Faxi - 01.12.1961, Side 34
190
F A X I
Framleiði
holsteina úr bruna
til húsbygginga.
Hefi einnig til sölu
notaðan trjávið,
gólfborð,
panel og fleira.
Steinasteypan
á Nónvörðuhœð
Guðni Bjarnason
Sími 1582
'■---------------------------------------------------------------------------------------------------\
FA "Y I Ritstjóri og afgreiðslumaður: HAULiGR. TH. BJÖRNSSON. Blað-
A A I stjóm: HALLGRÍMUR TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON,
KRISTINN REYR. — Gjaldkeri: GUÐNI MAGNÚSSON. — Auglýsingastjóri:
GUNNAR SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 18,00. — Alþýðuprentsm. h.f.
Fræðslu- og- kynningarfundur
Myndin er af Kútter Keflavík frá 1920,
en þá var þar skipstjóri Símon Svein-
bjarnarson frá Akranesi. Símon var ætt-
aður af Vesturlandi, dugmikill og happa-
sæll sjómaður.
Mánudaginn 27. nóv. s.l. var á vegum
Kaupfélags Suðurnesja haldinn fræðslu- og
kynningarfundur í Aðalveri, Keflavík, og
var til hans boðið afgreiðslukonum úr
búðum kaupfélagsins og skrifstofusúlkum
þess, einnig konum verzlunarmanna fé-
lagsins, aðalfundarfulltrúa, stjórnar og
endurskoðenda.
Gestir á fundinum voru erindreki Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga, Páll H.
Jónsson kennari, kona hans Rannveig
Kristjánsdóttir og Gunnsteinn Karlsson
sölustjóri.
Formaður félagsstjórnar, Hallgrímur Th.
Björnsson, setti fundinn með stuttri ræðu,
lýsti tilgangi hans og tilhögun og bauð
gesti velkomna.
Þá ræddi erindrekinn um Samvinnu-
stefnuna, sögu hennar og áhrif á vaxandi
velmegun þjóða og einstaklinga. Ræddi
hann einnig sérstaklega þátt konunnar í
verzlunarmálum kaupfélaganna. Síðar á
fundinum sýndi hann stutta kvikmynd,
las úr ljóðum Davíðs Stefánssonar og
stjórnaði almennum söng á milli atriða.
Undir dagskrárliðnum: Orðið gefið
frjálst, tóku til máls Gunnar Sveinsson
kaupfélagsstjóri, er gaf stutt yfirlit um
ástand og horfur í verzlunarmálunum
almennt og ræddi um nokkur fram-
kvæmdaratriði ,sem kaupfélagið hefir nú
á döfinni, og frú Aðalbjörg Guðmunds-
dóttir, sem talaði um málefni kaupfélags-
ins frá sjónarmiði húsfreyjunnar, þakkaði
það sem vel væri gert, en fann að öðru,
sem betur mætti fara.
Var þá gengið til kaffidrykkju í boði fé-
lagsins og tekið upp léttara hjal. Að lok-
um sleit svo formaður fundinum, þakkaði
gestunum komuna og góða og gagnlega
fundarsetu.
Höfundur greinarinnar
hér í .blaðinu, Æskuár mín í Grindavík, er
frú Margrét Jónsdóttir, móðir sr. Jóns Guð-
jónssonar prests á Akranesi. Varð hún góð-
fúslega við tilmælum mínum um að segja
hér í blaðinu frá æsku sinni og uppvexti á
Suðurnesjum og birtist hér upphaf þeirrar
frásagnar.
Ritstj.