Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 55

Faxi - 01.12.1961, Blaðsíða 55
F A X I 211 Æskuár mín í Grindavík Ritstjóri Faxa hefir farið þess á leit við mig, að ég léti blaðinu í té eitthvað frá ævi minni á Suðurnesjum, en þar er ég borin og barnfædd og átti þar æsku mína og starfsár lengst af. Mér er ljúft að verða við þessum óskum, og set nú á blað nokk- ur minningabrot, sem efst eru í huga mín- um. Eg er fædd á Hópi í Grindavík 12. ágúst 1883. Daginn eftir að ég fæddist, bar að garði á Hópi séra Odd V. Gísla- son, er þá var sóknarprestur í Grindavík, og bjó á Stað. Erindi hans var að tilkynna andlát föðursystur minnar, Margrétar Guðmundsdóttur, er var húsfreyja á Húsa- tóftum í Grindavík, gift Guðjóni Jónssyni. Hún andaðist í Reykjavík, eftir uppskurð. Séra Oddur hóf fréttina með þessum orð- um: Kona horfin af sjónarsviðinu, og önnur komin í staðinn". Átti hann þar við mig, nýkomna í heiminn. Prestur var á heimleið „austan úr hverfi“, er svo var kallað, þ. e. Þorkötlustaðahverfi. Hafði verið beðinn um að skíra þar barn, hvað hann gerði, og hafði því hempu sína og helgisiðabók meðferðis. Svo réðst, að ég yrði skírð þá á stundinni, og gerði séra Oddur það fast við rúm móður minnar, og hlaut ég nafn hinnar nýlátnu föður- systur. Séra Odds Gíslasonar á Stað hefur að vonum verið minnst verðuglega sem brautryðjanda. Eg var á tólfta ári, er hann fluttist úr Grindavík með fjölskyldu sína til Ameríku og man hann því vel. Hann var fríður maður og föngulegur, vinur allra minni máttar og barnavinur, en gat verið harður af sér og ómyrkur í máli við stórbokka, og þá helzt, er hann vissi, að lagzt var á lítilmagnann. Hann var mjög ástsæll og að verðleikum dáður af sóknar- börnum sínum í Grindavík, og naut lengi þeirra sérréttinda meðal þeirra, að vera ávallt nefndur „presturinn". Foreldrar mínir voru þau hjón á Hópi, Guðrún Guðbrandsdóttir og Jón Guð- mundsson. Þau áttu bæði ættir að rekja í Rangárhéraði og þar bæði fædd, hann á Stórólfshvoli, en hún á Eystri Geldinga- læk. Við vorum 12, börnin þeirra. Dreng misstu þau á fyrsta ári, er fæddist mislinga- árið 1882. Hin öll komust til aldurs. Ég er fjórða í röð systkina minna, af sjö systrum. Margra glaðværra stunda er Margrét Jónsdóttir. vissulega að minnast með systkinahópn- um frá bernskuárum. En snemma var mikið lagt á ungar herðar. Lífsbaráttan var hörð og ekki eftir gefið, að hver gerði sem hann frekast gat. Foreldrar okkar barnanna létu sitt ekki eftir liggja. A þessum árum var lífsbjargarinnar von í sjónum. Og þá knúðu Grindvíkingar sín stóru skip, á þeirra tíma vísu, út á miðin með árunum. Faðir okkar gerði út skip og var formaður á því. Hann var hár vexti og þrekmaður, talinn traustur og að- gætinn sjómaður. Flestir á skipi hans voru að jafnaði aðkomumenn, ýmist útgerðar- menn, svo nefndir, eða hlutamenn, sem var algengara, margir úr fjarlægum sveit- um. Margur var þar knár í þcirra hópi og um suma geymast þær minningar hug- ljúfra kynna og góðvildar, sem aldrei gleymast. Meðan föður okkar naut við, sé ég bernsku mína og systkina minna í ljóma öryggis og samfelldrar gleði. Hann var okkur blíður faðir og umhyggjusam- ur. En við nutum hans ekki lengi. A vetrarvertíð árið 1894 geysaði illkynja sótt um Suðurnes. Faðir okkar lagðist í rúmið, fékk lungnabólgu og dó úr henni eftir fáa daga. Vertíðarmaður, aðkominn, dó líka á heimilinu úr lungnabólgu. Fráfall föður okkar, en hann var þá 44 ára, olli mikilli breytingu. Þá voru ekki styrkir til að styðjast við til að seðja svanga munna. Móðir okkar kaus þann kostinn að reyna að halda hópnum saman og berjast því meir, sem þörfin var stærri. Það þurfti kjark til að bjóða þeim aðstæð- um byrginn, sem þá voru. Mér er dánardagur föður míns minnis- stæður, en þá var ég á ellefta ári, og senni- lega frekast af einu. A Hópi var tvíbýli, austur og vesturbær, og áttum við heima í austurbænum. Eg var stödd í vestur- bænum. Einhver sagði gáleysislega frá andláti hans, og ég kenndi mikils sárs- auka. Eg beygði af, en reyndi þó að dylja tár mín. Vermaður á bænum, Guðjón frá Moldnúpi undir Eyjafjöllum, var nær- staddur, sá hvað mér leið og fann til með mér. Seildist hann ofan í verskrínu sína og rétti mér flatköku með smjöri og kæfu á og klappaði á kollinn á mér. Tárin hættu að renna og hjarta mitt fylltist þakklæti. Þetta atvik hefur aldrei liðið mér úr minni. Og enn sé ég inn í augu þessa vinar míns, á þeirri stund, er hann strauk burt sorgartárin af kinn lítillar stúlku. Svo djúp og varanleg geta spor samúðar og ástúðar verið. Það vissi ég um Guðjón frá Moldnúpi, að hann fluttist til Vest- mannaeyja og var búsettur þar. Þegar faðir okkar féll frá, var elztur okkar systkina Guðmundur, 18 ára, 10 innan fermingar og yngst Dagbjört, miss- erisgömul. Tveir bræðranna, Pétur og Guðmundur (yngri) fóru í fóstur til föður- bræðra okkar í Grindavík. Ekki var móð- ur okkar það sársaukalaust að senda þá frá sér, þó að svo yrði að vera. Við hin vorum í skjóli hennar heima á Hópi. Lagð- ist nú þungur vandi á herðar elzta bróður að fylla skarð pabba. Að sjálfsögðu var það ekki unnt til fulls. En hafi nokkur bróðir fórnað sér til hins ýtrasta fyrir syst- kini sín, gerði hann það. Nú settist hann í hið auða sæti föður síns á skipi hans og stýrði því farsællega í mörg ár. Þessum góða bróður var það eitt í huga, að forða heimili sínu, móður og systkinum, frá þeirri vá, sem margir fátækir máttu þola á þessum tíma, að því yrði skipt upp á hreppinn, með þeim afleiðingum, sem því fylgdi æði oft. Hann hafði ekki skapgerð til að lúta því hlutskipti fyrir systkini sín, á öllu sínu skyldi hann fyrr taka. Guðmundur yfirgaf ekki móður sína og heimili okkar á Hópi fyrr en öllu var borgið, við systkinin orðin sjálfbjarga og flest stofnað sín eigin heimili. Þakklætis- skuld okkar við hann er stór, og verður aldrei greidd. Guðmundur var þrekmaður, árrisull og kappsfullur. En þungi róður- inn framan af ævi hans sagði til sín síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.