Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 45

Faxi - 01.12.1987, Blaðsíða 45
sín, því þar sem djöfullinn væri einu sinni búinn að ná yfirhöndum hjálpaði ei á móti að stríða. Var það látið niður falla að senda mann á fund prests enda kann fremur að hafa verið ógnun en alvara, að því var kastað fram. Sá beygur var þó í Gufuskálafólki að Jóni bónda þótti vissara að láta konu sína skipa Ingi- mundi Bjarnasyni vinnumanni þeirra, er svaf í skála þar sem fleti kerlingar var, að hafa gát á henni, ef hún færi ofan um nóttina. Gekk svo fólk brátt til náða. Ingimundur Bjamason háttaði og lagðist út af í rúmi sínu og síðan leitaði hver af öðmm síns svefnstaðar. Elín var þó ekki svefnleg. Hún sat enn uppi í fleti sínu er húsfreyja fór úr skálan- um, stundi og tuldraði og hafði ekki dregist úr spjörunum. Síðan lést enginn vita hvað fyrir hana hefði borið. Hjáleigumaður sá er hét Þorkell Gunnlaugsson bjó í kofa skammt frá garði á Gufuskálum. Næsta morgun vaknaði hann við það um sólarupprás, að komið var á glugga og kallaði til hans maður, er bað hann að koma á fætur og sjá hvað til tíðinda var orðið. Þetta var annar vinnumaðurinn á Gufuskálum, Ingjaldur Jónsson. Þorkell spurði hví hann léti svo óðslega en hann svaraði að orsök væri til alls. Elín kerling Stefánsdóttir hefði hengt sig. Elín Stefúnsdóttir hangandi í snöru. Ingjaldi sagðist svo frá, að Ingi- mundur Bjamason hefði sofnað í rúmi sínu en vaknaði til þess að rækja embætti sitt og orðið þess áskynja að Elín var horfm úr fleti sínu. Þegar hún fannst eigi í bænum hefðu þeir Ingimundur farið að leita hennar utan bæjar. Sagðist Ingi- mundur hafa fundið hana dauða, þegar að morgni leið, með snöm um háls, í einum af sjóhjöllum Gufu- skálamanna. Ekki hafði Ingjaldur fyrr vakið Þorkel en Jón Sæmunds- son sendi vinnumanninn út að Út- skálum til þess að segja séra Agli tíðindin. Rækti hann erindi sitt fljótt og vel og brá Útskálaklerkur þegar við og skrifaði hreppstjómm sveitarinnar svofellt bréf. „Hingað að Útskálum kom í morgun Ingjaldur Jónsson frá Gufuskálum sem fortaldi svo fljót en sem ljótan og óttalegan atburð um afgang Elínar Stefánsdóttur nið- ursetnings, þar sem skyldi hafa skeð í nótt um miðnæturskeið, hvers vegna þér hreppstjórar og pólítiþénarar aðvarist og upphvetj- ist hér með að besikta þetta téða lík hið fýrsta ské kann nú yfirvaldið er fjarverandi." Með þetta bréf sendi hann Ingjald síðan á þá bæi sem hreppstjórar bjuggu. Bæjarleiðir vom ekki lang- ar og tókst Ingjaldi í skyndi að ná til hreppstjóra fjögurra, Áma Jóns- sonar lögréttumanns á Kirkjubóli, Bæjarstjóm Njarðvíkur óskar starfsmönnum sínum svo og öllum Njarðvíkingum gleðilegra jóla og farsceldar á komandi ári og þakkar liðið ár Bæjarstjóm Njarðvíkur FAXI 313
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.