Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1961, Page 21

Faxi - 01.12.1961, Page 21
F A X I 177 A ðfangadags- kvöldið Gömul íslenzk jólasaga úr ,,Kirkjublaðinu". Klukkan var orðin 5 á aðfangadags- kvöldið, snjógangur var úti og dimmviðri og orðið dimmt fyrir nokkru, því tungls- laust var. Hann Þórður var ekki kominn frá kindunum og Sigga litla var heldur ekki komin, enda var ekki von á henni fyrr en með Þórði. Hún hafði verið látin fara með honum, þegar hann fór til kind- anna um morguninn. Átti hún að fara með mat upp að Heiði til hjónanna, handa þeim og börnunum um jólin og eitt- hvað af fatnaði á yngsta harnið. Margrét var að þvo börnunum og lá nú heldur vel á þeim, því þau áttu að fá að fara í sparifötin sín. Margrét var venju fremur hljóð og döpur í bragði, því að veðrið fór versnandi og komið niðamyrkur. „Eg er hugsandi út af því að hún Sigga mín er ekki komin. Ég vona að hann Þórður hafi þó farið frá fjárhúsunum upp að Heiði til að vera með henni heim, eins og gjört var ráð fyrir. En að hann skuli heldur ekki vera kominn síðan í morgun. Ég vona að það hafi ekki komið neitt fyrir þau eða orðið að þeim. Mér kemur nú til hugar nokkuð, sem bar við hérna þetta kvöld fyrir 10 árum. Ég skal segja ykkur það seinna í kvöld, þegar Sigga er komin, ef hún þá kemur.“ I sama bili kom Bjarni inn úr garðin- um, allur uppfenntur og fötin frosin á hon- um. Hann var farinn að herða svo frostið. „Það er ljóta veðrið, sem komið er“, sagði hann um leið og hann var að losa snjókleprana úr skegginu á sér. „Ég er orð- inn hálfhræddur um, að Þórður hafi það varla heim í kvöld. Það er naumast rat- ljóst orðið. Eða hún Sigga! Það er óhugs- andi, að hún hafi hreyft sig frá Heiði. Ég vildi líka, að hún hefði ekki gjört það. Það er ekki barnaveður úti núna. Hann Þórður hefði átt að taka fyrir, að verða þar líka. Ég vona að þú hafir sent þangað svo mikið af matvælum, góða mín, að það þurfi ekki að vera svangt þar um jólin, þótt þau verði þar í nótt“. „Það hugsa ég. En dauflegt verður hérna í kvöld, ef þau koma hvorugt, og ef við fréttum ekkert af Siggu“. „Að vísu er það leiðara, en við megum vera róleg fyrir því. Ekki þurfum við að láta okkur koma til hugar, að hún hafi farið nokkurt fet frá Heiði. En ekki er óhugsandi, áð Þórður komi, þó að veðrið sé vont. Ég vildi að hann hefði fundið alla sauð- ina, þá væru allar okkar skepnur inni í nótt, nema hún Skjóna. En það þarf nú ekki að tala um hana úr þessu. Það getur margt orðið um skepnurnar allt sumarið á afréttunum. Ég er viss um, að hún væri komin, ef hún væri lifandi, hún, sem alltaf hefir verið vön að koma sjálf um rétta- leytið“. „Aumingja Skjóna. Ég vildi að hún hefði ekki kvalizt mikið“. „En hvað þú ert orðinn fallegur, Nonni minn, svo hreinn og vel greiddur. Og hvað nýju fötin þín fara þér vel. Og þú Gunna og Stína, Stebbi og Mundi, öll í nýjum, fallegum fötum. Góð er hún mamma við ykkur. Ég held að ég þurfi að þvo mér líka og hafa fataskipti. Fötin eru farin að þiðna það utan á mér, að ég kemst nú líklega úr þeim“. Bjarni hafði fataskipti. Margrét sópaði snjóinn og þurrkaði bleytuna af gólfinu. I þeim svifum heyrðist lokið upp bæn- um, og að gengið var inn eftir göngun- um. Var klukkan þá 5!4- Þórður kom inn, allur snjóugur og fros- inn að utan, og hundurinn hans með hon- um. „Komdu sæll, Þórður minn. Þú hefur fengið veðrið. Komstu að Heiði? Veiztu nokkuð um Siggu litlu?“ Þá heyrðist hlátur fyrir aftan Þórð. „Hér er ég“, sagði Sigga og stökk inn á gólfið, þurr og hrein, nema snjóug um fæturna. „Komið þið sæl“, og hún kyssti allt fólkið. „Þegi þú Sigga. Við skulum fyrst hafa fataskipti, og segja svo fólkinu hvað fyrir okkur hefir borið í kvöld. Þið megið ekki spyrja okkur neitt á meðan“. „Þau voru heldur óþolinmóð, systkinin og mamma þeirra enda líka. En vel lá þó á fólkinu, er það var allt komið saman, og ekki sízt á Þórði og Siggu. „Ég get reyndar sagt ykkur það strax, að ég fann alla sauðina og gaf þeim vel, svo að þeir verða ósvangir í nótt“. „Gott er það, Þórður minn, þá held ég að öllum þeim skepnum, sem ég hef yfir að segja, líði vel í nótt, enda get ég aldrei verið vel rólegur eða ánægður nema ég viti að þeim líði vel. Um Skjónu er ég alveg hættur að hugsa og það fyrir löngu“. „Ef þú getur beðið með ferðasöguna ykkar Siggú‘, sagði Margrét, þá vildi ég nú helzt sækja ykkur að borða og ljúka af að skammta fólkinu. Síðan drekkum við kaffið okkar og heyrum svo söguna ykkar á eftir.“ Þegar fólkið var búið að borða og drekka kaffið, hóf Þórður sögu sína, og þótti börn- unum, og ekki sízt Siggu, komið mál til þess. „Þegar ég skildi við Siggu vð Heiðartún í morgun, fór ég að leita sauðanna. Fann ég suma inn hjá Grásteini, suma út á Vindás, og svo hér og hvar. Kom ég þeim heim að húsunum í dagskímu, en þegar ég var búinn að gefa þeim var farið að skyggja, ég orðinn þreyttur og veðrið var að versna. Mig langaði til að komast heim, en ég vissi, að Sigga litla mundi bíða mín á Heiði og þrá að ég kæmi, svo að ég réð af að ganga þangað, helzt þó til þess að segja henni, að vera þar um nóttina. því ég áleit engan veginn fært fyrir hana heim í þessari ófærð og í myrkri þar á ofan, þó að hann nú ekki herti á fjúkburðinum, sem helzt leit út fyrir. Og ef hann herti, var kominn öskubylur, eins og líka varð. Þegar ég kom, var Sigga orðin sárleið að bíða og óð og uppvæg að fara. Heiðar- hjónin vildu fyrir enga muni sleppa henni. Það var hvort tveggja, að þau treystu

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.