Faxi - 01.12.1987, Page 53
meistaratitil unglinga 20 ára og
yngri nú um jólin.
Undirrituðum tókst að nýta sér
heimavöllinn og ná sínum fyrsta
áfanga til alþjóðlegs titils. Þetta
mun vera fyrsti áfanginn sem fellur
íbúa utan Stór-Reykjavíkursvæðis-
ins í skaut. Alþjóðlegu áfangarnir
sem mótið gaf frá sér voru því þrír.
í 6. sæti kom svo Guðmundur
Sigurjónsson stórmeistari sem jafn-
framt varð jafntefliskóngur móts-
ins.
Segja má að keppendur í mótinu
hafi skipt sér í tvo hópa, 6 keppend-
ur í toppbaráttunni sem hver um sig
töpuðu aðeins einni skák og jafn-
margra í botnbaráttunni. Fyrir síð-
ustu umferð var t.d. l'A vinningsbil
á milli 6. og 7. manns.
Dýrt í Glaumberg
Brightonbúinn Byron Jakobs náði
7. sætinu. Byron hefur verið at-
vinnuskákmaður síðastliðin tvö ár
og var einn um það af erlendum
keppendum. Byron átti fyrir mótið
möguleika á að ná lokaáfanga til
alþjóðlegs meistaratitils en að þessu
sinni reyndist hann ekki hafa byr til
þess. Byron er 24 ára, rólegur og
háttvís maður sem býr í félagi við
ekki lakari skákmenn en Speel-
man, Helsden og Pein í leiguíbúð í
Brighton. Hann kvartaði undan
verðlaginu hérlendis og taldi sig
hafa getað farið ijórum sinnum á
tónleika hjá poppgoðinu David
Bowie fyrir sama verð og þeir þrír
aðgöngumiðar kostuðu sem hann
greiddi í Glaumbergi.
Finninn Pyhála sem vermdi 8.
sætið er íslendingum að góðu kunn-
ur. Er hann telfdi í Austíjarðarmót-
inu í júní síðast liðnum gekk honum
allt í haginn, endaði þar í 2. sæti og
hafði með sér 6000 dollara úr landi.
Nú mátti hann hins vegar láta sér
lynda tap í fjórum fyrstu umferðun-
um og áfangavon var því strax úr
sögunni. Síðar í mótinu náði hann
sér hins vegar betur á strik og
klykkti út með því að vinna Helga
Ólafsson í næst síðustu umferð og
sá þar með um að enginn keppenda
slyppi taplaus frá mótinu. Pyhála er
lfkamlega fatlaður. Á skákborðinu
er hins vegar engin honum kraft-
meiri og hann sagði mér að hann
teldi það veikleikamerki að þiggja
eða bjóða jafhtefli áður en teflt hefur
verið í botn og eftir þessu fór hann
algerlega sjálfur, hafnaði m.a. bæði
jafnteflisboðum frá Heiga og Nor-
wood.
Væri einhver iognmolia yfir skák-
unum þá þurftu áhorfendur þó ekki
að láta sér leiðast. Til þess sá ald-
ursforseti mótsins bandarískur
háskólakennari á efsta stigi í tölvu-
fræðum, Charles Weldon, þó það
hafi nú kannski ekki verið ætlunin
af hans hálfu. Þegar ég tefidi við
hann í 2. umferð mótsins vissi ég
ekki fremur en aðrir keppendur
nein deili á honum. Þegar hann svo
mætti til leiks var hann með stórar
þungavinnueymahlífar. Síðan blés
hann og stundi þungan yfir borðinu
svo af hlaust eina truflunin í salnum
enda áhorfendur fáir, og voru
eymahlífamar því vart til annars en
að einangra hann frá hávaðanum í
sjálfum sér. Skákin varð síðan æsi-
spennandi. Ég tel mig hafa verið
komin með vinningsstöðu en var í
miklu tímahraki og þegar því lauk
sá ég mig knúinn tii að þráskáka
enda þá peði undir. En þá skyndi-
lega óð Weldon með kóng sinn út á
mitt borð, nánast bein sjálfsmorðs-
tilraun. Reyndar sögðu gámngamir
að hann hefði séð sig knúinn til
þessa þar sem hann hafi ekki getað
heyrt jafnteflistilboð frá mér í gegn-
um eyrnahlífamar. Engu að síður
tókst honum að sleppa fyrir horn
með þetta ævintýri og skákin end-
að með jafntefli.
Guðmundur fellur á tíma
10. sætið skipaði Jóhannes
Ágústsson. í 8. umferð vann hann
það afrek að sigra Guðmund Sigur-
jónsson stórmeistara. Jóhannes var
að vísu með mun verri stöðu og fall-
vísir hans á skákklukkunni hékk á
lakkinu einu er Guðmundur alger-
lega gleymdi sér, hugsaði sig um í 4
mínútur og áttaði sig ekki fyrr en
honum var bent á að hann væri fall-
inn á tíma og því búinn að tapa
skákinni.
Smalar mótsins urðu þeir Davíð
Ólafsson og Sigurður Daði Sigfús-
son. Davíð hefur þegar einn áfanga
til alþjóðlegs titils en núna gekk
honum allt í óhag í fyrstu umferðum
mótsins. Það er ekki sérlega upp-
örvandi að tapa fyrstu 5 skákunum
og þurfa síðan að tefla mótið til enda
án þess að hafa í raun að nokkru að
keppa. Áhugaleysi einkenndi tafl-
mennsku Davíðs er líða tók á mótið.
Sigurður var fyrir mótið eini
keppandinn sem enn hafði ekki
komist á elo-skákstigalista Alþjóða
skáksambandsins, og því er hann
skráður á 2200 elo-stig í mótinu
sem eru lágmarksstig á alþjóðlega
elo-stigalistann. Sigurður byggði oft
upp fallegar stöður og gegn jafn-
aldra sínum Hannesi svo fallega að
hann var heilum hrók yfir en
reynsluleysið reynist dýrt í svona
móti.
Gegn Helga tefldi Sigurður hins
vegar eins og alvanur meistari og gat
Helgi fagnað er Sigurður tók jafn-
teflisboði Helga í unninni stöðu.
Skákstjórar á mótinu voru þeir
Einar S. Guðmundsson og Haukur
Þ. Bergmann og þeim til aðstoðar
Tómas Marteinsson allir sterkir
skákmenn úr Skákfélagi Keflavík-
ur. Fórust þeim þesi störf vel úr
hendi eins og vænta mátti.
Lokaorð
Og að lokum: Hver er þýðing þess
fyrir skákmenn að verða „Alþjóð-
legur skákmeistari". Með hverjum
sigri sem menn ná í skákinni opnast
nýir möguleikar til þátttöku í enn
öflugri og eftirsóknarverðari mót-
um. Alþjóðlegur meistari fær nær
alltaf mun betri fyrirgreiðslu á mót
en titillaus skákmaður. Oft er t.d.
greiddur fýrir hann ferðakostnaður,
frítt uppihald þ.á.m. hótelkostnað-
ur og í sumum tilfellum laun meðan
á mótinu stendur.
Þá hefur Brunabótafélag íslands
sýnt hér mjög lofsvert framtak og
veitt styrki úr afreksmannasjóði fé-
lagsins í formi 3 mánaða launa-
greiðslna til að styðja alþjóðlega
meistara til að stíga lokaskrefið til
stórmeistaratitils, en stórmeistarar í
skák á íslandi í dag eiga rétt á föst-
um launum úr ríkissjóði.
Óskum nemendum okkar og foreldrum þeirra
gleöilegra jóía
og farsœldar á komandi ári.
Þökkum ánœgjulegt samstarf.
Kennarar og starfslið Holtaskóla Keflavík.
AEG-UMBOÐIÐ
Við bjóðum uppá fjölbreytt úrval af
heimilistækjum og handverkfærum frá hinu
þekkta AEG fyrirtæki.
Einnig rafvörur, ljós og lampa í miklu úrvali.
Einnig bjóðum við uppá ráðgjafa- og
rafverktakaþjónustu.
RAFBÆR
HAFNARGÖTU 18 — SÍMI 14221
FAXI 321