Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1987, Side 59

Faxi - 01.12.1987, Side 59
Guðni Magnússon: Á unglingsárum mínum var oft lít- ið um atvinnu hér um slóðir yfir sumartímann og fóru þá margir í aðra landshluta að leita sér atvinnu. Faðir minn fór yfir 20 sumur austur á Borgarljörð. Þangað fór ég líka í mína fyrstu ferð að heiman 1923. Á Vattarnes 1924 og að Karlsskála 1925. Ég hafði kynnst því að óhætt var að fara óráðinn austur. Þegar Esja lagðist að bryggju á Austijörðum á vorin, komu jafnan útvegsbændur um borð og tóku þá farþega tali, sem líklegir þóttu sem sjómenn. „Ertu ráðinn? Viltu koma til mín?“ kvað við úr öllum áttum. Á Korlsskóla 1925 Að þessu sinni var það Guðni Eiríksson, bóndi á Karlsskála, sem hafði klófest Jón G. Pálsson úr Keflavík, (föður Páls sparisjóðs- stjóra). Með honum var frændi hans, Kristinn Helgason, síðar fisk- sali og Ólafúr J. Pedersen, sem síð- ar flutti til Hafnarfjarðar. Jón hafði þá á vertíðinni verið formaður á m.b. Sigurfara í Innri-Njarðvík en þar var ég landmaður. Það varð að ráði að ég bættist í hópinn. Karlsskáli var stórbýli á norður- strönd Reyðarfjarðar og munu yfir 30 manns hafa verið þar þetta sum- ar. Þar höfðu búið tveir bræður, Guðni og Bjöm Eiríkssynir. Björn hafði hætt búskap þetta vor, en var þar enn með sitt fólk og bjó í sjóbúð á svonefndum Stekkartanga, sem var nokkuð utar á ströndinni. Flutti til Reykjavíkur um haustið. Böm Guðna voru: Eiríkur, Stefán, Helgi, Anna Marta, Guðríður, (köll- uð Dúdda), Sigurður og Bjöm. Böm Bjöms voru: Sigurbjörg, Eiríkur, Jón, Sigríður, Þorsteinn og Helga. Eiríkur Bjömsson var orðinn læknir, (síðar í Hafnarfirði) og kom austur vegna Helgu systur sinnar, en hún hafði legið í gibsi í heilt ár vegna meins í baki. Komst hún brátt til fullrar heilsu. Sonur Eiríks var Bjöm, sem var um tíma útibús- stjóri við Verslunarbankann í Keflavík. Sigríur Bjömsdóttir starfaði lengi í verslun Benedikts S. Þórarinssonar á Laugavegi í Reykjavík, en kona Benedikts var Hansína, systir þeirra Karlsskálabænda Guðna og Bjöms. Önnur systir þeirra Guðný hafði fluttst til Færeyja og giftst kóngsbóndanum þar. Jón Bjöms- son fluttist suður og hafði lært hús- gagnasmíði. Sigurbjörg Bjömsdótt- ir var gift suður í Homafirði, Magnúsi Stephensen frá Bjamar- nesi. Auk fjölskyldanna vom þama nokkur vinnuhjú. M.a. Steinþór ©íebiíeg jóíí (Sott og far^œít komanbi ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á LIÐNA ÁRINU LANDSBANKIÍSLANDS ÚTIBÚ SANDGERÐI ÚTIBÚ KEFLAVÍKURFLUGVELLI ÚTIBÚ GRINDAVÍK FAXI 327

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.