Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 40
einnig ferðafatnað sem hentaði í sól-
skini og yfir 30 stiga hita og eins að
vera viðbúinn að mæta úrhelli
monsúnregnsins.
'Ihugar félaganna voru spenntar til
hins ýtrasta. Hafði nú nokkuð
gleymst, sem hafa þurfti með? Var
búið að gera allar þær ráðstafanir
sem gera þurfti áður en farið var að
heiman? En dæmið gekk upp. Flug-
leiðaþotan lyfti sér upp úr suddan-
um og miðsvetrarskímunni og
gamla góða Frón var fljótt að hverfa
og eins var um tímann við vorum
óðar lent á London Heathrow, en í
London var tveggja daga viðdvöl. -
TVeir ánægjulegir dagar sem fóru í
búðarráp, leikhúsferð og aðeins
lyktað af suðrænni næturstemmn-
ingu til þess svona að vera betur
undirbúinn því óvænta sem beið
okkar austurfrá.
Eldsnemma á föstudagsmorgun
yfirgáfum við hótel okkar í London,
en þar fengum við að geyma , .vetrar-
gallana" okkar þar til — og ef — við
kæmum til baka.
Fyrst flugum við smá aukalegg til
Amsterdam í veg fyrir vél indónes-
íska flugfélagsins Garuca og þar
beið okkar farkosturinn ,,City of
Jakarta", bumba sem tekur um
fjögur hundruð farþega án þess að
þrengi að neinum. Eftir smástopp í
París var stefnan tekin í suðaustur
og ekki lækkað flug fyrr en komið
var til Abu Dabi. Borgin er í samein-
uðu arabísku furstadæmunum og
stendur rétt norðan nyrðri hvarf-
baugs við Persaflóann. Flugstöðin
þama er heilt listaverk. Hún er í
formi gosbrunns að innan og öll lögð
litfögrum marmara. Andrúmsloftið
þama var eins og komið væri inn í
sögusvið Þúsund og einnar nætur.
Maður stóð sig að því að gaumgæfa
hvort þessir arabísku kaupahéðnar,
sem falbuðu góss sitt, ættu ekki
a.m.k. einn lampa með sömu nátt-
úm og Aladdíns forðum.
En ekki var lengur til setunnar
boðið. í loftið skyldi halda á ný. Nú
var haldið eins og leið lá yfir Arabíu-
flóann og Bombay og Hyderabad í
Indlandi, síðan yfir Bengalflóann í
átt til ákvörðunarstaðarins Bangkok
í Thilandi. í svona löngu flugi er
hægt að gera sér ýmislegt til dund-
urs. A milli þess að elskulegar aust-
rænar stúlkur bringja í okkur
gnægð matar og dmkks, er hægt að
leggja ,,vél undir fót“ ogheimsækja
kunningjana, eða móka í sætinu
hlustandi á hljómlist eða þá horfa á
bíómynd dagsins.
Á svona löngu flugi fer allt tíma-
skyn úr jafnvægi. Það er flogið yfir
eina átta tímabauga auk tímans sem
þú ert á flugi og útkoman verður sú
að þú veist ekkert í þinn haus, hvað
tímanum líður. En hvað um það, um
hádegi (hvaða dags) lendum við á
Don Miang flugvellinum í borg
englanna, Hmng Thep, sem er nafn
Thifólksins á Bangkok.
Þegar dyr vélarinnar opnast og
gægst er út er eins og hitaveggur
blandaður jasmínilmi hrynji yfir
mann. „Laa waa di“ kveður við úr
öllum áttum og brosandi fólk hvar
sem auga er litið. Fyrr en varir er
jasmínblómakeðja komin um háls
þér og fulltrúar englaborgarinnar
bjóða þig velkominn. Áðumefnt
ávarp þýðir í raun og vem allt sem
þú þarft að segja við fyrstu kynni,
s.s. takk fyrir, góðan daginn, bless
eða Guð veri með þér.
Og hver er svo þessi þjóð sem tek-
ur svona elskulega á móti þér.
Kannski er hún í huga okkar eins og
hún var túlkuð í kvikmyndinni um
bresku kennslukonuna Anne og
kónginn í Síam, sem Yul Brynner lék
svo eftirminnilega. Kóngurinn var
Rama IV, sem breytti ímynd þjóðar-
innar í nútímalegt horf.
Þessi þjóð sem ein þjóða í Suðaust-
ur-Asíu hafa ekki lotið evrópskum
nýlenduhemum, er talin vera rúm-
lega 52 milljónir, þar af búa í Bang-
kok rúmar 6 milljónir. Að mestu leyti
er þetta Thifólk, en auk þess búa þar
Kúmerar, Burmabúar, Malayar, Ir-
anir og Kínverjar. Eins og sjórinn er
okkur íslendingum gullkista er
landið þeirra Thilendinga, því yfir
80% þjóðarinnar stundar landbún-
að. Ef hægt er að segja að lífið sé
saltfiskur hér á Fróni er lífið hrís-
grjón í Thilandi.
Thilendingar em mjög umburðar-
lyndir í trúmálum og em yfir 90%
þeirra búddhatrúar. Leiðsögumað-
urinn okkar í Thilandi heitir 'Iho
Wee og reyndi hann að útskýra fyrir
okkur að búddhismi þeirra væri
frábmgðinn þeim japanska og
meira um andatrú. Auk þess að vera
bæði glaðlegir og laglegir (sérstak-
lega veikara kynið) eru 'Ihilendingar
mjög trúaðir. Mátti víða sjá fómir
þeirra, bæði á opinbemm stöðum, í
musterum og hjá litlum skrínum við
heimahús. Eins og Tho Wee sagði:
Thilendingar leika sér að lifa, þ.e.
njóta lífsins. Ef Thilendingur lofar
að koma á einhvern ákveðinn stað á
ákveðnum tíma, skaltu ekki leggja
alltof mikið upp úr tímasetning-
unni, en hann kemur fyrr eða síðar.
í Thilandi ríkir nú einhvers konar
lýðræði. Árið 1932 gerði herinn
byltingu og þvingaði fram nýja
stjómarskrá. Síðan er konungurinn
nánast valdalaus og er þjóðin nú á
mörkum lýðræðis og alræðis hers-
ins.
Jæja, hvað um það góðir hálsar,
áfram skal haldiö. Eftir þessar inni-
legur móttökur var haldið frá Don
Muang-flugvellinum í yfir 30 stiga
hita áleiðis til Heraton hótelsins,
sem átti eftir að vera heimili okkar
næstu daga.
Eftir aö menn höfðu komið sér
fyrir var farið að skoða lífið. Á með-
an sumir biðu eftir öðmm var öl-
krús pöntuð og læðist að mér sá
gmnur að mörgum karlkynsland-
anum hafi bmgðið við þegar þessar
fallegu tailensku þjónustustúlkur
kmpu á kné eða bókstaflega féllu að
fótum þeirra og réttu þeim bjórinn
með höfuðhneigingu. Og alltaf
skyldi herra afgreiddur fyrst. Sum
karlrembusvínin hvísluðu meira að
segja hver að öðrum: „Þetta þyrfti
að komast á heima.“ Hótelið er við
Luriwongsestræti og því inni í
hringiðu næturlífsins.
Patphong-stræti með öllum næt-
urbúllum þar sem líkami konunnar
er notaður til hins ítrasta við að
lokka til sín viðskiptavini. Matsöl-
Greiöslur almennings
fyrir lœknishjálp og lyf
1. Greiðslur hjá heimilislœkni og heilsugœslulœkni
110 kr. — Fyrir viötal á stofu lœknis. Innifalin er ritun lyfseöils.
200 kr. — Fyrir vitjun lœknis til sjúklings.
Ofangreindar greiöslur eru hámarksfjárhœöir, og má lœknir
ekki krefja sjúkling um viöbótargjald, nema vegna lyfja eöa
umbúöa, sem sjúklingur kynni aö þurfa aö fara meö burt
meö sér.
2. Greiðslur fyrir sérfrœðilœknishjálp,
rannsóknir og röntgengreiningu
360 kr. — Fyrir hverja komu til sérfrœöings.
140 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sér-
frœöingi á hverju almanaksári, síöan ekkert. (Sjá nánar hér
aö neöan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiöslu fyrir hverja
komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í framhaldi af henni.
Sjúkrasamlag Gullbringusýslu
Vatnsnesvegí 33, Keflavík, sími 14411
(Geymiö auglýsinguna)
308 FAXI