Fréttablaðið - 07.09.2011, Side 8
7. september 2011 MIÐVIKUDAGUR8
Dæmi um það sem
tekið er fyrir í náminu:
Lita- og línufræði
Tónalgreining
Vaxtarbygging
Heitt og kalt rými
Stórt og lítið rými
Uppröðun hluta
Stílistun á:
Baðherbergi
Svefnherbergi
Barnaherbergi
Eldhúsi
Garðhýsi
Stofu
Og margt fleira.
The Academy of Colour and Style býður nú upp á nám í
innanhússtílistun. Farið er í helstu grunnþætti í lita- og
línufræði. Einnig er kennt að meta stíl út frá persónunni
sjálfri. Þá er hún greind út frá vaxtarbyggingu og
litgreiningu en þær upplýsingar segja mikið til um hvernig
einstaklingur vill hafa sitt nánasta umhverfi eins og liti og
stíl. Nemendur vinna svo verkefni í hverri viku og taka þá
fyrir stílistun á stofu, baðherbergi, barnaherbergi o.fl.
Gestafyrirlesarar koma í tíma og kynna fyrir nemendum
ýmis atriði sem koma þeim til góða.
Hver önn tekur þrjá mánuði. Kennsla fer fram í
Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101
Anna F. Gunnarsdóttir
Stílisti
Helga Sigurbjarnadóttir
Innanhúsarkitekt
Þorsteinn Haraldsson
Byggingafræðingur
INNANHÚSSTÍLISTANÁM
TRÚMÁL Verkefni nýs vígslu-
biskups í Skálholti, séra Kristjáns
Vals Ingólfssonar, verða í meiri
tengslum við samfélagið heldur
en störf vígslubiskupa hafa verið
hingað til.
„Nú stendur yfir endurskoðun á
lögum um þjóðkirkjuna og þar er
komið inn á ýmsar breytingar sem
hafa eðlilega í för með sér að emb-
ætti biskups og vígslubiskupa fá
umfjöllun með sama hætti. Ég er í
þessari nefnd og þess vegna hefur
þetta verið mér hugleikið, óháð því
hvort ég er að fara í þetta embætti
eða ekki,“ segir Kristján Valur.
Hlutverk vígslubiskupa nú er
fyrst og fremst að aðstoða biskup
Íslands, að sögn Kristjáns Vals.
„Þeir eru varamenn hans ef hann
forfallast og venjan er sú að sá
sem er eldri í embætti verði settur
biskup Íslands tímabundið. Þetta
eru fyrstu skyldurnar. Síðan halda
vígslubiskupar utan um starfsemi
dómkirknanna á Hólum og í Skál-
holti auk þess sem þeir eru kall-
aðir til þegar deilumál koma upp
milli prests og starfsfólks. Vígslu-
biskupar eru að vissu leyti eins og
stækkuð mynd af prófasti. Síðan
hafa þeir frumkvæði að því að
fylgjast með og styðja starfsemi
heima í sóknunum.“
Kristján Valur segir að í
tengslum við endurskoðunina á
lögum um þjóðkirkjuna fari fram
mikil umræða um aukið sam-
starf og sérstök samstarfssvæði.
„Framvegis þarf ekki hver prestur
fyrir sig að kunna allt best sjálfur.
Einn er kannski betri í æskulýðs-
starfi og annar í öldrunarstarfi og
þess háttar. Prófastar munu koma
meira að skipulagningu samstarfs
þeirra og vígslubiskupar myndu
svo leiða þessa starfsemi í meiri
mæli. Núna eru vígslubiskupar
fyrst og fremst á hinu andlega
sviði við að hugsa um trúna og
kirkjuna. Þeir koma lítið að stjórn-
sýslu kirkjunnar. En kirkjan er
ekki bara stofnun heldur trúfélag
og þannig mun það alltaf verða.“
Væntanlegur vígslubiskup,
sem var rektor Skálholtsskóla um
sjö ára skeið, segir að ekki verði
boðið upp á neitt iðjuleysi í Skál-
holti, eins og hann orðar það. „Það
er stundum sagt að vígslubiskupar
geri ekki neitt. Það getur vel verið
að það sé hægt að leggjast undir
sæng en sá sem lítur út í Skálholti
sér að hann hefur nóg að gera. Það
verður dásamlegt að flytja þang-
að aftur. Þetta eru allt vinir okkar
þarna fyrir austan. Kirkjulífið og
menningarlífið er öflugt og það
verður spennandi að mega taka
þátt í því.“ ibs@frettabladid.is
Framvegis þarf ekki
hver prestur fyrir sig
að kunna allt best sjálfur.
Einn er kannski betri í æsku-
lýðsstarfi og annar í öldrunar-
starfi og þess háttar.
KRISTJÁN VALUR INGÓLFSSON
VÍGSLUBISKUP Í SKÁLHOLTI
Ekki boðið upp á
iðjuleysi í Skálholti
Nýr vígslubiskup í Skálholti segir breytingar verða á embættinu. Vígslubiskupar
munu leiða aukið samstarf innan kirkjunnar. Dásamlegt að flytja í Skálholt.
NÝKJÖRINN VÍGSLUBISKUP Kristján Valur Ingólfsson segir það spennandi að fá að
taka þátt í kirkju- og menningarlífinu í Skálholti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi
ÍTALÍA, AP Mannlíf á Ítalíu lamað-
ist að mestu í gær þegar efnt var til
allsherjarverkfalls um land allt.
Landsmenn vildu með þessu mót-
mæla ströngum aðhaldsaðgerðum
stjórnvalda. Um leið var settur
þrýstingur á stjórn Silvio Berlus-
coni, sem þarf að sannfæra tauga-
óstyrka markaði um að hún geti náð
tökum á skuldavanda ríkisins.
Stjórnin er engan veginn örugg
um að meirihluti sé á þingi fyrir
aðhaldsaðgerðunum, en sagðist í
gær ætla að láta þingmenn jafn-
framt greiða atkvæði um stuðn-
ingsyfirlýsingu við stjórnina þegar
aðhaldsfrumvarpið verður borið
undir atkvæði á þinginu.
Mestallar samgöngur, jafnt á
landi sem á sjó og í lofti lágu niðri
í gær, auk þess sem framleiðsla
flestra fyrirtækja stöðvaðist og
ríkisstofnanir voru að miklu leyti
lokaðar.
„Við erum í verkfalli gegn aðgerð-
um sem er ranglátar,“ sagði Susanna
Camusson, leiðtogi verkalýðsfélags-
ins CGIL. „Við erum í verkfalli gegn
aðgerðum sem eru ábyrgðarlausar
og setja allar byrðarnar á starfsfólk
í opinbera geiranum.“
Aðhaldsaðgerðirnar, sem stjórnin
hefur boðað, hafa sætt mikilli gagn-
rýni og óvissa ríkir um hvort þær
nægja til að ná tökum á skuldavand-
anum. - gb
Allsherjarverkfall á Ítalíu gegn aðhaldsáformum stjórnar Silvio Berlusconi:
Óvíst um samþykki þingsins
MÓTMÆLI Í RÓM Mótmælendurnir
segja sparnaðaraðgerðir stjórnarinnar
ranglátar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP