Faxi - 01.12.1961, Side 43
F A X I
199
Marta Valgerður Jónsdóttir:
HORFINN GISTISTAÐUR
Milli Vatnsleysu og Þorbjarnarstaða í
Hraunum, er einstakt býli, Hvassahraun.
Mun vera röskur klukkutíma gangur til
hvorrar hliðar, þó lengri til Hrauna. Bær-
inn stóð á hól, rétt neðan við þjóðveginn,
sjávarmegin, sem liggur frá Reykjavík til
Suðtirnesja. Heimreiðin lá upp hólinn,
fyrst í aflíðandi halla og í dálitlum boga,
miðja vega var klifið og þar fyrir ofan
brattara upp að bænum. Túnið lykkjað-
ist um hraunbolla og hóla meðfram strönd-
inni, en hraunið teygði sig milli fjalls og
fjöru. Þar var góð beit fyrir fé og skjól
fyrir veðrum í skútum og lautum, en fjöru-
grösin voru líka ágæt beit. A skerjunum
úti fyrir ströndinni, óx þangið, sem var
ríkur þáttur í búskapnum, aðal-eldiviður
búsins. Naustið og vörin, með hlöðnum
kampi niður af bænum; hjáleigurnar,
Hvassahraunskot og Sönghóll innan túns,
Snæfellsjökull út við hafsrönd og hafið,
vítt og voldugt, gulli líkt í roða sólarlags-
ins.
I fallegu lautunum meðfram túnjaðrin-
um, sýndist eins og hvíla væri búin þreytt-
um ferðalang. Það var eins og fyrirboði
þess, er koma skyldi, er gengið var í bæ-
inn. I Hvassahrauni var áningar- og gisti-
staður ferðamanna og hressing ávallt til
reiðu. Hafði svo verið frá því að menn
fyrst mundu.
Það var löng leið, að ganga alla þessa
strandlengju, með nesjum og vogum, milli
Reykjavíkur og Suðurnesja. Stundum voru
fæturnir ekki stórir, sem löbbuðu þessa
leið, og mörg konan fetaði leiðina með
börnum sínum, vor og haust. Var þá farið
í sumardvöl austur um sveitir. Vegurinn
var viðast hvar mjög vondur og likari tröð-
um en vegi, því svo var gatan gengin
niður í svörð og grjót. Frá ómunatíð,
höfðu menn og hestar fetað sig eftir hraun-
hólum, hryggjum og lautum og myndað
götuna, sem víða var orðin furðu djúp,
einkum í Kapelluhrauninu og Almenn-
ingnum, en þar var gatan víða svo djúp,
að baggar á hestum, námu við vegarbarm-
ana og rákust þá oft í. I rigningum var
þarna einn vatnselgur, sem hestarnir ösl-
uðu, en gangandi fólk varð að klöngrast
á eggjagrjótinu uppi á vegarbrúninni.
Það mun vera erfitt fyrir nútímamann-
Þórunn Einarsdóttir.
inn, sem ekur bíl alla þessa strandlengju
á einum klukkutíma, að átta sig á þeim
reginmun á ferðalögum, eða var á fyrsta
tug þessarar aldar, en ferðalög, eins og þau
tíðkuðust þá, hafa sjálfsagt ekki verið ýkja
mikið breytt frá fyrri öldum. Að sjálfsögðu
fóru margir ríðandi, en það voru þeir efna-
meiri. Allur almenningur fór gangandi, en
aðbúnaður þessa fólks var oftast slæmur
og stundum hræðilegur, matur af skorn-
um skammti og jafnvel enginn, skór
þunnir og ónýtir, hlífðarföt óhentug og oft
engin, en byrðar stórar og þungar bornar
í bak og fyrir. Það var því gott að koma
að byggðu bóli á þessari löngu leið og eiga
vísa hressingu, jafnvel bæði andlega og
líkamlega. Það hygg ég, að þeir, sem
þekktu þessi ferðalög, um Suðurnesjaveg,
nefni vart Hvassahraun svo, að þeim komi
ekki í hug sú kona, sem gerði þar garðinn
frægan, fyrir og eftir síðustu aldamót, en sú
kona var Þórunn í Hvassahrauni.
Þórunn húsfreyja í Hvassahrauni, var
fríð sýnum og gervileg á að líta og bar í
svipmóti mikla persónu. Strax við fyrstu
sýn, vakti hún traust, enda varð hún víð-
fræg á þeim þrjátíu árum, sem hún var
húsfreyja í Hvassahrauni, sakir höfðing-
legrar fyrirgreiðslu og hjartagæzku við
ferðafólk og alla þá, er hún náði til. Var
það allra manna mál, að hún vildi hvers
manns vandræði leysa, ef þess var nokkur
kostur og lét margur svo um mælt, að
manngæzkan vísaði henni veginn í mörg-
*
Guðmundur Stefánsson.
um vanda og hefði hún verið fundvís á
leið til líknar, enda var hún dugnaðar-
kona, eins og hún átti kvn til. Þórunn var
greind kona og Ijómandi skemmtileg og
laðaði að sér gesti. Þótti öllum tíminn
fljótur að líða í návist hennar. Snauðu
fólki var svo vel tekið í Hvassahrauni, að
á orði var haft. Var því öllu svo innilega
vel tekið, engu síður en embættismönnum
og efnuðu fólki, en öllum hjálpað og líkn-
að, eins og vinir og ættingjar væru. Atti
Guðmundur bóndi Stefánsson, maður Þór-
unnar, þar jafnan hlut að máli, en hann
var valmenni og samhentur konu sinni til
allra góðra verka.
Stundum var þannig komið högum
ferðafólks, að lífsnauðsyn bar til að þetta
fólk kæmist í góðra manna hús. Það kom
ekki ósjaldan fyrir að fólk félli í yfirlið,
er það hafði t.d. lagt af sér þungar byrðar
sínar og setzt niður til hvíldar í hlýjunni,
svo aðfram komnir voru sumir eftir langa
göngu, lítið viðurværi og margs konar
erfiðleika. Fvrir kom það, að Þórunn tók
á móti fæðandi konu í forstofu sinni. Mun
þá hafa komið sér vcl, að Þórunn var skjót-
ráð og kunni vel að líkna í þeim vanda,
þar að auki var Ingibjörg móðir hennar á
heimilinu, kempa mikil, og ljósmóðir frá
fyrri árum. Konan var lögð í hjónarúmið,
Ingibjörg tók á móti barninu og allt fór
vel og að sængurlegu lokinni fór konan
heim þaðan alheil með barn sitt.
Foreldrar Þórunnar, þau Ingibjörg Páls-