Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1987, Síða 60

Faxi - 01.12.1987, Síða 60
SKATALIF er ekki bara útilíf Stefán Guðnason vareinn afþeim ungu mönnum sem stunduðu sjósókn med greinarhöfundi. Það átti síðan fyrir Stefáni að liggja að taka við búi eftir föð- ur sinn. Hann var mikill ftamámaður í sveit sinni, var m.a. hreppstjóri um þrjátíu ára skeið. 1959 eyðilagðist íbúð- arhúsið að Karlsskála í eldi og brú Stefán þá búi og fluttist til Reykjavíkur. Sighvatsson, sem síðar llutti til Keflavíkur og býr á Vatnsnensvegi 36, Margrét Þorsteinsdóttir og dótt- ir hennar Sigurbjörg Þorleifsdóttir o.fl. Á Karlsskála hafði bæjarlækurinn verið virkjaður til rafmagnsfram- leiðslu. Þótti mér það nýlunda, því á þessum tíma var ekki komið raf- magn hér um Suðumes. Stórar ljósaperur vom í hveiju herbergi og margar suðuhellur í eldhúsinu, sem var stórt og einnig notað sem borð- stofa. I stofunni var orgel, sem Margrét Þorsteinsdóttir átti og hafði hún kennt unga fólkinu að leika á það. Og oft var safnast saman í stofunni á kvöldin og á sunnudögum og tekið lagið. Og stundum var dansað í eld- húsinu. Á Karlsskála blandaðist saman gamli og nýi tíminn á einkennilegan hátt. Ein stúlkan spurði mig þegar hún vissi að ég var úr Njarðvíkum: , ,Er ekki allt svo gamaldags í Njarð- víkum?“ Og víst var um það að stuttkjólatískan hafði haldið þar innreið sína nokkm íyrr en hér syðra. Aftur á móti var mataræði og matmálstímar þama að gömlum sið. Fyrir nokkmm ámm átti ég kost á því að koma aftur á þessar slóðir. Eirikur sonur minn, sem vinnur í Seðlabankanum, var í sumarleyfi sínu austur á Héraði, en þar á starfsfólk Seðlabankans sumarbú- stað, sem er eyðibýlið Útnyrðings- staðir. Bauð hann okkur að heim- sækja sig og flugum við hjónin til Egilsstaða og sótti hann okkur þangað. Dvöldum við þar nokkra daga og einn daginn fékk ég hann til að aka niður á Reyðarfjörð og svo langt út eftir norðurströndinni, sem komist varð, en ekki var bílfært nema út í Breiðuvík. Þaðan gengum við út að Karlsskála. Varð mér þá að orði: ,,Nú er hún Snorrabúð stekk- ur.“ Gamla húsið var horfið. Stein- hús hafði verið byggt, en það orðið eldi að bráð og eftir stóð steintóftin. Og þama sá ég brunaleifar af gamla orgelinu, sem hafði stytt svo mörg- um stundimar í þá góðu gömlu daga. I haust átti skátafélagið Heiðabúar fimmtíu ára afmæli, og í tilefni af því ætlum við að reyna að segja ykk- ur í stómm dráttum út á hvað skáta- starfið gengur. Skátastarf byggist upp á flokka- starfi, en til þess að flokkastarfið geti gengið þarf að vera gott sam- starf og góður skátaandi. Allir em jafnir í skátaflokknum. Skátadagskrána notum við til að ná markmiðum B.Í.S. Því er nauð- synlegt að dagskráin og verkefnin sem þar em notuð séu í stöðugri endurskoðun. Sir Robert Baden Powell lagði áherslu á að skátastarf- ið þjálfaði sem flesta eiginleika mannsins til aukins þroska. Skátastarf þarf að vera hvetjandi, skapandi og uppalandi fyrir böm og unglinga. í skátaflokknum og skátasveitinni kynnist skátinn skátaíþróttum og eykur víðsýni, þekkingu og fæmi sína. Til þess að skátarnir kynnist hugmyndafræði skátastarfsins ,,skátaandanum“ er nauðsynlegt að þeir fái skilning á skátaheiti, skátalögum og einkunn- arorðum skáta. Skátinn þarf að finna sig sem hluta af heildinni. í flokksstarfinu verða allir að vera virkir til að vinna flokksins skili sér. Þar þjálfum við skátana í að vinna saman. Sem dæmi um starfsverkefni ætl- um við að fara í refabú í vetur. Út frá því gerir hver og einn gmnnnáms- verkefni. Þegar búið er að undirbúa ferðina og allir komnir með gmnn- námsverkefni er farið í ferðina og skrifað um hana. Að lokum er allt endurskoðað og tekið fram hvað hefði mátt fara betur, einnig það sem að gekk vel, þannig að ef við fömm aftur í refabú getum við flett upp í flokksbókinni og athugað það sem við skrifuðum um síðustu ferð og reynum að láta næstu ferð fara betur. í vetur verður farið í nokkrar dags- og helgarferðir sem flokkurinn gæti notað sem starfsverkefni ef hann vill, en þá verða allir flokksmeðlim- ir að samþykkja. Þessi grein var samin í ferð sem við fómm í skála sem St Georgs Gildið á, Tjamarsel á Hvalsnesi. Foringjar í Björkinni 4. sveit. Steinþór Sighvatsson, sem lengst af starfaði fyrir Keflavíkurbœ, kom að Karlsskála um fermingu og var þar vinnumaður um nfu ára skeið. ífyrra heimsótti Steinþór þessar slóðir. Á myndinni sér heim að Karlsskála, það eru brunarústir steinhússins sem Guðni segir frá í greininni. 328 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.