Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 4
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR4 Enn einu sinni þurftu stjórnar- liðar að svara fyrir málsmeðferð sína varðandi aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi í gær. Málið ætlar að reynast stjórn- inni til ómældra vandræða, enda virðast ekki allir líta svo á að samþykkt Alþingis í málinu hafi úrslitavald. Ummæli Þórunnar Svein- bjarnar dóttur í Kastljósi á mánu- daginn voru olía á eld ágreinings- ins varðandi Evrópusambandið. Þórunn staðhæfði að ríkisstjórnin hefði meðal annars verið mynduð utan um það að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þá skaut hún föstum skotum að Jóni Bjarnasyni fyrir framgöngu hans í málinu. Hún er ekki ein um það. Jón hefur legið undir ámæli fyrir að lúta ekki samþykkt Alþingis frá 16. júlí 2009. Hún er samt býsna skýr og leggur ráðherrum það á herðar að fylgja sjónarmiðum meirihluta utanríkismálanefndar um verklag og meginhagsmuni. Í því áliti segir að endanlegar ákvarðanir í málefnum tengdum aðildarviðræðunum verði í hönd- um ríkisstjórnarinnar, en ekki ein- stakra ráðherra. Þá segir: „Jafnframt er ljóst að starfs- menn úr öllum ráðuneytum og sér- fræðingar úr mismunandi áttum þurfa að koma að aðildarviðræðun- um og eðlilegt að hver fagráðherra og ríkisstjórnin sem heild beri ábyrgð á því hvaða starfsmenn, sérfræðingar og trúnaðarmenn sitja í samninganefnd og teymum er varða ólík efnissvið aðildarvið- ræðnanna.“ Þó nokkuð hefur borið á gagn- ESB er enn vandræðamál Stjórnarandstaðan gagnrýnir meðferð stjórnarinnar á aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Kallað eftir því að ráðherrar fylgi samþykktum Alþingis um aðildarviðræður. Jón Bjarnason einangraður í afstöðu sinni. EVRÓPUMÁL Hvaða áhrif hefur aðildarumsókn að ESB á stjórnasamstarfið? BEÐIÐ FYRIR LAUSN Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson eru ekki samstíga þegar kemur að aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Báðum ber þó að fylgja samþykkt löggjafarsamkundunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn- inni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismála- nefndar.“ Samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009 Fyrirmælin „Ég er ekki þannig þenkjandi að þegar búið er að boða til kosninga þá hætti menn við kosningar út af skoðana- könnunum.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri grænum „Nýtur Jón Bjarnason trausts hjá Björgvini G. Sigurðssyni og þingmönnum Samfylkingarinnar? Hefur komið til tals hjá Samfylkingunni að slíta stjórnar- samstarfinu?“ Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki „Öllum ráðherrum ber fortakslaust að vinna eftir ályktunum Alþingis. Annað er óhugsandi.“ Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingunni „Samþykkti VG að ríkisstjórnin væri stofnuð um það að sækja um aðild að ESB? Það væru ákveðnar fréttir.“ Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki „Í samsteypustjórnum er skoðanaágreiningur. Hann kemur fram innan ríkis- stjórnarinnar og hann kemur fram út á við.“ Þuríður Backman, Vinstri grænum „Er þinginu ljós staðan í viðræðuferlinu? Ég óskaði eftir fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í júlíbyrjun, hann var haldinn í ágúst. Ég bað um sameiginlegan fund með utanríkis- málanefnd, er búinn að bíða hans síðan í byrjun júní.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki Ummæli á Alþingi um aðildarviðræðurnar rýni á tregðu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í aðildarvið- ræðunum og formaður samninga- hóps í landbúnaðarmálum segist ekki hafa umboð ráðherra til að vinna að aðgerðaráætlun í mála- flokknum. Sú vinna er á ábyrgð ráðherra, en einnig ríkisstjórnarinnar allr- ar. Löggjafarvaldið hefur sett skýrar reglur um hvernig staðið skuli að aðildarviðræðunum og því ætti það ekki að vera neinum vafa undirorpið hvernig að þeim skuli staðið. Stjórnarliðar benda því á að þátttaka í viðræðunum eigi ekki að vera túlkunarefni ein- stakra ráðherra, heldur verði þeir að hlýða löggjafanum. Heimildarmenn Fréttablaðsins í röðum stjórnarflokkanna höfðu ekki áhyggjur af því að ráðherrar væru ekki alltaf samstíga í mál- inu. Fundað var um málið í utan- ríkismálanefnd í gær, að beiðni utanríkisráðherra. Þar var farið yfir skýrslu um landbúnaðarmál og byggðaþróun. Upp á Jón Bjarna- son stendur að setja vinnu af stað um þau mál, en ábyrgðin er ríkis- stjórnarinnar. kolbeinn@frettabladid.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 19° 18° 15° 19° 21° 16° 16° 29° 18° 29° 22° 28° 16° 19° 24° 16° Á MORGUN 8-13 m/s. FÖSTUDAGUR Hæg norðlæg eða breytileg átt. 6 6 6 6 5 4 8 10 12 12 11 10 8 8 8 7 10 13 7 7 8 5 10 8 6 3 6 10 9 6 57 NÆTURFROST Nú fer heldur kólnandi á landinu með ákveðinni norðan- átt. Rigningin norðanlands í dag gæti þróast yfi r í slyddu og jafnvel snjókomu til fjalla í kvöld. Víða nætur- frost á landinu í nótt og einnig aðra nótt. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður BANDARÍKIN, AP Meira en þúsund hús hafa orðið skógar- og kjarreldum víða í Texas að bráð síðustu dagana. Flest þessara húsa, eða nærri 600, stóðu í Bastrop-sýslu sem er skammt frá höfuð borginni Austin. Ástandið var heldur skárra í gær en dagana þar á undan, enda hafði lægt þannig að hvassviðri ýfði ekki upp eldana. Engu að síður reyndist erfitt að ná tökum á þeim. Í Bastrop-sýslu þurftu um fimm þúsund manns að yfirgefa heimili sín vegna eldhættunnar. Um 400 manns fengu gistingu í neyðarskýlum. Engar fréttir höfðu borist af mann- tjóni í gær og ekki var vitað til þess að neinn hefði lokast inni á heimili sínu. Á sunnudag lét þó tvítug kona lífið ásamt ungu barni sínu. Miklir þurrkar hafa verið í Texas undanfarið og engin breyting sjáanleg í veðurkortum næstu daga. Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, þurfti að gera hlé á kosningabaráttu sinni, en hann vonast til að verða for- setaefni Repúblikanaflokksins haustið 2012. Þess í stað heimsótti hann einn þeirra bæja sem illa hafa orðið úti í eldunum. - gb Skógareldar í Texas hafa valdið miklu eignatjóni undanfarna daga: Meira en þúsund hús ónýt BARÁTTAN VIÐ ELDINN Erfiðlega hefur gengið að slökkva eldana í Texas. NORDICPHOTOS/AFP HOLLAND, AP Momcilo Perisic, fyrr- verandi yfirmaður júgóslavneska hersins, var í gær dæmdur til 27 ára fangelsisvistar af Alþjóðlega sakadómstólnum í Haag. Hann hlaut þennan dóm fyrir að veita serbneskum hermönnum mikilvæga hernaðaraðstoð, en þeir frömdu fjöldamorðin í Srebrenica árið 1995. Hann er einnig dæmdur fyrir fjögurra ára stanslausan árásarhernað á borgina Sarajevo, þar sem bæði loftárásum og leyni- skyttum var beitt. - gb Serbi dæmdur í Haag: Dæmdur fyrir að aðstoða MENNTUN Háskólinn í Cambridge á Englandi er besti háskóli heims samkvæmt mælingum fyrirtækis- ins QS. Í næstu sætum þar á eftir koma Harvard, MIT, Yale og Oxford. QS gefur árlega út lista yfir bestu háskóla heims. Fyrirtækið skoðar yfir tvö þúsund háskóla árlega og metur síðan sjö hundruð þeirra. Fjögur hundruð efstu skól- unum er svo raðað upp á lista og þrjú hundruð eru birt. Mat á bestu skólunum er marg- þætt. Mest vegur orðstír námsins, eða fjörutíu prósent. Orðstír kenn- ara, fjöldi birtra greina og rit- gerða og hlutfall erlendra kennara og nemenda eru meðal annars sem metið er við gerð listans. - þeb Árleg rannsókn á skólum: Cambridge besti háskólinn Samningur samþykktur Nýgerður kjarasamningur Félags leik- skólakennara og sveitarfélaganna var samþykktur með afgerandi hætti. Alls sögðu 92,2 prósent já. Nei sögðu 5,6 prósent og 2,2 prósent skiluðu auðu. KJARAMÁL GENGIÐ 06.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,6512 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,82 115,36 185,04 185,94 162,84 163,76 21,858 21,986 21,195 21,319 17,836 17,94 1,4884 1,4972 183,14 184,24 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.