Faxi - 01.12.1987, Side 50
Björgvin Jónsson:
Alþjóðlega skákmótið
í Njarðvík 1987
Árið 1984 skipulagði Jóhann Þór-
ir Jónsson ritstjóri tímaritsins Skák
alþjóðlegt skákmót í Grindavík í
samvinnu við Suðumesjamenn og
nú þremur ámm síðar var aftur
haldið alþjóðlegt skákmót á Suður-
nesjum sem telst vera áttunda al-
þjóðlega skákmótið sem ritstjórinn
stórhuga hrindir í framkvæmd.
Mótið var teflt í félagsheimilinu
Stapa dagana 8.-20. nóvember.
Reyndar vora tvær síðustu umferð-
imar og svo biðskákir tefldar á
Hótel Kristínu þar sem keppendur
bjuggu á meðan á mótinu stóð við
framúrskarandi aðbúnað.
Markmiðið með mótinu var að
gefa þeim keppendum sem enn em
titillausir möguleika á að afla sér
áfanga að alþjóðlegum skákmeist-
aratitli, en níu af keppendum vom
í þeirri stöðu að hafa not fyrir slíkan
áfanga.
Til þess að ná titlinum alþjóðlegur
skákmeistari þarf árangur sem
gmnnreikna má til a.m.k. 2450 elo
skákstig í 24 skákum það minnsta.
Hægt er því að ná alþjóðlegan meist-
aratitlinum í tveimur mótum sé
annað þeirra 11 umferðir en hitt t.d.
13 umferðir en þar sem flest mót í
dag em 11 umferðir er tíðast að til
þurfi 3 mót. Til þess að ná slíkum
áfanga þurfti í mótinu í Njarðvík 7
vinninga í 11 skákum.
Björgvin Jónsson.
Undirbúningur
Sé vikið að undirbúningi kepp-
enda fyrir slík mót þá sýnist höf-
undi best að fjalla um sinn eigin þar
sem hann fór að mestu fram í ein-
rúmi frá öðram keppendum. ís-
lenski keppendahópurinn þekkist
að sjálfsögðu dável innbyrðis og við
alla þeirra hafði ég teflt einhvem
tíma áður. Á erlendu keppendun-
um vissi ég hins vegar lítil deili, að
vðsu nokkuð um Finnann, eina
skák hafði ég undir höndum að
Norwood og nokkrar með Jakobs
úr árbók Alþjóða skáksambands-
ins. Einn keppenda var huldumað-
ur í mótinu, Bandaríkjamaðurinn
Weldon. Það eitt var um hann vitað
hér á landi fyrir mótið að hann hefði
1973 orðið meistari á Bandarísku
áhugamannaleikunum, en engar
skákir hafði ég undir höndum sem
sýndu taflmennsku hans, sem síðar
reyndist afar sérstök. Þegar ég tefldi
við hann strax í 2. umferð mótsins
tókst mér nánast aldrei að geta mér
til um hver næsti leikur hans mundi
verða og er leið á skákina gaf því ég
nánast alla útreikninga upp á bátinn
og lét hyggjuvitið eitt ráða ferðinni.
Við 3 af erlendu keppendunum
tefldi ég svo í 4 fyrstu umferðum
mótins. Ég var í óvenju þokkalegri
æfingu fyrir mótið aðeins tæpar
þrjár vikur frá því að ég tók þátt í
hliðstæðu móti undir krafti Snæ-
fellsjökuls. Á undan því móti hafði
ég hins vegar ekki teflt á skákmóti í
heilt ár. Þetta var mikil breyting til
batnaðar og taflmennskan öll heil-
steyptari og ömggari og minna um
slysalega afleiki en þegar æfinga-
leysi háir.
Norwood sigurvegari
Úrslit mótsins urðu þau að sigur-
vegari varð Englendingurinn David
Norwood.
Hann ber þegar fyrir titilinn al-
þjóðlegur skákmeistari. Hann er 19
ára gamall og á að baki glæsilega
taflæsku m.a. unglingameistari
breska heimsveldisins 1985 og al-
þjóðlegur meistari 16 ára. Norwood
er snaggaralegur náungi. Hann virt-
ist ekki taka mótið neitt sérstaklega
alvarlega og lá ekki yfir skákfræð-
unum á milli umferða heldur las
enskar bókmenntir og drakk létt-
vín.
Hann virtist framan af ekki gera
sér miklar vonir um sigur í mótinu
og það var ekki fyrr en í síðustu
skákinni sem einhver merki um
taugaspennu var að sjá á honum. I
klæðaburði hafði hann enn meiri
yfirburði en í skákinni og þegar fara
þurfti á öldurhús gengu jafnaldrar
hans úr hópi keppenda í klæðaskáp
hans. Mótið var þriðja mót Nor-
woods á hálfum öðmm mánuði. í
hinum tveimur hafnaði hann í 2.
sæti og taldi hann að frammistaða
hans í þessum þremur mótum
mundi hækka elo-stig hans í nær
2500. Norwood má hins vegar finna
það til lasts að hann er illa að sér í
skákbyrjunum og teflir því afar
sjaldséðar uppbyggingar og ég hef
trú á því að byrjanataflmennska
hans standi og falli með því að and-
stæðingurinn hafi ekki of langan
frest til undirbúnings, en getur hins
vegar oft hentað vel á móti sem tefit
er jafn þétt og þetta.
í öðru til þriðja sæti komu þeir
Helgi Qlafsson stórmeistari og
Hannes Hlífar Stefánsson heims-
meistari 16 ára og yngri. Helgi ætl-
aði sér greinilega sigur á mótinu og
lengst af leit einnig út fyrir að svo
yrði. Hann var í góðri forustu eftir 6
umferðir með 514 vinning en í 5 síð-
ustu skákunum vom andstæðing-
amir fastari fyrir og útkoman var 4
jafntefli og eitt tap. Meira að segja
gerðust andstæðingar hans þa svo
bíræfnir að neita jafnteflisboðum
stórmeistarans svo Helga þótti jaðra
Jóhannes og Guðmundur.
Antti Pyhala og Sigurður Daði.
318 FAXI