Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1987, Side 29

Faxi - 01.12.1987, Side 29
nemandinn að vera með skriflegt leyfi frá kennara um það, að hann hafi eitthvert erindi út úr stofunni! Þetta er 1800 nemanda skóli svo þetta er aðeins stærra en heima. Þegar ég var í víðavangshlaupinu, þá var morgunæfing tvisvar í viku áður en skólinn byrjaði á morgn- ana, þ.e. kl. 6 og svo á hverjum degi eftir skóla. Það eru miklar íþróttir stundaðar í skólanum, íþróttir af ýmsu tagi sem skiptast niður á ann- imar, en þær eru þrjár. Flestir krakkarnir reyna að taka þátt í ein- hverjum íþróttum eða öðru skóla- starfi, s.s. söng eða leiklist eftir að skóla lýkur á daginn. Maður er venjulega ekki kominn heim fyrr en kl. 5 á daginn. Síðan er fótboltaleik- ur (amerískur fótbolti) yfirleitt á hverju föstudagskvöldi. Það er æð- islega gaman að fara og horfa á hann. Ég botnaði ekkert í þessu fyrst, en þetta er allt að koma. Það er svo miklu meira að sjá en fótbolt- ann, þar eru klappstýrur og stelpur sem dansa í hálfleik, einnig er lúðrasveit sem leikur í hálfleik. Það hafa verið haldin tvö skólaböll og eru þau haldin í kaffiteríunni í skólanum frá kl. 9-12. Ljósin eru dempuð allan tímann, en þegar koma, ,vangalög“, þá eru þau slökkt alveg! Það er enginn krakki lengur úti en til svona 12-1 um helgar, en þegar skóli er daginn eftir, þá fer enginn út. í fjölskyldunni minni héma erum við tvær stelpur, ég og systir mín Jeanene og einn strákur sem er í skóla á Hawaii, ég hef enn ekki séð hann. Fjölskyldulífið er yfirhöfuð miklu meira hérna. Það er alltaf allavega einn fjölskyldudagur í viku og hjá okkur er það sunnudagur- inn. Þá reynum við að eyða degin- um saman og um kvöldið horfum við kannski á vídeó eða sjónvarp, spilum THvial Pursuitg, eða bara tölum saman. Ekki getum við alltaf verið öll saman, því oft er mikið að gerast, en við reynum. Fólkið héma fer líka miklu meira í kirkju heldur en heima. Flestir krakkar sem ég þekki fara í kirkju á hverjum sunnudegi, eða annan hvem sunnu- dag. Fjölskyldan sem ég er hjá fer ekki oft í kirkju og er það óvanalegt. Hér byrjar fólk að undirbúa jólin virnn rismnt öllu liðinu. nessi inynd er íekin cí C.U. Post. hátíd sein vcir haldin. Vid vorum að syngja ridum rídum á söng alveg rosalega snemma, eða um mánaðamótin október-nóvember og 1. nóvember eru flest allar búðir og búðargluggar skreyttir! Jólainn- kaupin og jólaumferðin byrjar um miðjan október um helgar í stærstu vömhúsunum. í skólanum em alls þijár annir og er 1. önnin búin 4. des. og 2. önnin hefst þann 6. des. Á vetrarönninni ætla ég að æfa svigskíði og byrja æfingar n.k. þriðjudag. Það er ekk- ert farið að snjóa ennþá. Veðrið er búið að vera æðislega indælt undan- farið, en það er aðeins farið að ffysta af og til. Foreldrar hér em rosaleg mikið með í öllu sem gert er, krakkamir mega t.d. helst ekki fara í bíó eða út með öðmm krökkum, nema for- eldramir hafi hist, eða að foreldr- amir þekki viðkomandi krakka. Ef það em haldin partý, þá em foreldr- amir alltaf heima og taka oftast þátt í öllu sem er að gerast! Ég ætla að láta staðar numið að þessu sinni, sendi línu seinna. Bið svo að heilsa öllum kunningj- um heima í Keflavík. Ragga. FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.