Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 16
16 7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is A ndstæðingar þess að Íslendingar fái að kjósa um aðildar- samning við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu gera nú mikið úr því að ESB hafi sett skilyrði fyrir því að hægt sé að fara að ræða landbúnaðarmál í aðildar- viðræðunum. Hvaða skilyrði eru það? Jú, að Ísland leggi fram tímasetta áætlun um hvernig það hyggst uppfylla kröfur Evrópusambandsins um m.a. stjórnsýslu landbúnaðarmála og breytingar á löggjöf, fari svo að þjóðin segi já við aðildarsamningi. Af hverju eru þessi skilyrði sett? Vegna þess að Ísland lýsti yfir að það hygðist ekki byrja að laga stjórnsýslu, löggjöf og stofn- anir sínar að regluverki ESB fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu, færi svo að þjóðin segði já. Í rýni- skýrslu sinni um landbúnað gerir Evrópusambandið engar athugasemdir við þessa aðferðafræði íslenzkra stjórnvalda, þótt hún sé frábrugðin því sem gerzt hefur í öllum öðrum ríkjum sem sótt hafa um aðild. Af hverju kemst Ísland upp með þetta? Eina ástæðan fyrir því er að íslenzk löggjöf, stofnanir og stjórnsýsla eru nú þegar mjög vel aðlagaðar regluverki ESB vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Það sem á eftir að gera, komi til ESB-aðildar, er algjörir smámunir miðað við aðlögun undanfarinna sextán ára. Ísland er reyndar einna stytzt komið í aðlögun á sviði landbúnaðar, en það hjálpar þó heilmikið til að Alþingi skyldi í desember 2009 samþykkja frumvarp Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra um að taka upp stóran hluta af matvælalöggjöf Evrópusambandsins, sem gerbreytir öllu regluverki á sviði matvælaöryggis. Af hverju vill ESB sjá áætlunina áður en viðræður um land- búnaðar málin hefjast? Það er vegna þess að ekki er hægt að ljúka samningaviðræðum við ríki nema aðildarríki ESB hafi fyrir því vissu að þau geti uppfyllt aðildarskilyrðin. Þannig að þótt ESB sætti sig við að Ísland ætli ekki að aðlaga löggjöf sína og stofnanir fyrr en á milli þjóðaratkvæðagreiðslu og gildistöku aðildar, segi þjóðin já, vill það fá að sjá hvernig á að fara að því að gera breytingarnar á svo skömmum tíma. Þýðir þetta að Ísland þurfi að hefja aðlögunina á sama tíma og verið er að vinna að aðildarsamningi, eins og Bændasamtökin halda fram? Nei, Ísland þarf eingöngu að sýna fram á að það sé fært um að aðlaga landbúnaðarkerfi sitt því sem gerist í ESB. Þýðir þetta að Íslendingar fái engar sérlausnir í landbúnaði í samningum við ESB? Nei, þvert á móti er sérstaða Íslands viður- kennd og tíunduð bæði í bréfi ráðherraráðs ESB og í skýrslu fram- kvæmdastjórnarinnar. Af hverju vill Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra þá ekki byrja að vinna að áætluninni um hvernig aðlögun verður hrundið í fram- kvæmd? Af því að hann vill þvælast fyrir aðildarferlinu eins og hann mögulega getur, þrátt fyrir samþykkt Alþingis um aðildar- umsókn og ákvæði í stjórnarsáttmálanum um að þjóðin fái að taka ákvörðun um ESB-aðild. Hann er á móti því. Af hverju er Jón Bjarnason enn í ríkisstjórninni? Svarið við því liggur í tveimur tölum; 32:31. Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is Dulin ást í ferskjublómalandi Allir velkomnir Aðgangur ókeypis Konfúsíusarstofnunin Norðurljós og Háskóli Íslands sýna tævönsku verðlaunamyndina Sýnd í Odda 101 8. sept. kl. 18 Danir hafa náð mjög langt í skapandi greinum og flytja meðal annars út tískuvörur fyrir 527 milljarða íslenskra króna á ári hverju. Við Íslendingar flytjum út tískufatnað fyrir um 3,1 milljarð á ári, en ef við myndum vilja vera á pari við Dani miðað við höfðatölu, ættum við að flytja út tíu sinnum meira eða nær 30 milljörðum króna. Með því að gefa skapandi grein- um meiri gaum og veita ungum vaxandi fyrirtækjum betra rekstrar umhverfi er allt til stað- ar fyrir Íslendinga til að ná mun lengra á þessu sviði. Hugverkaiðnaður (skapandi greinar) er sá vettvangur sem flestar þjóðir telja helsta vaxtar- brodd næsta áratugar. Sérstak- lega er iðnaðurinn mikilvægur fyrir Ísland enda hefur atvinnugreinin næstum ótak- markaða vaxtarmöguleika öfugt við aðrar útflutningsgreinar okkar sem byggja á takmörkuðum auðlindum. Þessi vaxtar- sproti byggir hins vegar á hugviti fólks sem nær með frjórri hugsun, góðri hönnun og ímyndunarafli að skapa mikið virði og bæta þannig arðsemi fyrirtækja, auka útflutningstekjur og fjölga vel launuðum störfum sem eru eftirsótt hjá ungu fólki. Á Íslandi starfa um 1.500 vel menntaðir hönnuðir og arki- tektar. Það þarf að nýta þekk- ingu þessa fólk okkar atvinnulífi til framdráttar og skapa fyrir- tækjunum í þessum geira öruggt og gott rekstrarumhverfi. Þess vegna telur Samfylkingin það lykilatriði að sótt sé um aðild að Evrópusambandinu til að losa fyrirtækin undan sveiflukennd- um, ótraustum gjaldmiðli og bæta aðgengi að mörkuðum. Það er erfitt fyrir lítil fyrirtæki að reka útflutningsstarfsemi með veikan gjaldmiðil, gjaldeyrishöft og innan tollmúra. Þannig dregur krónan úr samkeppnishæfni þessara fyrir- tækja og hár fjármagnskostnaður getur kæft góðar viðskiptahugmyndir. Stjórnmálamenn eiga að einhenda sér í að skapa þessum geira góðan aðbúnað svo að styrkja megi helsta vaxtarsprota íslensks útflutnings. Skapandi greinar snúast ekki bara um fagurfræði heldur líka hagfræði. HALLDÓR Hugverka- iðnaður (skapandi greinar) er sá vettvangur sem flestar þjóðir telja helsta vaxtar- brodd næsta áratugar. Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Verðmæti í skapandi hugsun Úthaldsleysið Þórunn Sveinbjarnardóttir er orðin frjáls kona, að eigin sögn. Af því tilefni fór hún í viðtal við Kastljósið og fór yfir stjórnmálin, ekki síst samstarf Sam- fylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Þórunn velti upp þeirri spurningu hvort allir innan Vinstri grænna hefðu úthald og þolinmæði til að klára kjörtímabilið í samstarfi við Samfylkinguna. Þetta eru athyglisverð orð, ekki síst í ljósi þess að Þórunn Sveinbjarnar- dóttir sjálf hafði ekki úthald eða þolinmæði til að klára það fjögurra ára kjörtímabil sem hún var kjörin til fyrir tveimur árum. Að brigsla öðrum um úthaldsleysi við þær aðstæður er því nokkuð sérstakt. Framsóknarútrásin Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að nýr forstjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, Christine Lagarde, sé Framsóknarkona. Lagarde vill nefnilega skapa störf og draga úr skuldum. Að það sé framsóknar- mennska eru hins vegar ný tíðindi. Hið illa aðhald Lilju Mósesdóttur er illa við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn eins og mörgum sem eru ósammála aðhaldssamri stefnu sjóðsins í opinberum fjár- málum. Í umræðum á Alþingi tengdi Lilja tillögu um skuldaþak á sveitar- félög stefnu sjóðsins. Það væri ófært að sett yrði þak á skuldsetningu sveitarfélaga. Víða í nágranna- löndum okkar er þó slíkt skuldaþak að finna, enda hefur það ekki endilega reynst öllum kjörnum fulltrúum vel að geta skuldsett sveitarfélög óheft. Aðhald þarf nefnilega ekki að vera af hinu illa. kolbeinn@frettabladid.is Hugverka- iðnaður Magnús Orri Schram alþingismaður Spurt og svarað um Evrópumál: Aðlögunar- áætlunin ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.