Íslendingur - 21.12.1946, Qupperneq 27
1946 JÓLABLAÐ ÍSLENDINGS
“TtiHtTTr-jTTrKrTrvrrr -t-mnTJtfTmrr
M. HELLBEKG:
////////
Smá.sasa
og hugsandi. Hann néri órólega
gaman höndunum, og var það
orðinn einkennandi vani hans.
Hann stjórnaði þeirri deild í
Krafts Magasin, þar sem skinn-
kápur og loðfeldir voru boðnir
almenningi með ótrúlegu verði
— eins og einn af umboðsmönn-,
unum, sem seldi fólki slíkar vör-
ur með afborgunum, orðaði það
við viðskiptavinina.
Tvær ungfrúr, önnur í silki-
kjól og hin í svörtum flauels-
kjól með stóran spánskan kamb
í vel greiddu. hárinu, gengu leti-
lega eftir mosgrænu gólfteppinu
milli raða af stórum speglum og
fáguðum skápum.
Þótt Julius Jensen skipaði
þarna öndvegi, var hann ekki
hamingjusamur. Hann var jafn
vel ekki eins hamingjusamur og
hann hafði verið einni klukku-
stund áður.
Forstjóri Krafts Magasin
hafði einmitt kallað hann inn á
einkaskrifstofu sína, og hann
hafði með sinni alkunnu hrein-
skilni — sem Jensen ekki gat
þolað — gert honum skiljanlegt,
að tímarnir væru að vísu ekki
hagstæðir, en þó finndist hon-
um deildarstjórinn í skinnvöru-
deildinni ennþá aumari. Hann
vildi því gefa honum það vinai’
ráð að reyna að losna við vör-
urnar — ef hann ekki óskaði
að fara sjálfur á undan.
Með þessu lauk viðtalinu.
Þegar Jensen kom aftur upp
í ríki sitt, færði hann sýningar-
stytturnar dálítið til og fór síð-
an að blaða í nokkrum reikning-
um.
Hann óskaði, að þessi bann-
setta rigning hætti sem fyrst.
Honum fannst sér vera svo kalt,
að það var engu líkara en hinn
helgi eldur í sál hans hefði ver-
ið slökktur með ísköldu vatni.
Ungleg, en dálítið gildvaxin
kona kom upp stigann og gekk
hægt inn í salinn. Smálautir
komu í teppið eftir stutta og
gildvaxna fætur hennar.
Augu hennar voru dökk eins
og borðinn á græna hattinum
hennar og nokkrir ljósir, hring-
aðir lokkar gægðust undan hatt
inum, án þess þó að hylja glitr-
andi eyrnahringina. Andlitið
var þakið lagi af ljósrauðu and-
litsdufti,og röddin var dálítið hás
— Eg vildi gjarnan fá að líta
á loðkápu — hún á að vera
góð, sagði hún og leit snöggvast
á Jensen hinum svörtu augum
sínum.
Honum fannst þau lík dádýrs
augum.
Hann vísaði henni til ungu
stúlkunnar í svarta flauelskjóln-
um, með spánska kambinn, og
dró sig síðan í hlé, en athugaði
hana þó í laumi.
Það l'eit ekki út fyrir, að hún
væri ánægð með neitt af því,
sem henni var sýnt. Hver skáp-
urinn eftir annan var tæmdur,
og kápurnar breiddar fyrir
framan hana.
Hún ýtti því öllu til hliðar
með fyrirlitningarsvip.
Átti hann að þora að vona,
að hún vildi kaupa eitthvað dýr-
ara?
Fíni persianpelsinn var fín-
asti loðfeldurinn, sem þeir áttu.
Jensen horfði á hana rannsak-
andi augnáráði. Jú — það var
bezt að reyna.
Þegar hún sá loðfeldinn, urðu
augu hennar blátt áfram star-
andi, og ónægjusvipurinn vék
fyrir ánægjulegu brosi.
Þessi já, þetta er einmitt það
sem ég var að leita að, sagði
húm — Takið allt hitt í burtu.
Hún hjúfraði lítinn, grann-
vaxinn líkamasinn með velþókn
un inn í þenna hlýja skraut-
feld.
— Hvað kostar hann?
— Þrjú þúsund og átta
hundruð krónur, frú, sagði Jen-
sen ástúðlega.
— Það er ágætt, og mér
finnst líka pelsinn klæða mig
prýðilega.
— Ef mér leyfist að láta í Ijós
mitt álit, sagði Jensen — þá er
alveg eins og hann hafi verið
saumaður á frúna.
Hún gekk nokkra stund fram
og aftur fyrir framan spegilinn.
— Eg kaupi hann. — Nú skal
ég skrifa ávísun handa yður,
sagði hún og dró upp ávísana-
bók.
— Frúin mun áreiðanlega
ekki iðrast þess. Það tekur ekki
nema einn dag að fá ávísunina
innleysta, en ef þér viljið láta
okkur fá heimilisfang yðar,
skulum við senda yður loðfeld-
inn.
Dádýrsglampinn hvarf skyndi
lega úr augum hennar.
— Eg get alls ekki beðið eftir
því. Eg vil fá feldinn með mér
nú þegar.
Það fór nú að fara sm Jen-
sen, og hann fann, að fætur
hans urðu óstöðugir.
— Því miður er þetta föst
regla verzlunarinnar. En andar-
tak. — Úr því að svona stendur
á, vonast ég til að geta hjálpað
yður.
Honum hafði dottið gott ráð i
hug, en það kom aðeins fyrir
einu sinni — eða í mesta lagi
tvisvar á ári. Hann þekkti aðal-
gjaldkerann í banka þeim, sem
ávísunin var stíluð til. Hann
flýtti sér að símanum.
Skömmu seinna ljómaði and-
lit hans. — Já — já, sagði aðal-
| gjaldkerinn, — frú Svane hefir
I viðskipti hérna við bankann.
J Hvað? — ég heyri ekki. — Jú,
' það er hún. — Er ekki annað.
sem þú vildir vita? — Nú, já,
— jú hún á peninga hér. Vertu
sæll.
Julius Jensen lagði heyrnar-
tækið á og flýtti sér inn aftur
yfir mosagræna teppið, sem lá
milli hans og viðskiptavinarins.
Eina sjáanlega lifandi veran
var stúlkan í flauelskjólnum
með spánska kambinn. Hún
stóð fyrir framan spegil og lag-
aði á sér hárið.
— Nú, sagði Jensen hörku-
lega.
— Undir eins og þér voruð
farinn, fór hún úr loðfeldinum
og fleygði honum á borðið. Hún
þaut burtu áður en ég gat stöðv-
að hana. Hún var bálvond. og
sagðist aldrei hafa fengið slíkar
móttökur. Hún var blátt áfram
óð.
Jensen greip um höfuðið.
Hann kom ekki upp nokkru
orði.
Síðan leit hann á pers'.an-
feldinn með hatursaugnaráði.
Unga stúlkan tók eftir þessu
og sagði með samúð í röddinni.
•— Konur eins og hún eru svo
skapmi^lar, Jensen.
Hann hneig niður á stól.
23
T'-Trmn gat 'c-kireH gert. Grð for-
stjórans dönsuðu með logandi
letri fyrir augum hans.
Skömmu seinna lyfti hann
höfðinu og hlustaði. Hann
heyrði dauft ískur og fótatak,
sem þykkt teppið deyfði. Hún
var komin aftur.
Honum fannst hann skyndi-
lega elska allan heiminn.
Þegar hún var komin að hon-
um, brosti hún vingjarnlega.
— Eg lét víst skapið hlaupa
dálítið með mig í gönur, sagði
hún.
Hann hneigði sig mjúklega og
brosti svo dálitlu skilningsbrosi.
— Þetta er allt í lagi, frú. —
Það er alls ekki óvenjulegt, að
fagrar konur séu dálítið örar.
Það verðum við að umbera.
Hvöss ísköld vindhviða skall
á glugganum og kuldahrollur
fór um frúna.
— Guð minn góður, hvað það
er kalt. sagði hún. — Eg hata
kulda. Heyrið þér — ég vildi
gjarnan athuga pelsinn dálítið
betur.
— Eg held við höfum hann
hérna ennþá, sagði Jensen. —
Eg skal sækja hann.
Það fór hitabylgja um Julius
Jensen, er hann sótti persian-
feldinn aftur inn í skápinn.
Hann hélt sjálfur á feldinum,
meðan hún var að fara í hann
og ýtti fimlega hinni flauels-
klæddu til hliðar, er hún hljóp
til að aðstoða hana.
Hann vakti eftirtekt á hinu
fína sniði á kraganum og erm-
unum.
Dálítið holdugur háls hennar
seig með velþóknun inn í mjúk-
an kragann, og hún strauk hönd
unum mjúklega eftir skinninu.
Hann gæti ekki verið betri,
sagði hún lágt og þýtt.
— Frúin á þann eiginleika að
kunna að klæða sig rétt, sagði
Jensen brosandi. '
Hún rétti fram litla hönd,
skreytta glitrandi hringum.
— Hérna er ávísunin, sagði
hún.
Jensen hneigði sig, um leið og
hann tók við henni, og bros
hans geislaði af ánægju og ást-
úð.
Um leið og hún strunsaði
framhjá háu speglunum, tók
hann eftir því, að hún horfði í
hvern einasta þeirra, og honum
sýndust kubbslegir fætur henn-
ar sökkva enn dýpra í teppið.
Unga stúlkan í flauelskjóln-
Framh. á 29. síðu,