Fréttablaðið - 07.09.2011, Page 22
ÞAÐ ER UNGA KYNSLÓÐIN...
Við bjóðum vekomnar þær fimm kvikmyndir sem
tilnefndar eru til eftirsóttustu kvikmyndaverðlauna á
Norðurlöndum. Heiðurinn og 350.000 danskar krónur, að
jafnvirði rúmlega 7 milljónum íslenskra króna, skiptist jafnt
á milli handritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda.
5 dómnefndir í norrænu ríkjunum fimm hafa skoðað
rúmlega eitt hundrað kvikmyndir og valið eina kvikmynd í
fullri lengd frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og
Svíþjóð.
Þetta eru framúrskarandi og fjölbreyttar myndir hvað
varðar söguþráð, tegund og stíl og segja má að þær séu
einkennandi fyrir nýja og ferska kynslóð hæfileikafólks.
Um miðjan október verður tilkynnt hvaða mynd hlýtur
verðlaunin og 2. nóvember verða þau afhent við
hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn á
Norðurlandaráðsþingi, en þá verða einnig afhent
Bókmenntaverðlaun, Tónlistarverðlaun og Náttúru- og
umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
Sláist í för með nágrönnum ykkar og njótið sýningarinnar!
Hanne Palmquist
Framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda-
og sjónvarpssjóðsins
FYRRI VERÐLAUNAHAFAR
Norrænu kvikmyndaverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn á
árinu 2002. Þá hlaut finnski kvikmyndaleikstjórinn Aki
Kaurismäki þau fyrir kvikmyndina Mies vailla
menneisyytta (The Man Without a Past).
Kvikmyndaverðlaunin hafa verið veitt árlega
frá árinu 2005, verðlaunamyndir síðan þá eru:
2005: Morðið (Manslaughter) leikstjóri Per Fly,
handritshöfundar Kim Leona, Dorte Høgh, Mogens Rukov og
Per Fly, og framleiðandi Ib Tardini fyrir Zentropa, Danmörku.
2006: Zozo, handritshöfundur og leikstjóri Josef Fares og
framleiðandi Anna Anthony fyrir Memfis Film, Svíþjóð.
2007: Listin að gráta í kór (The Art of Crying) leikstjóri Peter
Schønau Fog, handritshöfundur Bo hr. Hansen (myndin er
byggð á bók Erling Jepsen) og framleiðandi er Thomas
Stenderup fyrir Final Cut, Danmörku.
2008: Þið sem lifið (You, the Living), handritshöfundur og
leikstjóri Roy Andersson og framleiðandi Pernilla Sandström
fyrir Studio 24, Svíþjóð.
2009: Andkristur (Antichrist), handritshöfundur og leikstjóri Lars
von Trier og framleiðandi Meta Louise Foldager fyrir Zentropa,
Danmörku.
2010: Submarino, handritshöfundur og leikstjóri Thomas
Vinterberg, Tobias Lindholm, handritshöfundur, og
framleiðandi Morten Kaufmann fyrir Nimbus Film, Danmörku.
UM VERÐLAUNIN
Markmiðið með Kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs er að kynna úrval og fjölbreytni
kvikmynda sem gerðar eru á Norðurlöndum, að efla norrænt menningarsamfélag og
kynna Norðurlöndin sem heimamarkað fyrir menningu og þar með styrkja stöðu
norrænna kvikmynda á alþjóðamarkaði.
Kvikmyndir sem tilnefndar eru þurfa að hafa sterka tengingu við norræna menningu, vera
hágæða listframleiðsla, vera einstakar og listrænar og sameina og betrumbæta alla þætti
kvikmyndalistarinnar þannig að úrkoman sé sannfærandi og samþætt listaverk.
Dómnefnd er skipuð þremur fulltrúum sem tilnefndir eru af Norrænu ráðherranefndinni
um menningarsamstarf (menningarmálaráðherrunum). Fulltrúar í dómnefnd eru valdir
meðal mikilsmetinna einstaklinga í kvikmyndaheiminum sem hafa faglega innsýn og
reynslu af kvikmyndagerð. Dómnefndin er tilnefnd til þriggja ára.
[Sandheden on mænd]
SANNLEIKURINN
UM KARLA
EFNISKJARNI
Sannleikurinn um karla er ástrík frásögn af kynslóð karla
sem hræðist miklar skuldbindingar, en spyr engu að síður
stórra spurninga um lífið og ástina.
Mads fer að búa með Marie, yndislegri kærustu sinni, en
allt í einu er hann gripinn miklum efa. Er þetta tilgangur
lífsins? Hafa allir draumar hans ræst? Hann kastar öllu frá
sér, flytur frá kærustunni og kastar sér út í
örvæntingarfulla för til að lifa alla stærstu drauma sína,
með það að markmiði að finna tilgang lífsins og hina einu
sönnu.
UM KVIKMYNDINA
Þriðja kvikmynd Nikolaj Arcel í fullri lengd var frumsýnd á
alþjóðavettvangi á Norðurlandakeppni alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg 2011, eftir að
100.000 manns höfðu séð hana í Danmörku.
Sjálfsháðið um hræðslu kvikmyndahandritshöfundar við
skuldbindingar var skrifað af Arcel og Rasmus
Heisterberg, en þeir hafa lengi unnið saman. „Við
ákváðum að aðalpersónan, Mads (Thure Lindhardt)
skyldi vera kvikmyndahandritshöfundur því okkur finnst
það fyndið að maður sem starfar við að greina mannlega
hegðun skuli hafa svo litla stjórn á eigin þroska,“ segir
Arcel. Leikstjórinn sér Sannleikann um karla sem
„karlamynd sem fjallar ekki um morð eða frama, eða bjór
og fótbolta, heldur um tilfinningar, vonir og drauma, um
stóru ákvarðanirnar í lífinu og hinn eilífa efa.
AÐSTANDENDUR
Leikstjóri Nikolaj Arcel
Handritshöfundar Nikolaj Arcel, Rasmus Heisterberg
Framleiðandi Meta Louise Foldager, Louise Vesth
Aðalleikendur Thure Lindhardt, Tuva Novotny,
Rosalinde Mynster, Signe Egholm
Olsen
Framleitt af Zentropa Entertainments
Lengd: 90 mínútur
[Hyvä poika]
GÓÐI SONURINN
EFNISKJARNI
Að lokinni hneykslanlegri frumsýningu, sem ekki gekk vel, flýr
leikkonan Leila í sumarhús fjölskyldunnar við vatnið. Þar er
hún í friðsælu fríi með sonum sínum Ilmari og Unto, en
friðurinn er úti þegar hún býður nokkrum vinum sínum í
háværa helgardvöl. Eftir veisluna býður Leila heillandi og
óútreiknanlega rithöfundinum Aimo að dvelja áfram í nokkra
daga. En 19 ára sonur hennar Ilmari sem er mjög náinn
móður sinni, og hagar sér oft eins og lífvörður hennar, er
fjandsamlegur gagnvart Aimo.
UM KVIKMYNDINA
Eftir velheppnaða frumraun með gerð kvikmyndarinnar Last
Cowboy Standing, valdi Zaida Bergroth að leikstýra minni
mynd sem byggði á persónuuppbyggingu og reyndu á
leikstjórnahæfni hennar. Eiginmaður hennar Jan Forsström er
meðhöfundur að kvikmyndinni og hann klippti einnig
myndina. Góði sonurinn fjallar um Ödipusarsamband móður
og sonar sem nær hámarki og snýst upp í drama.
Aðalhlutverkin leika hin vinsæla finnska leikkona Elina Knihtilä
(The House of Branching Love), Samuli Niittymäki (Run Sister
Run) og Eero Aho (Tears of April). Myndin var frumsýnd í
Finnlandi í mars 2011.
AÐSTANDENDUR
Leikstjóri Zaida Bergroth
Handritshöfundar Jan Forsström, Zaida Bergroth
Framleiðendur Elli Toivoniemi, Mark Lwoff,
Misha Jaari
Aðalleikendur Elina Knihtilä, Samuli Niittymäki,
Eero Aho
Framleitt af OY Bufo Ab
Lengd: 87 mínútur
DANMÖRK FINNLAND