Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1987, Page 20

Faxi - 01.12.1987, Page 20
M/bHrötm GK240, 34 tonn aðstœrð, fyrsti báturinn sem Egill teiknaði ogsmíðaði. M/b Ólafur Magnússon GK 525, 36 tonn að stœrð. ara báta a.m.k. er enn til. Þaö er Hjördísin, sem Ámi Ámason í- Landakoti í Sandgerði á. Haldið til Keflavíkur Aðdragandinn að því að ég kom í Dráttarbrautina í Keflavík var sá, að verkstjórinn þar, Sigurður Guð- mundsson, hafði ráðið sig vestur á Stykkishólm til Sigurðar Agústs- sonar, en hann starfaði þó áfram hér um tíma eftir að ég kom. Var ég ráð- inn verkstjóri í Dráttarbrautinni ár- ið 1941. Bjami Einarsson var þá orð- inn verkstjóri hjá Eggert Jónssyni í Innri-Njarðvík og ég held að hann hafi vísað á mig. Hann hafði einnig verið svolítinn tíma fyrir vestan hjá Marselíusi Bemharðssyni. En við lærðum saman í Landssmiðjunni við Bjami. Fyrsti báturinn sem ég vann við hér var Bjöminn II. Það var verið að breyta honum. Áður en Sig- urður hætti hér, sem var árið 1942, lauk hann við að smíða tvo fyrir- myndar báta, Önnu, sem var 26 tonn fyrir Sigurð nafna sinn í Þóm- koti og Hilmi, sem er 28 tonn fyrir Sigurbjöm Eyjólfsson. Sá bátur er hvað ég best veit enn við lýði norður á Hólmavík. Þetta vom alveg af- burðavel smíðaðir bátar. En ég vann ekkert við smíði þeirra, var þá bara við verkstjómina í viðgerðavinn- unni eftir að ég tók við henni af Sig- urði fljótlega eftir að ég kom suður. Nýsmíði hafin eftir eigin teikningu Það var svo árið 1944 að hafist var handa við að byggja fyrsta bátinn undir minni verkstjóm og eftir minni fyrstu teikningu. Þessi báta- smíði kom nú bara til af því að til var eik í bátinn. Þannig var að ég pantaði alltaf samhliða öðmm efniskaupum svo- lítið af eik sem hentað gat í 35-36 tonna bát. Þetta efni var svo einhæft að það notaðist ekkert af því í við- gerðir, það var bandaefhi. Svo bara kemur það á daginn, að það er til bandaefni í bát og síðan er pantað efni í kjöl og stefhi og svo er farið að smíða. En það gekk nú ekki þrauta- laust hjá mér að teikna þennan bát. Reyndar tvíteiknaði ég hann, því ég fleygði fyrstu teikningunni alveg eins og hún lagði sig, ég var svo óánægður með hana. Hafði þó áður sýnt hana góðum mönnum héma eins og Áma Þorsteinssyni, Þórhalli Vilhjálmssyni o.fl. Út úr því kom svo hjá mér það, sem ég taldi hafa á vantað og til varð nothæf teikning. Þessi fyrsti bátur minn var 34 tonn að stærð, Hrönn hf, Sandgerði keypti bátinn af dráttarbrautinni og hlaut hann nafnið Hrönn. Formað- ur á bátnum var lengi Guðmann Grímsson, nýlega látinn, sómamað- ur. Þessi bátur reyndist býsna vel. Hann fór nú, þó að lokum í þurra- fúa, eins og flestir trébátar gera. Happaskip í höndum góðra manna Upp úr þessu var farið að ráðgera að smíða stærri bát. Þá gerði ég teikningu af um 50 tonna báti. Svo var hafist handa við að smíða eftir þeirri teikningu. Sá bátur var Mummi og eins og með Hrönnina vaí smíðin hafin án þess að ákveð- inn kaupandi væri að honum. En svo var það þegar smiði Mumma var komin nokkuð vel af stað, að Albert Ólafsson fer að koma vestur í dráttarbraut í hverri land- legu. Erindið var að reyna að koma því í kring að fá teiknaðan og smíð- aðan bát fyrir sig samhliða þeim, sem var á stokkunum, en hann átti ekki að vera svo stór. Það var nú ekki auðvelt mál að koma þessu í kring, nema hægt yrði að fá fleiri skipasmiði. Varð það svo úr að fengnir voru frá Færeyjum einir 12 eða 14 smiðir. Það voru allt mestu ágætismenn. Tfeiknaði ég svo bát upp úr teikn- ingunni af Hrönn, því Albert vildi hafa sinn bát af svipaðri stærð. Var svo hafist handa af miklum krafti að smíða bát eftir þeirri teikningu. Sá bátur varð 36 tonn að stærð og hlaut nafnið Ólafur Magnússon. Eins og áður er komið fram var Albert Ólafsson aðaleigandi hans og for- maður á honum þar til Óskar Ingi- bersson tók við honum. Fetaði hann dyggilega í slóð frænda síns með fiskisæld og forsjálni. Ólafi Magnússyni var hleypt af stokkunum í janúarlok árið 1946. Mumma, sem var 54 tonn, hafði hinn kunni formaður og athafna- maður Guðmundur á Rafnkelsstöð- um keypt í smíðum og var báti hans hleypt af stokkunum í mars 1946. Fyrstu árin voru þeir með Mumma, Þorsteinn Þórðarson og Garðar sonur Guðmundar á Rafn- kelsstöðum. Báðir voru þeir af- burða fiskimenn Þeir létust langt um aldur fram, Þorsteinn á sóttar- sæng, en Garðar fórst með skipi sínu Rafnkeli í byrjun vertíðar árið 1960. Það var svo nokkrum árum eftir að þessir tveir bátar voru komnir í hendur eigendanna, Alberts Ólafs- sonar og Guðmundar Jónssonar á Rafnkelsstöðum, að segja má að ekki hafi linnt óskum útgerðar- manna að fá teiknaða fyrir sig báta. Þessir menn, Albert og Guðmund- ur, voru reyndar þeir bestu menn, sem hægt var að smíða báta fyrir, einfaldlega vegna þess, - að bátur verður góður bara ef vel fiskast á hann — svo einfalt er það. En hitt er svo líka staðreynd, að menn fiska ekki á báta nema þeir séu góðir. Þegar Albert Ólafsson fór fyrsta róðurinn á Ólafi Magnússyni nýj- um, gekk báturinn mun betur en hann átti von á, því vélin var stór miðað við þann tíma. Þá voru engin tæki komin í þessa báta, hvorki dýptarmælir né annað. En hann auðvitað keyrir bara sinn ákveðna tíma og áttar sig ekki á því, að línan var lögð á svo mikilli ferð að hún lenti bara á floti. Fiskiríið varð því harla lítið, aðeins nokkrir karfar og tvær löngur. í næsta róðri hreppti hann svo það mikla fárviðri, þegar m/b Geir fórst með allri áhöfn. Þennan dag var ég mjög kvíðinn, því veðrið var svo ofboðslega vont, al- veg rakið mannskaðaveður. Mig minnir að Albert hafi bara verið með fyrstu bátum í land og hann lagðist að ,,litlu trébryggjunni“ hér í höfn- inni. Ég var fyrsti maður um borð til hans og man eg að stýrishúsið var upp á gátt og gluggar opnir og Al- bert algallaður í húsinu. M/b Mummi GK 120, 54 tonn að stœrð. 288 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.