Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1987, Qupperneq 13

Faxi - 01.12.1987, Qupperneq 13
sem hann horfði yfir en ekki í gegn um. „Ég er með tékk“, sagði ég. ,,0g hvað ætlarðu að gera við hann“, sagði maðurinn. ,,Fá peninga“, sagði ég. „Láttu mig sjá hann“, sagði maðurinn. Ég rétti fram tékkinn. „Bæjarútgerðin á Siglutirði", sagði hann. „Hvar fékkstu þetta góði“. „Þetta er sumarkaupið mitt“, sagði ég. „Fæ ég ekki peninga fyrir þetta.“ „Ég veit ekki. Þetta er nú ekki góður pappír drengur minn“, sagði hann. Það fór ónotahrollur um mig. Ætli ég fái nú enga peninga hugs- aði ég. En ég fékk peningana. „Farðu nú vel með aurana drengur", heyrði ég manninn segja þegar ég fór útum dyrnar. Þetta var semsé árið 1953. Þá var metvelta hjá Sparisjóðnum í Keflavík. Maðurinn var Guð- mundur Guðmundsson, spari- sjóðsstjóri, ráðinn, eins og segir í bókum „meðan hann treystir sér til eða vill hafa starfið á hendi og gegnir því svo í lagi sé að áliti stjórnar og ábyrgðarmanna". Skyldu menn vera ráðnir þannig í dag. Sennilega ekki. Ég man ekki eftir að hafa komið oftar í Sparisjóðinn á Vallargöt- unni og man heldur ekki eftir að það vekti athygli mína að það hafði orðið metvelta hjá Spari- sjóðnum, en ég man að það rigndi mikið í Keflavík þetta haust og Hafnargatan var kölluð þúsund polla gatan. Þegar ég kom úr skóla 1958, fór ég að vinna á skrifstofu hjá fyrir- tæki sem hét Snæfell h.f., í eigu þeirra ágætismanna: Arent Clas- sen, Huxley Ólafssonar, Hreggviðs Bergmann, Sverris Júlíussonar og Ásmundar Friðrikssonar. Allir voru þeir burðarásar í atvinnulíf- inu og bæjarlífmu. Ásmundur hafði raunar verið skipstjóri á Ell- iða þegar ég fór á síldina um árið. Þá var hann fúll, með skeifu nið- urá maga. Nú var hann kominn í land, hið mesta ljúfmenni og létt- ur í lund. Nú unlu ferðirnar í Sparisjóðinn fleiri, nánast daglegar, stundum oft á dag. Sparisjóðurinn var fast- ur punktur í lífi mínu, eins og svo margra annarra sem eitthvað tengdust sýslan í atvinnulífinu. Þannig kynntist ég æ betur Sparisjóðnum og því ágæta starfs- fólki, sem þar vann. Við kynnin varð stofnunin ekki lengur dular- full í mínum huga frekar en allt annað sem maður kynnist og lærir að umgangast. Guðmundur var þar við stjóm sem fyrr, oftast frammi í af- greiðslu, stundum með vindil, enda var ekki bannað að reykja í bönkum í þá daga. Hann stóð oft- ast og horfði yfir gleraugun, sposku en rannsakandi augnaráði á hvem þann mann sem inn kom. Stundum fengu menn pillur frá honum í allra áheym. Það var á við marga gula miða. Ætli Guðmundur gæti verið Sparisjóðsstjóri í dag í Sparisjóð þar sem bannað er að reykja vindil. Það er mikil dyggð í dag að reykja ekki vindil á almanna- færi. Árið 1963 fluttist ég til Reykja- víkur og var þar til 1967. Þá átti ég ekki mörg erindi í Sparisjóð- inn, utan einstaka sinnum ef mikið lá við til að slá víxil. Ég hef aldrei þurft að hafa áhyggjur af stórum innistæðum og það er kannski blessun útaf fyrir sig. Sumarið 1967 fluttist ég aftur hingað er ég var ráðinn bæjarritari Keflavíkurbæjar. Bæjarritari ann- aðist fjárreiður bæjarins, sem oft vom erfiðar þá ekki síður en nú. Þetta var í þá tíð þegar dráttar- vextir voru óþekkt fyrirbrigði og þeir kallaðir skilamenn við bæjar- sjóð, sem greiddu útsvörin í einu lagi á gamlárskvöld með ávísun og fengu 10 prósent afslátt. Ávísunin var svo gjaman geymd í nokkra daga. Einhvem fyrstu dagana í starfi átti ég leið í Sparisjóðinn að leita eftir fyrirgreiðslu fyrir bæjarsjóð. Guðmundur vildi lítið sinna væl- inu í mér en segir um leið og ég fer, „Hvemig er það eigið þið ekki spesíuna enn“. Ég kom af fjöllum, skyldi ekki hvað hann var að fara og svaraði engu. Þegar ég kom niðurá bæjarskrifstofu sagði ég Sveini Jónssyni bæjarstjóra frá þessu. „Já“, sagði hann „hún er í litlum peningakassa í kompunni sem Valtýr notaði til að færa 3ja metra sjónalinn þegar hann var bæjarstjóri". Og viti menn. Þarna var spesían. Ég var hreikinn næst þegar ég kom í Sparisjóðinn og gat sagt Guðmundi að við ættum spesíuna enn. „Jæja“ sagði hann „þið farið ekki á hausinn á rneðan" og hann glotti. Aðra fyrir- greiðslu fengum við ekki í það skiptið. Mér varð hugsað til þessara fyrri tíma, þegar ég var niðri í Spari- sjóð nú í vikunni. Það var troðfullt útúr dymm. Menn að taka út launin sín til að borga Visa eða víxla eða gíróseðla. Sumir áttu ekki fyrir öllum gíróseðlunum og þurftu að fara uppá loft til að reyna að slá víxil í von um betri tíð. Elskulegt starfsfólkið gat varla litið upp svo mikið var að gera við að millifæra fjármuni manna. Enginn hafði tíma til að brosa. Enginn tími til að koma með meinlegar eða saklausar athuga- semdir. Gulu miðamir sjá um það í dag. Já það em breyttir tímar. Ekki lengur dulúðleg og virðuleg þögn, heldur ys og þys og allir á þönum. Höfum við gengið til góðs. Höfum við ráðið ferðinni eða lát- um við stjómast af einhveiju sem við ráðum ekki við og sjáum ekki fyrir endann á. Við getum hugleitt það. En hvað sem því líður. Sparisjóðurinn hefur aðlagað sig þessum nýju tímum. í forsvari em nú menn sem em nýtískulegir í hugsun. Úrvalsmennimir Tómas Tómas- son, Páll Jónsson og Geirmundur Kristinsson, að öllum öðmm ógleymdum. Tölvumar vinna nú verkin sem áður vom unnin í kyrrð og ró og það kennir enginn þeim prósentu- reikning. Thllega kemur sá tími ekki aftur að sagt verði um stjómendur Sparisjóðsins, eins og sagt var um Þorgrím lækni, þann ötula for- ystumann að hann hafi verið svo stjómsamur að ábyrgðarmenn KEFLAVÍK Auglýsing um tímabundna umferðartakmörkun í Keflavík Frá fimmtudeginum 3. desember 1987 til fimmtudagsins 31. desember 1987, aö báöum dögum meötöldum, er vöruferming og afferming bönnuö á Hafnargötu á almennum afgreiöslutíma verslana. Á framangreindu tímabili veröa settar hömlur á umferö um Hafnargötu og ncerliggjandi götur ef þurfa þykir, svo sem tekinn upp einstefnuakstur eöa umferö ökutœkja bönnuö meö öllu. Veröa þá settar upp merkingar er gefa slíkt til kynna. KEFLAVÍK, 25. NÓVEMBER 1987. LÖGREGLUSTJÓRINN í KEFLAVÍK FAXI 281
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.