Faxi - 01.12.1961, Qupperneq 29
F A X I
185
Olimpíuhlauparinn
Leikfélagið Stakkur, sem frá var sagt
í síðasta tölubl. Faxa, frumsýndi fyrsta
leikrit sitt, Olimpíuhlauparann, þriðju-
daginn 28. nóvember í Félagsbíó í Kefla-
vík.
Er skemmst frá því að segja, að leik-
ritið er prýðilega æft og frammistaða leik-
aranna yfirleitt með ágætum, svo vart
verður á betra kosið, einkum þó sé tillit
tekið til aðstæðna, t. d. þess, að þetta er
fyrsta tilraun hins unga leikfélags til list-
tjáningar.
Leiktjöld eru máluð af mikilli smekk-
vísi og hagleik af Óskari Jónssyni kennara,
sem er afburðasnjall teiknari og hug-
myndaríkur. Handverk hans eykur mjög
á þann létta og fallega heildarsvip, sem
yfir leiknum hvílir.
Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson.
Hann stundaði leiknám við leiklistarskóla
Þjóðleikhússins og lauk þaðan ágætu
prófi. Síðan hefir hann nokkuð fengist
við leikstjórn, t. d. í Vestmannaeyjum og
Isafirði og einnig mun hann hafa haft
leiklistarnámskeið fyrir byrjendur. Þá
hefir Eyvindur séð um ýmsa þætti til
flutnings í útvarp. Leikstjórn Eyvindar á
Ólimpíuhlauparanum á að sjálfsögðu sinn
þátt í því hversu vel hefir til tekizt með
þetta fyrsta leikrit félagsins.
Ólimpíuhlauparinn er skopleikur í 3
þáttum, eftir Derek Benfield. Þýðinguna
gerði María Thorsteinsson. Leikendur eru
9 og fer leikurinn fram á litlu evrópsku
hóteli.
Hótelhaldarinn, Felix, er leikinn af
Eggert Ólafssyni, sem leysir vandasamt
hlutverk sitt vel af hendi. Hann er kurt-
eisin sjálf fram í fingurgóma, eins og
vera ber og slíkum manni sæmir. Gerfi
Eggerts er þó ekki nógu gott, hann verkar
of unglegur til þess að maður geti full-
komlega sætt sig við hann sem föður Nico-
lette, en hana leikur Þórdís Þormóðsdóttir
af mikilli prýði. Er leikur hennar léttur
og óþvingaður og gæti maður hugsað sér
að hún ætti eftir að sjást í fleiri og stærri
hlutverkum hér, enda er Þórdís ung og
virðist vera góðum leikhæfileikum búin.
Þórunn E. Sveinsdóttir leikur af mikl-
um skörungsskap Agnesi Podmore, hina
fasmiklu eiginkonu, sem leitar að burt-
stroknum manni sínum. Er leikur Þór-
unnar tilþrifamikill og má greinilega sjá,
að hún er enginn viðvaningur á sviðinu.
Basil Trent er leikinn af Kristjáni Jóns-
syni. Er þetta eitt af stærstu hlutverkun-
um og nokkuð vandasamt. Samt gerir
Kristján því hin beztu skil, enda mun
hann hafa nokkra staðgóða þekkingu til
að bera á leiksviðinu.
Bruchik, svartskeggjaðan beljaka, leik-
ur Ingólfur Bárðarson sérlega vel og af
svo mikilli sannfæringu, að maður ósjálf-
rátt vorkennir þeim sem lenda í greip-
um hans.
Homphrey Podmore, eiginmanninn
ógæfusama, er strauk að heiman frá kon-
unni sinni, leikur Yngvi Þorgeirsson. Er
leikur Ingva mjög eðlilegur og sannur,
svo að áhorfandinn kennir í brjósti um
þetta fórnarlamb duttlungasamra örlaga
og samgleðst einnig hjartanlega með þess-
um raunamædda gerfihlaupara, þegar
loksins hamingjan snýr að honum björtu
hliðinni og hann gengur sem sigurvegari
inn á sviðið.
Minni hlutverk fara með: Júlíana Guð-
mundsdóttir, sem leikur íþróttaþjálfara,
Guðrún Bjarnadóttir, er leikur unga
þokkadís, og Sverrir Jóhannsson, sem leik-
ur Ólimpíuhlauparann. Hlutverk þessi eru
ekki stór og gefa takmarkaða möguleika,
en þó kallar frammistaða hinna ungu leik-
ara fram óskir leikhúsgesta, um að fá
síðar að sjá þá aftur og þá með stærri
verkefni í höndum.
Fáu verður nú að þessu sinni við þetta
bætt, en að lokum vil ég koma á fram-
fyri innilegu þakklæti til leikfélagsins og
leikaranna fyrir ánægjulega kvöldstund
með Ölimpíuhlauparanum. Sjaldan eða
aldre hefir hér verið betur gert á þessu sviði,
og það væri því bæði synd og skömm, að
láta þessa leikstarfsemi lognast út af, vegna
vanþakklætis og skilningsleysis bæjarbúa,
en allt bendir til þess að svo verði, ef
næstu sýningar verða ekki betur sóttar en
þær sem þegar eru búnar. — Ólimpíu-
lilauparinn er bráðskemmtilegt og mein-
fyndið leikrit, sem í höndum okkar ungu
og efnilegu leikara á það fyllilega skilið
að vera vel sótt á hverri sýningu. Hér er
sannarlega um menningarlega viðleitni að
ræða, sem verðskuldar fyllsta traust og
stuðning. Fyllum því samkomuhúsið á
næstu sýningum Ólimpíuhlauparans.
H. Th. B.