Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1987, Page 28

Faxi - 01.12.1987, Page 28
Jeanene. Eins og við sögðum frá í síðasta blaði Faxa, þá hélt Ragnheiður Ragnars- dóttir til Bandaríkjanna sem skiptinemi í haust. Ragga hafði lofað að senda okkur bréf, þegar hún væri búin að koma sér fyrir og nú hefur hún staðið við það loforð sitt. Við gefum hér með henni orðið. þclta er íekið þegar ég fór að sjá Forth Snelling þ.e. hvcmig fólkið lifði í gamla daga. Jæja, loksins kem ég því í verk að skrifa til Faxa. Ég ætla í stórum dráttum að segja frá, hvað á daga mína hefur drifið. Ég kom til New York 16. ágúst og var þar á Long Is- land í 5 daga með skiptinemum frá um 20 löndum. Það var alveg æðis- lega gaman og kynntist ég mörgum krökkum frá ýmsum löndum, þó stuttur væri tíminn. Þann 21. ágúst var svo haldið af stað til fjölskyld- unnar sem ég bý hjá í Plymouth Minnesota. Margt skeði fyrstu vikumar, allt var nýtt fyrir mér og það tók sinn tíma að aðlagast því. En fyrsta sept- ember byrjaði ég að æfa víðavangs- hlaup (cross country) sem gaf mér tækifæri til að kynnast krökkum, því það getur stundum verið erfitt að eignast vini hérna. Áður en skól- inn byrjaði var æfing alltaf tvisvar á dag, kl. átta á morgnana og síðan aftur kl. hálf fjögur. Við hlupum svona 7 mflur á dag. Skólinn byrjaði 8. september. Ég verð að segja, að þetta er allt öðm- vísi en heima. Það er alltaf sama stundataflan á hverjum degi og svo hefur hver nemandi skáp í skólan- um, þar sem hann getur geymt bækumar sínar. Skólinn byrjar kl. 7.30 á morgnana, það er vaknað kl. 6.00 og lagt af stað um kl. 7. Þá er farið í skápinn og spjallað við kunn- ingjana í næstu skápum við hhðina til kl. 7.25, en þá er lagt af stað í tíma, því það kemur enginn of seint. Þeg- ar tíminn er búinn em 5 mínútna frímínútur þangað til næsti tími hefst. Það er rétt nægur tími til að fara í skápinn og ná í næsta tíma. Þannig gengur þetta fyrir sig dag eftir dag, það getur orðið dálítið þreytandi stundum, en samt er þetta æðislega gaman! í skólanum er allt rosalega strangt. Ef nemandi kemur þrisvar sinnum of seint í tíma hjá sama kennara, þá þarf hann að sitja eftir í eina klukkustund eftir skóla. Ef nemandi aftur á móti skrópar í tíma, þá þarf sá hinn sami a. m. k. að sitja eftir í tvo tíma, þegar skóla lýk- ur. Það er hringt í foreldrana og þeir látnir vita. Það má enginn reykja í skólanum né á skólalóðinni. Það em verðir á göngunum og ef þeir sjá einhvem nemanda labba um verður 296 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.