Íslendingur


Íslendingur - 21.12.1946, Blaðsíða 8

Íslendingur - 21.12.1946, Blaðsíða 8
4 JÓLABLAÐ ÍSLENDINGS 1946 SÉRA FRÍÐRIK A. FRÍÐRSKSSON: GÓÐUR REGN Oft er á þegnskap minnzt á vorri tíð, og er' ]>að að vonum. Ríkjandi merking þess hugtaks er eflausl Ijós þorra manna. Góður þegn er sá, cr rækir skyldur sínar og leggur sig fram í þágu þeirrar heildar, sem hann er hluti af. Hann er virkur og veitandi. Rannig á liann að vera, það skilja nienn. En hvers vegna? A hvaða sanngirnisgrundvelli verð- ur sú krafa gerð, að þegn sé virkur og veitandi? Þeim, að hann er jafnframt og fyrst og fremst óvirkur þiggjandi. Ég læt mér detta í hug — þótt ófróður sé í ætt- fræði orða — að frummerkingin í orðinu þegn sé þiggjandi; að það sé sömu rótar og sögnin að þiggja, og þá sömu merkingar og þegi, sbr. laun- þegi, verkþegi. Þegn er þá sá, er nýtur góðs af umhverfi sínu, félagi sínu, þjóð sinni. Idvort sem frummerking orðsins er þannig rétt skilin eða ekki, þá er vist um það, að hvert mannsbarn jarðar er í óendanlega ríkum mæli þiggjandi — allt frá því, er vér sjúgum hrjóst mæðra vorra, og þar til er vinir vorir veita oss nábjargirnar. Þetta ásannast því meir, sem sam- skipti manna verða meiri og verkaskiptingin víð- tækari. Enginn af oss getur neytt máltíðar, klæðst spjör, byggt húskofa, brugðið Ijá í gras, rennt öngli í sjó, án þess, að þar komi til vit og strit miljónanna, þeirra, sem lifðu fyrr, og þeirra, sem lifa nú. Og hver væri þekking vor, hver hlul- deild vor í listum og hugsjónum, án tilverknaðar hinnar miklu heildar? Margir munu kannast við sam'tal milli lítils drengs og vinnustúlku um það, hve marga menn þyrfti til að húa til eina pönnuköku. Að form- inu til er það mjög barnalegt samtal. Samt er það þrungið af eftirtektarverðum sannindum. Fyrst og fremst minnir það á þá hollu tíma, þeg- ar heimilisfólkið allt taldi sig samábyrgt um fræðslu og uppeldi hinna ungu. Þessi vinnustúlka hafði hugsað út í það, og gerði sér ómak um að koma Pétri litla í skilning um það, að pönnu- kökuna var ekki hægt að búa til án þess, að fjöldi manna víða um lönd, í alls konar iðngrein- um — bændur, malarar, námumenn, smiðir, sjó- menn, kaupmenn, hugvitsmenn — leggðu þar hönd að verki. Til eru postulleg orð, sem vert væri að hver maður þekkti og skildi: „Þér eruð verði keypt- ir“. Postulinn á að vísu sérstaklega við það lausnargjald, er Meistari kristinna manna greiddi mönnunum til frelsis og hamingju. En jafn- framt mega þessi fáu og djúpskyggnu orð minna á þau sannindi, að allir sigrar vizku og kær- leika, svo og öll nytsemdarstörf fortíðarinnar, voru í eðli sínu lausnargjöld í þágu samtíðar og framtíðar. Trúmennska og þegnlund kynslóð- anna frá örófi vetra -— hjá vöggunni, á akrinum, á sjótrjánum, í leitinni að þekkingu og sann- leika — er undirstaðan, sem líf og lífslán hvers manns á jörðunni byggist á. „Þér eruð verði keyptir.“ i ljósi þessara sanninda verður sú krafa sann- gjörn, að hinn óvirki þiggjandi sé jafnframt virk- ur veitandi, þ. e. góður þegn. Þegniðja hans er fyrirfram. vel borguð. Og hver er sá, er allt vill þiggja, en engu launa, og haldi mannsheiðri sín- um jafnframt? í Norður-Ameríku hefir um langt skeið þró- ast mjög kotroskin einstaklingshyggja. Kjarni hennar er hugmyndin um „the seljmade man“, þ. e. manninn, sem gerði allt sjálfur, var einn sinnar gæfu smiður, er öllum óháður, finnst hann mega vera ríki í ríkinu, þarf hvorki að gefa Guði né mönnum dýrðina. Vestrænir hugsuðir hafa í seinni tíð ráðist á þennan hugsunarhátt, og sýna fram á hve meingaður hann er af grunn- færni og vanþakklæti. Það hlýtur að vera af skilningsleysi á þá þakkarskuld, sem hver maður er í við samfélag- ið, þegar menn gerast svo fráhverfir heildinni, að þeir vilja ekkert fyrir hana vinna út yfir það, sem þeirra eigin stundlega þörf og landslög neyða þá til. Það skyldi vera, að þetta andfélags- lega viðhorf hafi ekki heldur farið í vöxt í þessu landi á seinni árum. Hvað um það •— innanlands og utan hefi ég þráfaldlega heyrt fólk rökræða sem svo, — og það með nokkrum yfirburða- þótta: „Eg skipti mér ekki af öðrum, og vil fá að vera óáreittur.“ („Vei, samskotalistum og sölumerkjum“). Allmjög lætur þegnlundarleysið ó sér bera gagnvart opinberum slofnunum, svo sem hrepps- félagi, ríki og kirkju. Hér skal ekki fjölyrt um kirkjuna, því að í því efni hafa vel flestir ís- lendingar, bæði ílón og fullvitar, svo gjörsam- lega tapað áttum, að þeir eru eins og sakleysing- inn i Paradís, sem enga hugmynd hefir um blygð- un. Nærtækara er að minnast á viðhorfið til hreppsins — útsvarssárindin með tilsvarandi um- tali. Eða þá viðhorfið til ríkisins. Fyrir áratug síðan var hér á ferð Vestur-Is- lendingur, einn hinn ágætasti, sem verið hefir, maður, sem unni þjóð sinni heilum huga, vakti í hvívetna yfir sæmd hennar, og varði að miklu leyti ævi sinni og Ijómandi gáfum til að hjálpa þjóðbræðrum sínum að halda hópinn og varð- veita arfinn „að heiman“. Mánuðina, sem hann dvaldi í Reykjavík, bar margt fyrir augu og eyru, sem fékk honum umhugsunar. Hikandi, næstum því í hálfum hljóðum — eins og þegar maður trúir vini sínum fyrir ávirðingum sinna nánustu — sagði hann mér frá því, að skammt frá verustað hans hefðu allmargir menn unnið að opinberri byggingu. Undraðist hann mjög að- gerðaleysi þeirra. Smámsaman varð hann þeim málkunnugur. Þetta reyndust viðkynnilegir menn, engir aumingjar, engin flón. En æruleysið og ótrúmennskan í hugsunarhætti þeirra gagn- vart hinu opinbera gekk alveg fram af honum. í sjálfu sér var það nógu meiðandi fyrir þjóð- erniskennd hans, að sjá íslenzka menn vinna með mannskemmandi sviksemi. En fyrir mann, sem á hinum erlenda vettvangi þoldi ekkert hnjóðs- yrði um heimaþjóðina, var það hreint áfall, að kynnast hugsunarhættinum. Ég veit, að þegar hann hvarf aftur vestur um haustið, bjó hugur hans yfir sársaukakenndum kvíða. Gat það ver- ið, að þjóðmenning íslands væri svona komin? Hve lengi má sú þjóð standast, er fyrirlítur og svíkur sínar eigin stofnanir? En sé svo, að opinberar stofnanir hafi brotið af sér virðingu manna, hverju mundi þá helzt um að kenna? Engu öðru fremur en því, að áhuga skortir, þegnlund og fórnfýsi, á þeim vett- vangi, þar sem mannræktin fer yfirleitt fram, þ. e. í hinum smærri afstöðum heima fyrir, — á heimilunum, í félagslífi og menningarviðleitni hverrar byggðar. Þar liggja háræðar þjóðlíkam- ans, sem miðla hinni menningarlegu næringu. Þegar því fólki hverrar byggðar fjölgar, sem allt . er óviðkomandi, nema eigin hagsmunir og eigin næði, þú er skammt þess að bíða, að þjóðin fari að þjásl af andlegum og siðferðilegum efna- skorti. Margir gera tungu sinni það ómak, að reyna að sannfæra sjálfa sig og aðra um það, að félagslíf almennings sé yfirleitt svo fálmandi, árekstrasamt og umkomulaust, að það sé ekki liðveizlu vert. í mörgum tilfellum væri það alls ekki svo umkomulaust, ef það nyti alls þess þegn- skapar, sem um gæti verið að ræða. Hváð sem um það er, þá er staðreyndin blátt áfram sú, að á þessari brotgjörnu menningarviðleiLni fljóta all- ir, — þeir, sem hafast að, og hinir, sem halda að sér höndum. Eins og mosinn er forsenda og fyrir- rennari hinna miklu skóga, svo er þegnlund fjöld- ans í hinu smáa skilyrði þess, að hver þjóð eigi mikilhæfa þegnskaparmenn í opinberum störf- um og öðrum stórum hlutverkum. Það er svo margt í hverri byggð, sem gera verður, ef vel ó að fara, ■— svo margt, sem engin lög ná til, og er því alveg komið undir þegnlund manna og félagshyggju. í raun réllri er þar eng- inn undanþeginn. Þess gerast þó ófá dæmi, að menn uni því vel, að láta sinn hlut eftir liggja. Frægt atvik kom einu sinni fyrir í Provence í Suður-Frakklandi. Þar var ábóti nokkur, kom- inn á efri ár, víðkunnur fyrir mannúð sína, ljúf- lyndi og kærleiksverk. A sinni löngu starfsævi hafði hann gerl flestum í nágrenni klaustursins eitthvað gott. Byggðarbúar fóru ekki dult með það, hvílíkt happ og heiður það væri fyrir þá, að liafa slíkan ágætismann í byggðinni. Eitt haustið, þegar komið var að vissum vegamótum í ævi hans, samþykktu allir með fögnuði, að byggðarbúar hefðu samtök um að heiðra hann. Vínuppskeran stóð þroskuð á ökrunum. Það varð að samkomulagi, að hver einn skyldi leggja fram vissan mæli af sínu allra-bezta ávaxtavíni og fylla þannig vínámu hins góða ábóta. Stundin kom, afmæli ábótans, og öll byggðin heimsækir hann. Ábótinn gengur að ámunni til að bragða á hinu ljúffenga víni, og þá væntanlega til að (Framhald á 29. síðu).

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.