Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1987, Síða 17

Faxi - 01.12.1987, Síða 17
ingu, bamaskóla í Garði, félag dansklesandi fólks í Utskálasókn og fleira og er þar þetta að finna um byggingu Hvalsneskirkju. , .Nýlega hefur Ketill bóndi Ketils- son í Kirkjuvogi (á að vera Kotvogi) látið ljúka við nýja steinkirkju, sem hann hefur látið reisa á Hvalsnesi fyrir afarmikið fé. Kirkja þessi er að öllu leyti hin vandaðasta og feg- ursta, er hún byggð í öðmm stíl en kirkjur aimennt hér á landi (í henni em Jóniskar súlnaraðir og bogar) og það er almennt álitið, að hún sé ein hin fegursta kirkja á þessu landi; er hún fagur og veglegur minnisvarði hins mikla sóma- manns, sem hefur látið reisa hana.“ Strax árið Í890 er þess getið í vísi- tasíu að kalksteypa sé farin að detta innan úr kirkjunni, og er þessa get- ið í hverri vísitasíu síðan fram til ársins 1904 en þá em gaflar og suðurhlið svo illa farið að nauðsyn- legt þótti að lagfæra skemmdimar. Var þá kalksteypan brotin af og múrað að nýju. Jafnframt var múr- að með sementi í suðurvegg og aust- urgafl að utan og femiserað, vegna þess að menn héldu að skemmdim- ar inni stöfuðu af því að vatn þrengdist gegnum veggina utan frá. Að þessari viðgerð lokinni var kirkj- an máluð að innan. Predikunarstóll- inn lakkaður og súlur og súluhöfuð máluð og bronsuð. Næsta ár voru öll sæti eikarmáluð, skírnarfortur endurbættur og málaður og hvelfing eikarmáluð, skfrnarfontur endur- bættur og málaður og hvelfing blá- máluð. Öll þessi endurbót var unn- in af Erlendi Oddsyni kennara að Hópi í Grindavík en kostuð af kirkjueiganda, sem nú var orðinn Ketill Ketilsson yngri. Ekki eru til neinir reikningar fyrir öllum þess- um kostnaði og er þess getið í vísi- tasíum allt fram undir aldamót að byggingarreikningur kirkjunnar hafi enn ekki verið lagður fram eða saminn. Árið 1919 gefur Ketill ábúendum Hvalsnestorfunnar kost á að kaupa ábýlisjarðir sínar með samsvarandi hlut í kirkjunni. Keypti þá móður afi minn, Páll Magnússon, Hvals- nesið og eignaðist með því A hluta í kirkjunni. Aðrir ábúendur keyptu jarðir sínar á næstu 2-3 ámm. Er því kirkjan áfram bændakirkja, en rekin af söfnuðinum allt til ársins 1942 að sóknamefndin bar fram ósk um að kirkjan yrði eign safnað- arins. Héldu kirkjueigendur fund og samþykktu einróma að verða við þeirri ósk. Á safnaðarfundi 23. nóv- ember 1942 verður því Hvalsnes- kirkja safnaðarkirkja. Á þessu tímabili, 1919-42 er ekki getið um stórfelldar endurbætur á kirkjunni, en 1923 em settar ytri hurðir fyrir útidyr kirkjunnar, sett nýt þak á tuminn og hann málaður utan. Og 1926 er settur kolaofn í kirkjuna, fyrsta hitunin, en talað hafði verið um hitun í hana allt frá árinu 1912. Nokkm eftir að söfnuðurinn yfir- tók kirkjuna eða 1945 fór fram veru- leg lagfæring og enn vegna skemmda á múr innan á veggjum. Var í þetta sinn allur kalkmúr brot- inn innan úr henni, veggir einangr- aðir með vikurplötum og múrhúðað yfir. Ennfremur var endumýjað nokkuð af tréverki það sem næst lá veggjum. Síðan var kirkjan máluð, einlit að mestu. Að þessari viðgerð unnu þeir bræður 'Ibrfi og Jón Guð- brandssynir og Guðni Magnússon málarameistari, allir úr Keflavík. Eftir þessa viðgerð var skipt um hitatæki og settur olíuofn í stað kolaofnsins. Tíu ámm síðar hefst tímabil mik- illa endurbóta. 1955 er kirkjan raf- lýst og um leið eða stuttu síðar lögð í hana miðstöð hituð með rafmagni. Síðan þá hefur hún verið hituð að staðaldri. 1958 var svo unnin mikil viðgerð á kirkjunni, en þá var skipt um jám á þaki, turninn gerður upp, m.a. skipt um máttartré í suðaust- urhorni hans og ný timburklæðn- ing, svo kölluð vatnsklæðning, sett á hann allan nema þak og sökkul, sem klætt var með koparplötum og nýr kross með hnetti upp úr þaki hans. TUrninn var síðan málaður í upphaflegu litunum, grænum, brúnum, sem nú er meira rauður, og gulum. Nýjar ytri hurðir vom settar fyrir kirkjuna, umbúnaður þeirra og bogagluggar fýrir ofan endumýjað. Að þessari stórviðgerð lokinni var kirkjan máluð að innan og nú aftur sem líkast upphaflegu litunum og þar með rósamynstur á langfjöl á mörkum veggja og hvelf- ingar skafið út og málað að nýju. Var þessu lokið fyrir jól og má því með sanni segja að það vora gleðileg jól hjá Hvalsnessöfnuði við hátíðar- guðsþjónustumar á jólum 1958. Að þessum viðgerðum unnu Haf- liði Jónsson og Jón Sigurðsson smiðir úr Reykjavík, málningu ann- aðist Áki Gránz í Njarðvík, raflýs- ingu Gísli B. Guðmundsson Hvals- nesi og hitalögn Sigurður R. Guð- mundsson Keflavík. Eftir að farið var að hita upp kirkj- una að staðaldri hefur lítið sem ekk- ert borið á múrskemmdum inuan í henni enda hafa ekki farið fram neinar stórviðgerðir síðan 1958. Hefur málningu verið haldið við bæði úti og inni, bekkimir bólstrað- ir 1979 og skipt um glugga í suður- hlið nokkra síðar. Svo var það árið 1964 að kirkju- stéttin var endurbyggð en hleðslan var farin að ganga nokkuð út. Höfðu menn velt því nokkuð fyrir sér hvemig sú lagfæring yrði bezt. Var ákveðið að taka upp hleðsluna og steypa steinvegg sem héldi jarðveg- inum. Við þessar framkvæmdir fannst legsteinn Steinunnar litlu Hallgrímsdóttur sem svo oft hafði verið leitað. Síðasta skipulagða leit FRAMHALD Á BLS. 344. ::..a ■rT 0 -2 v» —u— t w t u V--- Úrval jólagjafa Vönduð úr, klukkur, barómet, g ullskartgripir, silfurskartgripir og ýmsar gjafavörur Georg V. Hannah Úra- og skartgripaverslun, Keflavík. m )OLANNA\ EALLEGMYND ER JÓLAGJÖF SEM GLEÐUR Höfum mikið úrval af grafík-myndum, Verð þeirra er frá kr. 3000. Einnig aðrar úrvals gjafavörur: INNRÖMMUN SUÐURNESJA Keflavík — Sími 13598 FAXI 285
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.