Faxi - 01.12.1961, Side 7
F A X I
163
lag eftir Ásdísi Káradóttur við vers eftir
Dagbjörtu Jónsdóttur. Formaður sóknar-
nefndar flutti ávarp frá séra Eiríki Bryn]-
ólfssyni, en hann var sóknarprestur í tæp-
an aldarfjórðung á Utskálum, en dvelur
nti vestan hafs. Var séra Eiríks minnzt með
þakklæti og hlýhug og honum og fjöl-
skyldu hans sendar kveðjur og árnaðar-
óskir. Afmælishátíðin fór mjög virðulega
fram og lauk kl. 8 um kvöldið.
Hlýjar kveðjur berast.
I afmælisfagnaðinum, sem haldinn var í
tilefni aldarafmælis Utskálakirkju, flutti for-
maður sóknarnefndar, Sigurbergur H. Þor-
leifsson, neðanritað ávarp, er söfnuðinum
hafði borizt frá sr. Eiríki Brynjólfssyni, fyrr-
um presti að Utskálum.
Við þetta tækifæri minntist formaður sr.
Eiríks mjög hlýlega í sambandi við tæpan
aldarfjórðungs heilla drjúgan prestsferil hans
hjá Utskálasöfnuði. Nú dveldi hann ásamt
fjölskyldu sinni í fjarlægu landi, en sökum
þessa merkisafmælis kirkjunnar hafi þeim
verið boðið heim til að vera viðstödd á af-
mælishátíðinni. Þá gat hann um veikindi sr.
Eiríks, sem væri ástæðan fyrir því, að þau
hjónin gátu ekki þegið boðið, en að því
hefðu staðið vinir hans úr Útskála-, Kefla-
víkur- og Hvalsnessóknum. Að endingu
flutti Sigurbergur þakkir og árnaðaróskir til
séra Eiríks og fjölskyldu hans og tóku við
staddir undir við ræðumann með því að rísa
úr sætum.
Kæra safnaðarfólk:
Vancouver, 3. nóv. 1961.
Hjartans innilegar kveðjur, þakkir og há-
tíðaróskir til ykkar allra á þessari hátíðar-
stundu. „Þetta er sá dagur, sem Drottinn
gjörði. Fögnum og verum glaðir í honum.“
Við erum með ykkur í anda og samfögnum
ykkur af öllu hjarta. Þið getið ímyndað ykk-
ur, hversu innilega glöð við urðum og þakk-
lát, þegar við fengum heimboð ykkar safn-
Frá veizluhaldinu.
Þorlákur Benedikts-
son flytur ræðu.
aðarfólksins, þótt ástæður leyfðu okkur ekki
að njóta þess.
En það verður okkur ógleymanlegur vottur
um kærleika ykkar, vináttu og tryggð. Hjart-
ans þakkir.
Þegar við nú hugsum til okkar elskulegu
og blessuðu Útskálakirkju, vakna ótal margar
minningar, sem okkur eru innilega kærar og
hjartfólgnar.
Það var hátíða- og helgiblær yfir öllu, sem
þar fór fram bæði í gleði og sorg. Sérstak-
lega eru okkur þó í huga aftansöngvarnir á
aðfangadagskvöld í hátíðabirtu og fögnuði
blessaðra jólanna.
Og samstarfið við organista, söngflokk, með-
hjálpara og sóknarnefnd gat ekki ákjósanlegra
verið. Þar voru allir með einum huga að gera
sitt bezta.
Blessuð Útskálakirkja hefir séð og reynt
margt í 100 ár. Hún hefir fylgzt með lífi
fólksins og tekið þátt í kjörum þess í bliðu
Altaristaflan
í Útskálakirkju.
og stríðu. Hún hefir séð kynslóðir koma og
kynslóðir fara. Hún hefir hlustað á söng hafs-
ins við ströndina og fylgzt með sjómönnun-
um úti á hafinu. Hún hefir verið umvafin
birtu sólarinnar og blasað við augum síns
fólks, örugg og sterk, fögur og mild og minnt
það á hann sem er ljós heimsins og líf og
leiðtoginn allra bezti, frelsara vorn Jesúm
Krist. Hún hefir bent til hæða og minnt alla
á hann, sem er vor Drottinn athvarf frá kyni
til kyns og frá eilífð til eilífðar er hann vor
Guð.
Við biðjum og vonum, að blessuð Útskála-
kirkja megi um ókomna framtíð vera öllum
í Útskálasókn og mörgum fleiri hjartkært
Guðshús, sem bendir til hæða og veitir skjól
og öryggi, frið og gleði, von og trú fyrir hann,
sem er vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Yfir lönd og höf berast til ykkar allra,
kæru vinir, okkar innilegustu kveðjur og
hjartans þakkir fyrir allt fyrr og síðar.
Við biðjum góðan Guð að blessa ykkur öll
og að hann veiti ykkur af sinni miklu náð
heill og farsæld í lífi og starfi.
Guð blessi Útskálakirkju og söfnuð um
alla framtíð.
Með innilegri kveðju.
Guðrún, séra Eiríkur, Guðný, Guðmundur,
Brynjólfur og Katrín.