og tengjast mál- inu segja ómögulegt að segja til um hve mikill hluti skuldarinnar fáist greiddur. Mat á endurheimtum liggur engu að síður á borði ESÍ. Krafan á hendur fyrirtækjunum varð til í svoköll- uðum ástarbréfaviðskiptum Saga Capital og VBS sem fólst í því að ausa lausafé úr sjóðum Seðlabanka Íslands til gömlu stóru bankanna. Þegar bankarn- ir fóru á hliðina stóðu Saga og VBS uppi með millj- arðaskuldir gagnvart Seðlabankanum. Skuldinni var breytt í lán til fyrirtækjanna vorið 2009; skuld VBS nam 29,7 milljörðum króna og Saga fékk kröfu Seðla- bankans upp á 19,7 milljarða breytt í lán. Í báðum tilvikum voru lánin til sjö ára og báru þau 2,0 pró- senta vexti. ESÍ fer með kröfur Seðlabankans á hend- ur fjármálafyrirtækjum. Stjórnendur Saga Capital færðu 15,1 milljarð króna af láninu við Seðlabankann inn í eignarhalds- félagið Hildu í október 2009. ESÍ tók Hildu yfir á dögunum og mun unnið að því að vinna úr eigna- safninu til að fá upp í kröfuna. Nær öllu starfsfólki Sögu mun jafnframt hafa verið sagt upp. VBS fór í þrot ári eftir að kröfu Seðlabankans var breytt í lán. Sættir náðust á milli ESÍ og slitastjórn- ar VBS í síðustu viku sem fólu meðal annars í sér krafa ESÍ fór úr því að vera veðkrafa upp á 29,7 millj- arða króna í 25,8 milljarða króna almenna kröfu. Samþykktar forgangskröfur verða greiddar fljót- lega og fá kröfuhafar í þeim hópi allt sitt. Almenn- ir kröfuhafar mæta hins vegar afgangi. Þar á meðal er Seðlabankinn. Saga og VBS borga lítið aftur til ríkisins Litlar líkur þykja á að Seðlabankinn fái greidd lánin sem hann veitti til að bjarga tveimur fjármálafyrirtækjum frá þroti. Annað fyrirtækið fór í þrot en gengið var að hinu. SEÐLABANKINN VIÐ MÆLINN Gömlu stóru bankarnir virðast hafa litið á Seðlabankann sem sparigrís sem gæti útvegað þeim lausafé. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fjárfest var fyrir tæpa 11,8 millj- arða króna hér á landi í fyrra. Þetta kemur fram í svari Árna P á l s Á r n a - s on a r, efn a - hags- og við- skiptaráðherra, v i ð s p u r n - ingu Vigdísar Hauks dóttur, þingkonu Framsóknar- flokksins, um innflutning á aflandskrónum. Spurningin var lögð fram snemma í júní og svar- aði Árni Páll henni í gær. Aflandskrónur eru íslenskar krónur á erlendum gjaldeyris- reikningum og er óheimilt að flytja þær á reikninga íslenskra bankastofnana eða fjárfesta fyrir þær nema eftir krókaleiðum, svo sem með nýlegum uppboðum Seðlabankans á gjaldeyri. Vigdís spurði í júní hverjir hefðu fengið að flytja aflands- krónur til fjárfestinga hér á landi og um hvaða fjárhæðir sé að ræða. Vigdís óskaði eftir því að í svarinu yrði greint á milli Íslendinga og útlendinga. Í svari Árna Páls kemur fram að leitað hafi verið svara hjá seðlabankanum sem fer með eftir- lit með aflandskrónum. Seðla- bankinn vísaði til heimildar um þagnarskyldu og birti ekki hverj- ir hefðu fengið að flytja inn afla- ndskrónur sundurliðað eftir fjár- hæðum. - jab Tólf milljarðar aflandskróna VIGDÍS HAUKSDÓTTIR Gjaldeyrishöft Skaða hagkerfið til lengri tíma 4-5 12 Indverskur fjárfestir Fáir útlendingar vilja fjárfesta hér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.