Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 50
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR38 sport@frettabladid.is Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun! Sjá einnig á www.isi.is 1. stig alm. hluta hefst 26. sept. og 2. stig alm. hluta hefst 3. okt. Gilda jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Skráning á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Nánari uppl. í síma 460-1467 og á vidar@isi.is Laugardalsvöllur, áhorf.: 5267 Ísland Kýpur TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–11 (3–6) Varin skot Hannes 6 - Giorgallides 1 Horn 5–8 Aukaspyrnur fengnar 15–18 Gul spjöld 2-3 Rangstöður 5-6 ÍSLAND 4–3–3 *Hannes Þór Halldórsson 8 Birkir Már Sævarsson 5 Kristján Örn Sigurðsson 8 Hallgrímur Jónasson 7 Hjörtur Logi Valgarðsson 6 Helgi Valur Daníelsson 5 Eggert Gunnþór Jónsson 7 Eiður Smári Guðjohnsen 5 Birkir Bjarnason 5 (83., Björn Bergmann Sigurðarson -) Kolbeinn Sigþórsson 6 (83., Alfreð Finnbogason -) Jóhann Berg Guðmundsson 7 (88., Matthías Vilhjálmsson -) 1-0 Kolbeinn Sigþórsson (4.) 1-0 Jovanetic frá Serbíu (6) KOLBEINN SIGÞÓRSSON er nú búinn að skora fjögur mörk í fyrstu átta A-landsleikjunum sínum en sigurmarkið hans á móti Kýpur í gær var fyrsta mark hans í leik í undankeppni HM eða EM. Kolbeinn hafði fyrir leikinn skoraði 3 mörk í 4 vináttuleikjum en ekki náð að skora í þremur alvöru landsleikjum sínum (2 á móti Danmörku og 1 á móti Noregi). FÓTBOLTI Ítalía og Spánn tryggðu sér sæti í úrslitakeppni EM í gær. Giampaolo Pazzini skoraði eina markið á 85. mínútu í 1-0 sigri Ítala á Slóveníu en Spánverjar léku sér að Liechtenstein á heimavelli og unnu 6-0 sigur. Þjóðverjar eru líka komnir inn á EM auk gestgjafa Pólverja og Úkraínumanna og þá vantar Holland og England aðeins eitt stig til viðbótar til þess að bætast í hópinn. Ashley Young tryggði Englandi 1-0 sigur á Wales á Wembley í gær. - óój Aðrir leikir í undankeppni EM 2012 í gærkvöldi: Ítalía og Spánn inn á EM FÓTBOLTI Það hafa líklega fáir verið jafnánægðir með innáskiptingu Björns Bergmanns Sigurðarsonar í íslenska landsliðið í gærkvöld og móðir hans Bjarney Þ. Jóhannesdóttir. „Já, það var ofboðslega góð tilfinning,“ sagði Bjarney, sem hefur áður séð syni sína Þórð, Bjarna og Jóhannes Karl stíga sín fyrstu spor með landsliðinu. Það er alltaf jafn flott og góð tilfinn- ing að sögn Bjarneyjar. Hún segir Björn Bergmann ótrúlega rólegan og yfirvegaðan og telur það jafnvel hafa hjálpað honum að ná svona langt. „Hann hefur ekkert verið að stressa sig yfir hlutunum. Það er langt í frá,“ sagði Bjarney, sem ætlaði að eiga notalega kvöld- stund með Birni og Þórði heima á Akranesi í gærkvöld. „Ég hugsa að það verði lítið gert. Í mesta lagi keypt pitsa,“ sagði stolt móðir á leiðinni heim á Skagann. - ktd Móðir Björns Bergmann: Alltaf jafn góð tilfinning BJÖRN BERGMANN FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Hannes Þór Halldórsson lék sinn fyrsta landsleik í gær er Ísland mætti Kýpur og stóð sig afar vel. Hann bjargaði oft á ögurstundu og hélt marki sínu hreinu. Íslendingar unnu 1-0 sigur og Hannes brosti út að eyrum eftir leikinn. „Þetta var algjört draumakvöld fyrir mig,“ sagði Hannes. „Sigrarnir eru alltaf sætastir fyrir okkur markmennina þegar við náum að halda markinu hreinu. Það skemmir heldur ekki fyrir ef við fáum boltann í okkur nokkrum sinnum. Liðið átti sigurinn skilið í kvöld. Leikmennirnir lögðu sig allir gríðarlega mikið fram og börðust eins og ljón allan leikinn. Þetta var týpískur sigur liðsheildarinnar. Þetta féll nokkuð vel fyrir mig í kvöld og stundum kemur það fyrir að sóknarmaðurinn sleppur einn í gegn. Þá er frábær tilfinning að ná að redda málunum. Það var frábært að taka þátt í þessu verkefni með landsliðinu og ég varð bara að nýta tækifærið. Þetta er reynsla sem ég mun lifa lengi á.“ Alfreð Finnbogason, sem spilaði síðustu tíu mínútur leiksins gegn Kýpur, var hress í leikslok. „Jú, það er ekki annað hægt. Það var löngu kominn tími á sigur, þetta datt fyrir okkur í dag og við erum hrikalega ánægðir með það,“ sagði Alfreð, sem sagði stemninguna inni í klefa hafa verið skrýtna. „Það er svo langt síðan við höfum unnið leik að ég held við höfum gleymt því hvernig á að fagna. Menn voru fyrst og fremst ánægðir með að enda þetta mót með stolti og sérstaklega fyrir Óla, sem hefur legið undir mikilli gagnrýni,“ segir Alfreð. Alfreð segir gagnrýnina réttmæta enda hafi úrslitin ekki verið góð í mótsleikjum. „Ábyrgðin er að stórum hluta leikmannanna líka. Við getum ekki sett alla ábyrgðina á hann. Við erum samsekir í þessu,“ sagði Alfreð, sem sagði ólíkt betra að ræða við fjölmiðlamenn eftir sigurleiki. „Já, menn hafa verið með kvíða að koma út úr klefanum að tala við blaðamenn en ég held að það geri allir með glöðu geði í kvöld.“ - sáp, ktd Hannes Þór Halldórsson og Alfreð Finnbogason eftir sigurinn á Kýpur í gær: Ég mun lifa lengi á þessu kvöldi HANNES ÞÓR HALLDÓRSSON Fagnar sigrinum í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.