Íslendingur - 21.12.1946, Qupperneq 18
14 -
JÓLABLAÐ ÍSLENDINGS
1946
Barna og ungíinga-
bækur tii jólanna
Hvíti selurinn
Camall æskuvinnr fjölda fslendinga er þetta óviðjafnanlega, töfrandi
ævintýri lárviðarskáldsins R. Kiplings. Falleg, lítil bók á fögru máli.
Þýðandinn er Helgi Péturs.
,,Við ólftavatn".
Onnur útgáfa af þessari vinsælu barnabók, fyrstu bókar hins unga og
glæsilega ritböfundar Olafs Jób. Sigurðssonar með teikningum eftir
Guðmund Frímann. Sögurnar, sem ltann skrifaði á fermingaraldri og
urðu þess vegna hreint og beint viðburður í ísl. bókmennlalífi, svo vel
voru þær gerðar, málið hreint og frásögnin lifandi, að jafnfætis stóð
því bezta sem við áttum fyrir af barnabókum.
Kvæðabókin okkar.
33 ný söngljóð fyrir börn og unglinga, — undir alþekktum og vinsælum
sönglögum. — Ljóðin eru ort af Steindóri Sigúrðssyni, — létt, auðlærð
og á látlausu máli og yfir þeim öllum glaðvær æskublær, og barnslegur
einfaldleiki. Bókin er skreytt smámyndum úr efni kvæðanna, og eru þær
gerðar af höfundi bókarinnar. Börn og unglinga skortir alltaf nýjar
vísur og kvæði til að syngja við falleg lög, gömul og ný. Og hér er bók
með 33 söngvum við þeirra hæfi, göngusöngvar, skautasöngvar, jóla-
söngvar, — brúðusvefnljóð handa telpum, gamankvæði og sögukvæði
o. fl. o. fl. — Bók sem öll börn munu gleðjast við, ef þau eiga hana á
jólunum.
Prinsessan ó Marz.
Ævintýraljómandi hetjusaga og ásta, sögð með slíku eldfjöri og tneð
þvílíku hugarflugi, að allur hversdagsami veruleikans þyrlast burt, enda
er bún samin af Edgar Rice Borrouglis, höfundi Tarzansagnanna. *
Bókin sem allur heimurinn talar um
í dag. —
Bók hins rnikla skálds mannkynsörlaga og heimsstyrjalda ERICId M.
REMARQUE, bókin, sem búið er að selja meira en EINA MILJÓN
eintök af síðan hún kom út í byrjun þessa árs, hið risavaxna skáldril
um örlög flóttamanna úr öllum álfum heims í „höfuðborg heimsins",
París, á árunum rnilli heimsstyrjaldanna, — bókin, sem af mörgum er
talin eit stórbrotnasta skáldverk þessarar aldar og bera ægishjálm yfir
saintímabókmenntir, — hrikalegt, og feyknum þrungið óp úr undir-
djúpum spillingar og lasta stórborgarinnar, — og þó ómandi af list-
rænni fegurð og hjartaslögum hins mikla mannvinar, og ritsnillings, —
það er bókin:
SIGURBOGINN.
Og það verður ein höfðinglegasta JOLAGJOFIN, sem þú
gelur junclið á bókamarkaðinum þetta ár.
MEÐ AUSTANBLÆNUM
heitir hún síðasla bóldn, sem út hefir komið á íslenzku eftir
liina vinscelu skáldkonu
PEARL S. BUCK,
14 úrvals smásögur, valdar úr úrvals smásagnasafni hennar, því sem
hlotið hefir slíkar eindæma vinsældir meðal enskra þjóða, að þurft hefir
að gefa það.út á hverju einasta ári síðan það kom út fyrst, 1933, —
eða í 12 ár samfleytt, Enda Ijúka allir upp einurn munni þar um, að
bvergi takist henni snilldarlegar í frásagnarlist sinni, sem þó er svo
löfrandi, að ekki er ofmælt að telja hana einn skemmtilegasta skáld-
sagnahöfund nútímans — eins og þeir sem lesið hafa „UNDIR AUST-
RÆNUM HIMNI“, — „DREKAKYN", „í MUNARHEIMI" o. fb,
geta borið um, — bækur sem ýmist eru með öllu uppseldar eða alveg á
þrotum. — Þetta
ÚRVAL ÚR ÚRVALI
hinna dásamlegu smásagna hennar er STÓR OG GLÆSILEG BÓK,
— auðug af spennandi ævintýrum ofin austrænum töfraljóma í snilldar-
búningi stíls og frásagnar.
Jónssonar, Aknreyri
og þá fara menit að hugsa fyrir jólagjöfum handa ættingjum ög vinum. Verzlun vor er enn birg af
ýmiskonar vörum, hentugum til jólagjafa.
M. a. má nefna:
Jarðlíkön
Bréfsefni í kössum og möppum
Seðlaveski úr skinni
Skrifmöppur úr skinni
Myndaalbúm
Innrammaðar myndir
Spil, töfl
(Syrpa, Skíðaspilið o. m. fl.)
, , Höfum bezta úrval í bænum af JÓLAKORTUM,
Ennfremur: Jólaserviettur, jólaumbúðapappír, jóla-
körfur, englahár, knöll, jólamerki og ýmsar fleiri
jólavörur.
Reynið jóloviðskiptin hjó oss.
JÓLABÆKURNAR eru nú flestar komnar á mark-
aðinn. Til jólagjafa fullorðnu fólki viljum vér m. a.
benda yður á þessar:
Saga Vestmannaeyja I—rll, Sigfús M. Johnsen
Jónas Hallgrímsson I—II
Svalt og bjart I—H, Jakob Thorarensen
Heiðnar hugvekjur og mannaminni, Sig. Guðmundss.
Gömul kynni, Ingunn Jónsdóttir
Fomir dansar, víkivakakvæði
Fagra veröld, Tómas Guðmundsson.
Grettis saga (Helgafells)
Handa bömum og unglingum:
Hilda á Hóli Tumi Þumall
Ester Elisabet Stígvélakisi
Hugvitssamur drengur Kolskör
Hanna Ríkarður enski
Polly Víkingurinn o. m. fl
Virðingarfyllst.
BOKAVERZL. EDDA, Akureyri
Sími 334. Pósthólf 42.