Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1961, Qupperneq 43

Faxi - 01.12.1961, Qupperneq 43
F A X I 199 Marta Valgerður Jónsdóttir: HORFINN GISTISTAÐUR Milli Vatnsleysu og Þorbjarnarstaða í Hraunum, er einstakt býli, Hvassahraun. Mun vera röskur klukkutíma gangur til hvorrar hliðar, þó lengri til Hrauna. Bær- inn stóð á hól, rétt neðan við þjóðveginn, sjávarmegin, sem liggur frá Reykjavík til Suðtirnesja. Heimreiðin lá upp hólinn, fyrst í aflíðandi halla og í dálitlum boga, miðja vega var klifið og þar fyrir ofan brattara upp að bænum. Túnið lykkjað- ist um hraunbolla og hóla meðfram strönd- inni, en hraunið teygði sig milli fjalls og fjöru. Þar var góð beit fyrir fé og skjól fyrir veðrum í skútum og lautum, en fjöru- grösin voru líka ágæt beit. A skerjunum úti fyrir ströndinni, óx þangið, sem var ríkur þáttur í búskapnum, aðal-eldiviður búsins. Naustið og vörin, með hlöðnum kampi niður af bænum; hjáleigurnar, Hvassahraunskot og Sönghóll innan túns, Snæfellsjökull út við hafsrönd og hafið, vítt og voldugt, gulli líkt í roða sólarlags- ins. I fallegu lautunum meðfram túnjaðrin- um, sýndist eins og hvíla væri búin þreytt- um ferðalang. Það var eins og fyrirboði þess, er koma skyldi, er gengið var í bæ- inn. I Hvassahrauni var áningar- og gisti- staður ferðamanna og hressing ávallt til reiðu. Hafði svo verið frá því að menn fyrst mundu. Það var löng leið, að ganga alla þessa strandlengju, með nesjum og vogum, milli Reykjavíkur og Suðurnesja. Stundum voru fæturnir ekki stórir, sem löbbuðu þessa leið, og mörg konan fetaði leiðina með börnum sínum, vor og haust. Var þá farið í sumardvöl austur um sveitir. Vegurinn var viðast hvar mjög vondur og likari tröð- um en vegi, því svo var gatan gengin niður í svörð og grjót. Frá ómunatíð, höfðu menn og hestar fetað sig eftir hraun- hólum, hryggjum og lautum og myndað götuna, sem víða var orðin furðu djúp, einkum í Kapelluhrauninu og Almenn- ingnum, en þar var gatan víða svo djúp, að baggar á hestum, námu við vegarbarm- ana og rákust þá oft í. I rigningum var þarna einn vatnselgur, sem hestarnir ösl- uðu, en gangandi fólk varð að klöngrast á eggjagrjótinu uppi á vegarbrúninni. Það mun vera erfitt fyrir nútímamann- Þórunn Einarsdóttir. inn, sem ekur bíl alla þessa strandlengju á einum klukkutíma, að átta sig á þeim reginmun á ferðalögum, eða var á fyrsta tug þessarar aldar, en ferðalög, eins og þau tíðkuðust þá, hafa sjálfsagt ekki verið ýkja mikið breytt frá fyrri öldum. Að sjálfsögðu fóru margir ríðandi, en það voru þeir efna- meiri. Allur almenningur fór gangandi, en aðbúnaður þessa fólks var oftast slæmur og stundum hræðilegur, matur af skorn- um skammti og jafnvel enginn, skór þunnir og ónýtir, hlífðarföt óhentug og oft engin, en byrðar stórar og þungar bornar í bak og fyrir. Það var því gott að koma að byggðu bóli á þessari löngu leið og eiga vísa hressingu, jafnvel bæði andlega og líkamlega. Það hygg ég, að þeir, sem þekktu þessi ferðalög, um Suðurnesjaveg, nefni vart Hvassahraun svo, að þeim komi ekki í hug sú kona, sem gerði þar garðinn frægan, fyrir og eftir síðustu aldamót, en sú kona var Þórunn í Hvassahrauni. Þórunn húsfreyja í Hvassahrauni, var fríð sýnum og gervileg á að líta og bar í svipmóti mikla persónu. Strax við fyrstu sýn, vakti hún traust, enda varð hún víð- fræg á þeim þrjátíu árum, sem hún var húsfreyja í Hvassahrauni, sakir höfðing- legrar fyrirgreiðslu og hjartagæzku við ferðafólk og alla þá, er hún náði til. Var það allra manna mál, að hún vildi hvers manns vandræði leysa, ef þess var nokkur kostur og lét margur svo um mælt, að manngæzkan vísaði henni veginn í mörg- * Guðmundur Stefánsson. um vanda og hefði hún verið fundvís á leið til líknar, enda var hún dugnaðar- kona, eins og hún átti kvn til. Þórunn var greind kona og Ijómandi skemmtileg og laðaði að sér gesti. Þótti öllum tíminn fljótur að líða í návist hennar. Snauðu fólki var svo vel tekið í Hvassahrauni, að á orði var haft. Var því öllu svo innilega vel tekið, engu síður en embættismönnum og efnuðu fólki, en öllum hjálpað og líkn- að, eins og vinir og ættingjar væru. Atti Guðmundur bóndi Stefánsson, maður Þór- unnar, þar jafnan hlut að máli, en hann var valmenni og samhentur konu sinni til allra góðra verka. Stundum var þannig komið högum ferðafólks, að lífsnauðsyn bar til að þetta fólk kæmist í góðra manna hús. Það kom ekki ósjaldan fyrir að fólk félli í yfirlið, er það hafði t.d. lagt af sér þungar byrðar sínar og setzt niður til hvíldar í hlýjunni, svo aðfram komnir voru sumir eftir langa göngu, lítið viðurværi og margs konar erfiðleika. Fvrir kom það, að Þórunn tók á móti fæðandi konu í forstofu sinni. Mun þá hafa komið sér vcl, að Þórunn var skjót- ráð og kunni vel að líkna í þeim vanda, þar að auki var Ingibjörg móðir hennar á heimilinu, kempa mikil, og ljósmóðir frá fyrri árum. Konan var lögð í hjónarúmið, Ingibjörg tók á móti barninu og allt fór vel og að sængurlegu lokinni fór konan heim þaðan alheil með barn sitt. Foreldrar Þórunnar, þau Ingibjörg Páls-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.