Faxi - 01.12.1961, Síða 45
F A X I
201
dóttir og Einar Þorláksson, höfðu búið
allan sinn búskap í Hvassahrauni og sýnt
ferðafólki sömu góðvild og fyrirgreiðslu og
þau Þórunn og Guðmundur. Þau giftust
7. júlí 1855 og tóku þá við búi þar, af
Onnu Jónsdóttur, móður Ingibjargar, en
Einar hafði það sama vor komið frá Neðra-
dal í Biskupstungum, föðurleifð sinn.
Frú Þórunn var fædd í Hvassahrauni 2.
júní 1864. Var hún fimmta barn foreldra
sinna, en ekki voru þá nema tvö systkini á
á lífi: Guðríður Pálína f. 15. apr. 1856 og
Þorlákur f. 8. des. 1857, en hann lézt 20.
ág. 1865. Hin tvö voru meybarn, sem ekki
hlaut skírn, f. 28. apr. 1860 og Gísli f. 1.
júní 1862, lifði þrjá daga.
Þau börn, sem bættust við, eftir Þór-
unni, voru þessi:
Anna Guðrún Thorlacía f. 13. febr. 1866,
Halldóra Sigríður f. 18. jan. 1868, Einar
Ingvar f. 17. júlí 1870, dáinn 25. júlí sama
ár, og yngstur var Páll Einarsson f. 25.
sept. 1871.
Þau fimm börn, sem upp komust, ólust
öll upp í foreldrahúsum við ágætt uppeldi
og mikið starf. Nutu þau foreldra sinna
fram á fullorðinsár, en innan fjölskyld-
unnar var mikið ástríki og samheldni.
Mun það hafa verið ættgengt í Hvassa-
hraunsætt.
Frú Þórunn var fimmti ættliður, sem
sat að búi í Hvassahrauni, óslitið. Skal nú
minnzt þeirra ættmenna.
Þorbjörn Jónsson f. um 1739. Séð hef ég
á gömlum blöðum, að Þorbjörn hafi búið
í Krýsuvík. Ekki veit ég um sönnur á því,
en á Vogsósum er Jón sonur hans fæddur
1776, svo að á þessum slóðum hefur Þor-
björn verið. Að Hvassahrauni er Þorbjörn
með vissu kominn 1786. Kona hans hét
Anna Magnúsdóttir. Voru þau bæði á lífi
manntalsárið 1801 og bjuggu þá búi sínu
í Hvassahrauni. Þorbjörn var þá 62 ára
og Anna 67. Hún lézt 1802. Börn þeirra,
sem ég veit um, voru Sigríður f. 1770,
kona Sigurðar Oddssonar, sem bjó í
Hvassahrauni 1801, Þorvarður Þorbjörns-
son var fermdur 1787, Jón Þorbjörnsson
lengi bóndi í Hvassahrauni og Hallur var
hjá foreldrum sínum 1801, talinn 23 ára.
Ekki veit ég, hvað orðið hefur um þá bræð-
ur, Þorvarð og Hall, en líklega hafa þeir
báðir komizt til manndómsára, til þess
benda ummæli um Jón Þorbjörnsson, er
eg hefi séð á gömlu blaði: „var mesta
mikilmenni og fjörmaður sem bræður
hans“.
Þorbjörn bóndi hefur líklega dáið á ár-
unum 1805—1810. Þau ár vantar að mestu
í prestsþjónustubók Kálfatjarnarsóknar, en
dáinn er hann 1816.
Jón, sonur þeirra Onnu og Þorbjörns,
hefur byrjað búskap rétt fyrir aldamótin
1800 og stundaði þá aðallega fiskveiðar,
hefur svo, eftir lát föður síns, tekið við
jörðinni. Kona hans var Guðrún Gríms-
dóttir bónda í Sviðholti á Álftanesi Gísla-
sonar. Var hún fædd í Svðholti og skírð
7. nóv. 1771, dáin í Hvassahrauni 27. júní
1846. „Hafði verið góð kona og dugleg“.
Þau Jón Þorbjörnsson og Guðrún áttu tólf
börn, af þeim komust fjögur til fullorðins-
ára, en ættir eru ekki, nema frá tveimur
þeirra. Jón Þorbjörnsson lézt 13. ágúst
1833. Hann var hreppstjóri og talinn af
samtíð sinni mikill merkismaður. Börn
þeirra hjóna, sem upp komust, voru:
Grímur Jónsson, bóndi í Hvassahrauni,
átti Kristínu Grímsdóttur, eyfirzka að ætt.
Dóttir þeirra var Ingibjörg, sem átti
Kjartan Daníelsson, bjuggu þau á Vatns-
leysu. Dóttir þeirra var Ingveldur, móðir
Lúðvígs Guðmundssonar, skólastjóra
Handíða- og myndlistarskólans í Reykja-
vík. (Kennaratal, 457).
Guðmundur Jónsson, bóndi í Hvassa-
hraunskoti, átt Guðríði Ingjaldsdóttur,
barnlaus.
Þorbjörn Jónsson dó um tvítugsaldur og
Anna Jónsdóttir f. 12. jan. 1807 .Hún
giftist um 1830 Páli Jónssyni, sem fæddur
var 23. jan 1799 í Flekkuvík, sonur hjón-
anna Jóns Guðmundssonar og Halldóru
Pálsdóttur bónda á Þorbjarnarstöðum í
Hraunum Þorlákssonar. Þau bjuggu á
Stóru-Vatnsleysu 1801 og voru foreldrar
Jóns einnig þar, þau Guðmundur Jónsson,
65 ára og Anna Stefánsdóttir, 70 ára. Þau
Jón og Halldóra eru komin að Hvassa-
hraunskoti 1817 og bjuggu þar upp frá
því. Halldóra lézt 21. marz 1833 „Vönduð,
góð og valinkunn kona“, en Jón, maður
hennar, lézt í Hvassa'hraunskoti 15. okt.
1840 „af upptekinni æð eftir blóðtöku á
ferðareisu“.
Þau Páll og Anna bjuggu í Hvassa-
hrauni allan sinn búskap, en Páll andaðist
3. des. 1848, bjó Anna eftir það búi sínu
þar til þau Ingibjörg dóttir hennar og
Einar tengdasonur hennar tóku við jörð-
inni 1855.
Börn þeirra Onnu og Páls í Hvassa-
hrauni, sem upp komust, voru:
1. Ingibjörg Pálsdóttir f. 6. febr. 1831,
átti Einar Þorláksson, sem fyrr getur. Hún
var afburða dugleg kona og bjó yfir mik-
illi stillingu og sálarró. Ingibjörg andaðist
í Reykjavík 26. júní 1920.
2. Halldóra Pálsdóttir f. 31. jan. 1835.
Hún giftist Hannesi bónda á Guðlaugs-
stöðum í Blöndudal Guðmundssyni. Sonur
þeirra var Guðmundur læknir og prófessor.
(Læknatal bls. 123).
3. Stefán Pálsson f. 5. febr. 1838, stór-
bóndi á Stóru-Vatnsleysu (Faxi, okt. 1961).
4. Hallur Pálsson f. 6. nóv. 1840, bóndi
í Hvassahraunskoti, átti Solveigu Jónsdótt-
ur frá Vatnsleysu. Synir þeirra voru: Jón,
Hallur og Hafliði. Niðjar eru frá Jóni og
Hafliða, en ekki kann ég skil á þeim.
5. Anna Pálsdóttir f. 6. júni 1843, kona
Guðmundar Guðmundssonar óðalsbónda á
Auðnum á Vatnsleysuströnd. Einkadóttir
þeirra var Kristín, fyrri kona Páls Briems
amtmanns (Lögfræðingatal bls. 289). Fjög-
ur börn þeirra Onnu og Páls dóu ung.
Síðasta húsfreyjan, af ætt þessari, sem
bjó í Hvassahrauni, var Þórunn Einars-
dóttir. Hún giftist 1. nóv. 1884, frænda sín-
um Guðmundi Stefánssyni, sem fæddur
var 30. júní 1861 í Neðradal í Biskupstung-
um, sonur hjónanna þar Stefáns Þorláks-
sonar, sem var albróðir Einars í Hvassa-
hrauni, og Vigdísar Pálsdóttur í Múla,
Bisk. Stefánssonar (Sýsl. IV. bls. 233—
234). Sést á þessu, að þau hjónin í Hvassa-
hrauni voru bræðrabörn. Allar þrjár systur
Þórunnar giftust frændum sínum frá
Neðradal. Guðrún Pálína giftist Stefáni
bróður Guðmundar, Anna Guðrún giftist
Bjargmundi Sigurðssyni, systursyni Einars
í Hvassahrauni og Halldóra Sigríður gift-
ist Helga hónda í Kópavogi bróður Bjarg-
mundar. (S. H. Arnesingaþættr bls. 141—
146). Kona Helga í Kópavogi er þar rang-
lega nefnd Helga. Páll Einarsson var
yngstur og eini bróðirinn, sem lifði, var
bátasmiður og vélamaður á ísafirði og
Reykjavík, d. 1914. Fyrri kona Guðbjörg
Sgríður, f. 17. febr. 1873 Jónsdóttir í Njarð-
vík Gunnlaugssonar á Ásláksstöðum,
Vatnsleysuströnd, Jónssonar. Dóttir þeirra
er Þórunn Ingibjörg fósturdóttir Hvassa-
hraunshjónanna. Einar blikksm. eigandi
Nýju blikksmiðjunnar í Reykjavík og
Jóhanna Pálsdóttir, gift í Hafnarfirði.
Síðari kona Páls var Pálína Jónsdóttir,
f. 11. okt. 1872 á Minni-Vatnsleysu. Dætur
þeirra, sjá B. M. Guðfræðingatal bls. 40
og 172.
Börn Þórunnar og Guðmundar í Hvassa-
hrauni voru þrjú:
1. Kristín Guðmundsdóttir f. 29. júlí