Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 30

Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 30
24. september 2011 LAUGARDAGUR30 V ið Íslendingar stærum okkur gjarnan af sér- stöðu lands og þjóð- ar. Fátt þykir betra en að skara fram úr nágrannaríkjunum. Ísland á þó eitt met sem sjaldnast er notað til að slá um sig með á manna- mótum, en það er Norðurlandametið í málþófi þingmanna. Eins og landsmenn urðu varir við í lok septemberþings, einu sinni sem oftar, eiga þingmenn í minni- hluta það til að taka mál sem meiri- hlutinn hefur mikinn áhuga á að nái fram að ganga áður en þingi er slitið í nokkurs konar gíslingu. Málþóf er merkilega gagnsætt orð yfir þetta fyrirbæri. Þingmenn í stjórnarandstöðu koma þá í pontu og halda eins langar ræður og þeir komast upp með. Nú síðast voru það þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem börðust gegn breytingum á stjórnarráðinu, en allir flokkar sem sæti eiga á Alþingi hafa staðið fyrir málþófi á undanförnum árum. Það er enginn vafi á að Íslending- ar eiga Norðurlandamet í þessari íþróttagrein þingmanna. Ástæðan er ekki atgervi íslenskra þingmanna almennt, heldur frekar sú að þing- menn nágrannalandanna stunda ekki þessa íþróttagrein. Það er grundvallarmunur á umræðuhefðinni á Alþingi annars vegar og á þjóðþingum Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands hins vegar, segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. Á hinum Norðurlöndunum líta þingmenn svo á að umræður í þinginu eigi að endurspegla mis- munandi skoðanir á málum, en sætta sig við að meirihlutinn ráði framgangi mála. Hér virðast þing- menn hins vegar líta á þingsalinn sem nokkurs konar hnefaleikahring þar sem markmiðið virðist stundum vera frekar að koma höggi á and- stæðinginn en að standa fyrir mál- efnalegri umræðu. „Þessu þarf að breyta. Það þarf tvo til, stjórnarandstaðan verður að virða meirihlutann og stjórnarliðið verður að fara fram af varkárni og skynsemi,“ segir Helgi. Einu sinni málþóf í Finnlandi Í sumum Norðurlandanna hafa þing- menn sett sér reglur um þingsköp sem koma í veg fyrir að stjórnar- andstöðuþingmenn ræði mál út í hið óendanlega í þeim tilgangi að tefja framgang þeirra í þinginu. Í öðrum hefur ekki verið talin þörf á því, enda dettur þingmönnum þar ekki í hug að beita málþófi gegn meiri- hluta þingsins. Í finnsku stjórnarskránni er ákvæði um að þingmenn hafi óskor- aðan rétt til að tjá sig eins oft og lengi og þeir telji sig þurfa. Þar er hins vegar í gildi nokkurs konar heiðursmannasamkomulag um að eyða ekki tíma þingsins í óþarfa, og takmarka ræðutíma. Finnskir þingmenn hafa, eftir því sem næst verður komið, aðeins einu sinni beitt málþófi til að tefja mál. Það var árið 1994, nokkrum dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu landsins í Evrópusam- bandið. Þá ætlaði meirihlutinn að keyra í gegn lagabreytingar, en minnihlutinn vildi sjá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar fyrst. Þingfundur stóð þá óslitið í þrjá og hálfan sólarhring, þar til eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Í Danmörku hafa þingmenn í minnihluta ekki möguleika á að stunda málþóf, en þeir hafa annan neyðarhemil til að stöðva umdeild mál. Þriðjungur þingmanna getur krafist þess að ákveðið mál sé sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú heim- ild hefur ekki verið misnotuð, enda átta þingmenn sig á því að þarna er um neyðarúrræði að ræða og beiting þess getur snúist illilega í höndum þeirra sem ofnota það. Vopn á lokametrum þingsins Hér á landi hefur verið litið á mál- þóf sem valdatæki stjórnarandstöð- unnar. Þessu vopni hefur iðulega verið beitt á lokametrum þings til að tefja umdeild mál, í þeim tilgangi að þvinga meirihlutann til að semja við formenn stjórnarandstöðuflokkanna um málalyktir. Íslenskir þingmenn voru þar til fyrir fjórum árum áberandi lang- orðir í umræðum um umdeild mál á lokametrum þingsins. Ræðutími einstakra þingmanna var í mörgum tilvikum ekki mældur í mínútum heldur klukkustundum, og sumir töl- uðu þar til þeir neyddust til að sinna kalli náttúrunnar. Þetta er nú liðin tíð. Þingmenn hafa ekki lengur ótakmarkaðan ræðutíma í annarri og þriðju umræðu, eins og áður var. Þingsköp- um var breytt með lögum árið 2007 í samvinnu allra flokka annarra en Vinstri grænna. Markmiðið með breytingu á þing- sköpum sem gerð var árið 2007 var ekki að koma í veg fyrir að þing- menn gætu haldið uppi málþófi segir Sturla Böðvarsson, sem var forseti Alþingis árið 2007. „Markmiðið með takmörkununum var að skapa umræður en koma í veg fyrir einræður,“ segir Sturla. Með því að stytta ræðurnar, en takmarka ekki fjölda þeirra, hafi verið ætlunin að gera umræður í þinginu að rök- ræðum milli þingmanna, ekki ein- ræðum sem enginn hlustaði á annar en forseti þingsins, eða sá varafor- seti sem sæti í forsæti í það skiptið. „Það hafði engan tilgang að leyfa einum þingmanni að tala allan dag- inn. Ég er sannfærður um að eftir þessa breytingu urðu umræðurnar á þinginu markvissari og efnislegri,“ segir Sturla. Meðal þess sem breyttist var að þingmenn geta eftir breytingarn- ar í auknum mæli veitt andsvör við ræðum annarra þingmanna. Þannig geta þingmenn svarað því sem upp kemur í ræðu þingmanns strax og henni lýkur, í stað þess að bíða með að svara þar til röðin kemur að þeim á mælendaskrá, gjarnan nokkrum klukkustundum seinna. Verða ekki langlífir í þinginu Þingmenn stjórnarandstöðuflokk- anna hafa nýtt sér möguleikann á að veita andsvör óspart til að auð- velda sér að halda uppi málþófi um umdeild mál. Nýjasta dæmið eru umræður um breytingu á stjórnar- ráðinu fyrir nokkrum dögum. Þar fóru þingmenn stjórnarandstöð- unnar ítrekað í andsvör við ræðum samherja. Sama var uppi á teningnum í umræðum um Icesave-málið haustið 2009. Eins og Fréttablaðið greindi frá meðan á umræðunum stóð skipulögðu þingmenn stjórnar- andstöðunnar málþófið í þaula. Þeir útbjuggu nokkurs konar stundar- skrá þar sem fram kom hvenær hvaða þingmaður ætti að tala, og hverjir af samherjum hans myndu veita honum andsvör. Þingmennirnir ákváðu með öðrum orðum að veita andsvör við ræðu sem þeir höfðu ekki heyrt. Sturla segir þessa hegðun ekki í samræmi við það sem lagt hafi verið upp með þegar lögum var breytt og ræðutími þingmanna takmarkaður. „Endalaus andsvör þar sem menn fara upp til þess eins að tefja er bara til að skemma fyrir. Það er mín trú að þeir þingmenn sem misnota ræðustól þingsins verði ekki lang- lífir í þinginu.“ Klækjastjórnmálin komust svo á enn hærra stig í umræðum um breytingar á stjórnarráðinu á nýloknu þingi. Þá kom það fyrir að þingmenn stjórnarflokkanna ósk- uðu eftir að veita andsvör við ræðum stjórnarandstæðinga í þeim eina til- gangi að koma í veg fyrir að aðrir stjórnarandstæðingar fengju að veita andsvör. Þegar til kom féllu stjórnarliðarnir svo frá því að svara, en þá var orðið of seint fyrir stjórn- arandstæðinga að óska eftir að veita andsvör. Þingmanni leiðist þófið Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, hefur í tvígang lagt fram frumvarp um breytingar á þingsköpum Alþingis sem myndu meðal annars koma í veg fyrir mál- þóf. Það hefur hingað til verið svæft í nefnd, eins og oft gerist með þing- mannafrumvörp. Í frumvarpinu er lagt til að forseti Alþingis ákveði hversu langan tíma þingið skuli taka í að ræða hvert mál. Þeim tíma verði svo skipt milli flokka í hlutfalli við þingstyrk. Í greinargerð með frumvarpinu segir að á móti því að fella út möguleika á málþófi mætti styrkja stjórnarand- stöðuna, til dæmis með því að hluti formanna nefnda kæmi úr hennar röðum, og að minnihluti þings geti knúið á um að umdeild mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þó að frumvarp Sivjar hafi ekki náð fram að ganga hingað til segist hún hvergi af baki dottin og ætlar að leggja það fram enn á ný á kom- andi haustþingi. Hún segist skynja að stuðningur við efni frumvarpsins aukist sífellt í þinginu. Norðurlandameistarar í málþófi Þrengt hefur verið að möguleikum þingmanna til að stunda málþóf með nýlegum breytingum á þingsköpum. Brjánn Jónasson rýndi í þrengri reglur um ræðutíma og komst að því að þær hafa síður en svo slegið vopnin úr höndum þingmanna í minnihluta. Sitjandi ráðherrar fara þó varlega í að gagnrýna málþóf stjórnarandstöðunnar enda tveir methafar í ræðulengd í þeirra hópi. METIÐ SLEGIÐ Ekki voru alltaf margir í þingsalnum þegar málþófsmetið var slegið í umræðum um Icesave-málið. Þingmenn ræddu málið í samtals 135 klukkustundir. Á 135 klukkustundum mætti horfa á sextán þáttaraðir, um 370 þætti, um Simpsons- fjölskylduna vinsælu, eða horfa ellefu sinnum á lengri útgáfurnar af Hringadróttinssögu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ísland ■ Ræðutími takmarkaður en þingmenn mega tala oft. ■ Ekki tímamörk á lengd umræðu um ákveðin mál. ■ Minnihlutinn getur beitt málþófi gegn umdeildum málum. Danmörk ■ Ræðutími takmarkaður. ■ Ekki tímamörk á lengd umræðu um ákveðin mál. ■ Þriðjungur þingmanna getur krafist þjóðar- atkvæðagreiðslu um umdeild mál. Noregur ■ Ræðutími ekki takmarkaður. ■ Fyrirfram ákveðið hversu lengi umræður um hvert mál munu standa. ■ Engin sérstök úrræði fyrir minni- hlutann til að stöðva umdeild mál. Svíþjóð ■ Ræðutími ótakmarkaður, en þingmenn ákveða fyrirfram hversu lengi þeir tala. ■ Ekki tímamörk á lengd umræðu. ■ Engin sérstök úrræði fyrir minni- hlutann til að stöðva umdeild mál. Finnland ■ Ræðutími ótak- markaður, en heiðursmannasam- komulag um að tala stutt. ■ Ekki tímamörk á lengd umræðu. ■ Engin sérstök úrræði til að stöðva umdeild mál, en þingmenn hafa einu sinni beitt málþófi. Þingmenn töluðu lengst um Icesave og EES Mál Ár Klukkustundir Icesave, annað frumvarpið 2009 135 EES 1992 til 1993 101 Fjölmiðlalög 2003 til 2004 83 Sveitarstjórnarlög 1997 til 1998 74 Ríkisútvarpið 2006 til 2007 70 Breytingar á stjórnarráðinu September 2011 59 Stjórnskipunarlög 2008 til 2009 59 Gagnagrunnur á heilbrigðissviði 1998 til 1999 53 Vatnalög 2005 til 2006 52 Aðildarumsókn að ESB 2009 48 Icesave, fyrsta frumvarpið 2009 43 Samtals 777 klukkustundir, ríflega 32 sólarhringar Heimild: Skrifstofa Alþingis ■ LENGSTU RÆÐUR ÍSLANDSSÖGUNNAR Lengstu ræðu sem flutt hefur verið á Alþingi flutti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Hún talaði í samtals 10 klukkustundir og 7 mín- útur í umræðum um húsnæðismál í maí 1998. For- seti Alþingis gerði tvö fundarhlé meðan á ræðunni stóð. Lengst talaði hún samfleytt í 5 klukkustundir og 30 mínútur. Þrír sitjandi ráðherrar eiga ræðumet Össur Skarphéðinsson utanríkis-ráðherra hefur einnig sett met í ræðustól Alþingis, þótt honum virðist ekki hafa legið jafn mikið á hjarta og meðráðherrum hans. Hann á aðra af stystu ræðum sem fluttar hafa verið í þinginu. Hana flutti Össur í maí 2009 í umræðum um Evrópusambandið. Hún var tólf bókstafir, þrjú orð, og hljóðaði svona: „Frú forseti. Jú.“ Með þessu bætti Össur met Þorsteins Pálssonar frá ræðu hans um gjaldþrot einstaklinga árið 1993. Sú ræða var líka þrjú orð, en sam- tals þrettán bókstafir, og hljómaði þannig: „Frú forseti, 212.“ Þar sem þingmönnum ber að ávarpa forseta í upphafi ræðu verður varla lengra komist í að stytta mál sitt í ræðustól. Lengstu samfelldu ræðuna í sögu þingsins flutti Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann talaði í 6 klukkustundir og tvær mínútur um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í apríl 2006. Það er jafnframt næstlengsta ræðan sem flutt hefur verið frá upphafi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.