Faxi - 01.12.1987, Page 9
FA>U
8. tbl. — 47. árgangur
Útgefandi: Málfundafélagiö Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 1114.
Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson,
aðst. ritstj., Jón Tómasson, Ingólfur Falsson, Benedikt
Sigurðsson.
Hönnun, setning og umbrot:
Leturval sf.
Filmu- og plötugerð:
Myndróf.
Prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar.
HELGI HÓLM:
JÓLIN ERU
HÁTÍÐ ALLRA
Jólin - ljóssins hátíð - eru á næstu grösum. Aðdragandinn
að jólunum er tími tilhlökkunar og undirbúnings. Mörgum
vikum fyrir jól vaknar fólk til umhugsunar um jólin og víða
er tekið til hendinni, til þess að hátíðin megi fara sem best
fram. Við gefum okkur betri tíma en oft áður til að rækja fjöl-
skyldu- og vináttubönd. Betri tími gefst til lesturs bóka og
boðskapur Krists fær skarpari hljóm í hugum okkar.
Þótt oft sé það sagt, að jólin séu fyrst og fremst hátíð barn-
anna, þá er rétt að leggja áherslu á, að jólin eru engu að síður
hátíð allra — það skulum við ávallt hafa hugfast. Við íslend-
ingar erum í dag í hópi þeirra þjóða sem brotist hafa úr viðjum
fátæktar og fáfræði. Með miklum dugnaði braut þjóðin af sér
þá hlekki sem slíkt skapar og fyrir það getum við verið þakk-
lát. Og einmitt þess vegna ættum við að gefa okkur tíma til að
íhuga hlutskipti þeirra sem enn búa við bág kjör og leggja lið
baráttunni þeim til hjálpar. Það eru ótalmargir hjálparþurfi í
dag, leggjumst á eitt við að finna þær leiðir sem duga.
Jólablað Faxa er ætíð hápunktur útgáfu hvers árs. Til blaðs-
ins er sérstaklega vandað og eini þess er að mestu leyti helgað
komu jólanna. í blaðinu er að finna kveðjur frá fjölmörgum
einstaklingum og fyrirtækjum til íbúa Suðurnesja. Er það von
útgefenda að Faxi verði lesendum sínum ánægjulegt lesefni
um hátíðarnar.
Faxi sendir lesendum sínum svo og landsmönnum öllum
bestu óskir um
(SíeÖiíeg jóí
og faráœít komanbi ár
Fáein þakkarorð
Mig langar til að biðja Faxa að flytja vinum mínum í Keflavík og Njarðvík
lítið brot af því þakklæti, sem fram í hugann streymir, er ég minnist einlægs
hlýhugar, vináttu og virðingar sem ég ffá þeirra hendi varð í svo ríkum mæli
aðnjótandi í sambandi við sextugsafmæli mitt, hinn 7. október síðastliðinn.
Ég þakka sóknanefndum, kirkjukórum og öðru kirkjustarfsfólki stórhöfð-
inglegar gjafir og hlýjar kveðjur. Fjölmörgum einstaklingum skal einnig heils
hugar þakkað fyrir vinarhug bæði í orði og verki. Síðast en ekki síst þakka
ég svo fyrstu fermingarbörnunum mínum. Þau gera það ekki endasleppt við
mig, sá góði og tryggi hópur. Ekkert hefur vakið einfægri gfeði og dýpri
þökk í hjarta mínu, en sú trausta vinátta þeirra í minn garð, sem varað hefur
allt frá okkar fyrstu kynnum.
Nú líður að jólum. Við hjónin óskum söfnuðunum í Keflavík og Njarðvík
bjartrar, blessaðrar og gleðiríkrar hátíðar og biðjum öllum blessunar Guðs á
farsælum framtíðarvegi.
Bjöm Jónsson.
Stjarna jólanna yfir íslenskri strönd
Ingvar Agnarsson
Jólafriður
Jólanótt, allt er svo hljótt.
Stjörnublik skína skœrt.
Birtuna leggur í barnanna sál.
Blessandi raddir, og himinsins mál
ómar, frá alheimsins geim.
Allir þrá alheimifrá
frið i sál, frið ájörð.
Lífsgeislar styrkjandi falla áfold
frelsandi lœkna þeir huga og hold,
magna þeir orku og ást.
Jarðarbörn, jarðnesku börn,
lyftum hug hœða til.
Fagnandi þiggjum við frelsisins Ijós,
friðinn, sem veitistfrá upþhimins ós.
Ljómandi Ijósið nú skín.
Dýrðarljós fellur á fold.
Fagnar þjóð frelsisstund.
Fjötrar leysast af huga og hönd.
Himneskur söngur um haf og um lönd
ómar frá upphimins slóð.
FAXI 277