Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1987, Side 37

Faxi - 01.12.1987, Side 37
að neðan þarf margt að koma ofan á þá undirstöðu til þess að við njótum velgengni og ánægju í lífinu. Næst kemur tilfinningasvidið sem innifelur hina ýmsu starfsemiþætti geðsins, svo sem skyntilfmningar (hræðsla, ánægja, skömm o.fl.), geðhugsun (áhyggjur o.fl.), hleðslu- tilfinningar (ræddar að ofan), geð- blæ og tilfinningaviðbrögð. Þegar dagleg reynsla okkar er þess eðlis að allir þessir tilfinningaþættir eru viðráðanlegir og geðund okkar er ekki ofboðið, höfum við góða geð- heilsu. Þriðja frumstarfsemisviðið er vits- munasviðið sem innifeiur hina ýmsu starfsemiþætti skilvitsins, svo sem skynjun, vithugsun (hug- iæg skoðun og meðhöndiun á því sem skynjað er og því sem geymt er í minninu til að öðiast betri skilning á einhverju), vitneskju, viðhorf og mál. Þegar þessir þættir starfa eðli- lega og skilningur okkar á atburð- um og viðfangsefnum daglegs lífs er nægilegur, höfum við vitheilsu (ný- yrði, til að aðskilja tilfinningasviðið og vitsmunasviðið). Síðasta frumstarfsemisviðið er vildarsvidið sem innifelur hina ýmsu starfemiþætti viijans, svo sem löngun, viihugsun (hugsun sem snýst um val og ákvarðanir), hugar- form, ásetning og framkvæmdaað- gerðir. Eðlileg starfsemi þessara þátta leiðir til góðrar vilheilsu (nýyrði, til að aðskilja vitsmuna- sviðið og vildarsviðið). Þessi fjögur svið frumstarfsem- innar fjalla um starfsemitæki mannsins, þ.e. hvaða tækjum mað- urinn sem líffræðilegt fyrirbæri er búinn til að fást við umhverfi sitt. V iðskiptas viðin Undir viðskiptastarfsemina falla sjö svið og fjalla þau um hvernig við notum starfsemitækin til að fást við hið þríþætta umhverfi okkar. Fyrst er starfssviðið sem fjallar um notkun starfsemitækjanna í lik- amlegum viðskiptum við líkamlega umhverfið (áþreifanlega hluti í umhverfinu, náttúrulega eða til- búna af manna völdum). Hér er um að ræða starfsemiþætti eins og hagnýtni, beitingu, hagleikni, áhuga og framtak. (Tæknikunnátta mannsins, hagnýt vísindi og íþróttir tengjast starfssviðinu.) Þegar við höfum vald á þessum þáttum, höf- um við starfsheilsu og getum sjálf meðhöndlað viðskipti okkar við hið líkamlega umhverfi til að mæta þörfum okkar og óskum. Næst er fundarsviðið sem fjallar um notkun starfsemitækjanna í huglægum viðskiptum við allt um- hverfið. Hér koma til starfsemiþætt- ir eins og frumleiki, ímyndun, inn- sýn, kappsmál og könnun. (Hrein vísindi, listir og framfarir tengjast fundarsviðinu.) Með þessa þætti í lagi höfum við lærdómsheilsu (hér vantar betra orð) og erum fær um að skilja innri gerð og starfsemi hluta og fyrirbæra í okkar eigin umhverfi og fást við hvort tveggja með betri árangri. Félagssviðið er þriðja viðskipta- sviðið og fjallar um notkun starf- semitækjanna í viðskiptum okkar hvert við annað. Þau viðskipti inni- fela þætti eins og félagsleikni, fé- lagsskynjun, hugdeild, persónu- tengsl, félagsviðhorf og félagslegt atferli. (Hugdeild er heiti yfir nýtt hugtak að deila huga sínum með öðrum.) Þegar þessir starfsemi- þættir eru á valdi okkar og starfa eðlilega höfum við góða félags- heilsu. Næsta starfsemisviðið er sjálfs- sviðið sem fjallar um notkun starf- semitækjanna í sjálfsviðskiptum. Þar er um að ræða þætti eins og sjálfstjórn, sjálfsskynjun, sjálfs- rannsókn, sjálfsmynd og sjálfsum- sjón. Með þessa þætti í lagi höfum við sjálfsvirðingu, sem virðist vera einn af mikilvægustu þáttunum ( starfsemiheilsu okkar. Á undan- förnum nokkrum árum hefur sjálf- sviðið komið meira og meira fram í sviðsljósið í sálfræðiumræðum og skrifum. Þrjú síðustu sviðin eru tilveru- sviðin svokölluðu sem snúast um þá þætti tilverunnar sem ekki verða mældir eða fastráðnir með vísinda- legum tækjum eða aðferðum. Fyrst af þessum sviðum er heimspeki- sviðið sem fjallar um notkun starf- semitækjanna í málefnum sem varða eðli og tilgang mannlegrar þekkingar og reynslu, eðli endan- legs veruleika, eðli og leit að per- sónulegum, félagslegum og þjóðfé- lagslegum verðmætum. (Heim- spekin sem fræðigrein og stjórn- málafræði eru tengd heimspeki- sviðinu.) Þar er um að ræða starf- semiþætti eins og móttækileika, heimsskynjun, hugleiðingu, skoð- anir, gildismat og lífsleit. Þegar þessir þættir eru virkir í lífi okkar og færa okkur einhver viðunandi svör, höfum við persónulega lífs- skoðun sem veitir lífi okkar stefnu- mótun og mörkun. Næsta tilverusviðið er trúarsviðið sem fjallar um notkun starfsemi- tækjanna í málefnum sem varða eðli, tilgang og markmið mannlegr- ar tilveru, eðli og merkingu dauð- ans og tilveru og tilbeiðslu yfir- nátturulegra vera og hlutverk þeirra í mannlegu lífi. (Guðfræðin sem fræðigrein tengist trúarsviðinu.) Þar koma til starfsemiþættir eins og trúleitni, altilveruskynjun, íhugun, FRAMHALD Á BLS. 334. (SIet>tíeg jóí utí) íeStur góbra bóka Daglega í leiðinni Bókabúð Keflavíkur (Síehiíeg jóí Vistmenn þakka öllum þeim, er létt hafa þeim stundir á liðnu ári. Guð blessi ykkur öll. Vistmenn á Garðvangi og Hlévangi FAXI 305

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.